Fotbolti.net
Besta deildin
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta-deild karla
Greifavöllurinn
KA
KA
2 - 1
Stjarnan
Stjarnan
Elfar Árni Aðalsteinsson 15'1 - 01 - 143' Emil AtlasonÁsgeir Sigurgeirsson 90'2 - 1
Dómari: Þorvaldur Árnason

SKÝRSLAN: Svakaleg dramatík á Greifavellinum

Hvað réði úrslitum?

Virkilega dýrt hjá Emil að klúðra vítinu og KA menn gáfust ekki upp þó svo að þeir lentu manni færri og kláruðu leikinn.

Bestu leikmenn

1. Ingimar Torbjörnsson Stöle

Var gríðarlega sterkur í sóknarleik liðsins og bjó til mörg færi. Lagði upp fyrra mark liðsins á Elfar Árna sem kláraði með glæsibrag.

2. Dusan Brkovic

Var sterkur eins og oft áður í varnarleiknum og kom í veg fyrir mark rétt áður en Ásgeir tryggði KA stigin þrjú

Atvikið

Það var gríðarlegt fjör síðasta korterið en það hófst allt á vítaspyrnudómnum. Emil mistókst þar að koma Stjörnumönnum í frábæra stöðu þegar hann negldi boltanum í slána og yfir.

Hvað þýða úrslitin?

KA er nú þremur stigum frá efri hlutanum þegar tvær umferðir eru eftir, liðið er með 25 stig. Liðið á eftir að mæta FH og Fylki á útivelli en FH vann stóran sigur á Val í dag. Stjarnan er með 31 stig í 4. sæti þegar liðið á aðeins einn leik eftir.

Vondur dagur

Emil Atlason skoraði vissulega mark Stjörnunnar en hann nagar sig í handabökin að hafa ekki skorað úr vítinu.

Dómarinn - 7

Átti bara flottan leik. Elfar Árni fékk alveg appelsínugult spjald undir lok fyrri hálfleiks en ég held að það hafi verið eina í stöðunni að gefa Sveini Margeir sitt annað gula spjald þegar vítið var dæmt
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.