Fotbolti.net
@HalldorGauti08Halldór Gauti Tryggvason
Lengjudeild kvenna
Vivaldivöllurinn
Grótta
Grótta
4 - 2
FHL
FHL
Hannah Abraham 8'1 - 0Hannah Abraham 11'2 - 0Hannah Abraham 52'3 - 03 - 162' Natalie Colleen CookeHannah Abraham 79'4 - 14 - 281' Halldóra Birta Sigfúsdóttir
Dómari: Ágúst Hjalti Tómasson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Hannah með fernu á Seltjarnarnesinu

Hvað réði úrslitum?

Hannah Abraham fór gjörsamlega á kostum í leiknum í dag! Hannah skoraði fjögur mörk í dag . Grótta var komið í 2-0 snemma leiks og hafði öll völd á vellinum í fyrri hálfleik. FHL komu grimmar út í seinni hálflekinn og byrjuðu með skoti í slánna. seinni hálfleikurinn var kaflaskiptur en leikurinn endaði 4-2. Sóknarlína Gróttu var geggjuð í dag.

Bestu leikmenn

1. Hannah Abraham

Þetta er alls ekki erfitt val. Hannah var gjörsamlega frábær í dag. Hún skoraði fernu og var bara lang besti leikmaður vallarsins. Hannah Abraham er nú orðin markahæst í deildinni og er komin með 15 mörk í sumar.

2. María Lovísa

María Lovísa var geggjuð á vinstri kantinum í dag. Hún skapaði helling af færum og var bara frábær í dag.

Atvikið

Natalie Cooke skoraði frábært mark í seinni hálfleik. Geggjað skot fyrir utan teig og boltinn söng í netinu.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta er enn í 4. sætinu eftir leikinn í dag. Liðið er núna einungis tveimur stigum fyrir aftan HK. FHL er í 8. sætinu og eru þar með 17 stig.

Vondur dagur

Bjarndís Diljá var í brasi í dag en hún fékk það erfiða verkefni að stoppa Hannah Abraham. Eins og fram hefur komið var Hannah algörlega frábær í dag og virkilega erfitt að hafa hemil á henni.

Dómarinn - 6

Ágúst átti erfiðan dag. Völlurinn rennandi blautur og helling af tæklingum. Hann spjaldaði ekki jafnt á báða bóga. Einnig voru nokkrir furðulegir rangstæðudómar í leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.