Fotbolti.net
@fotboltinetJón Ólafur Eiríksson
Lengjudeild karla
Olísvöllurinn
Hlýtt, þurrt - toppaðstæður
Vestri
Vestri
3 - 1
Fjölnir
Fjölnir
Gustav Kjeldsen 9'1 - 01 - 137' Bjarni Gunnarsson (víti)Gustav Kjeldsen 44'2 - 1Benedikt V. Warén 88'3 - 1
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Vestri tekur stórt skref í átt að úrslitakeppni

Hvað réði úrslitum?

Heimamenn voru sterkari aðilinn í dag. Fjölnismenn náðu aldrei almennilegum takti og þetta var sanngjarn sigur. Takturinn í Vestra liðinu hins vegar afar góður og virðist liðið vera að toppa á réttum tíma.

Bestu leikmenn

1. Benedikt Waren

Síógnandi á vinstri kantinum og var viðloðandi flestar sóknir Vestra í dag. Kórónaði góða frammistöðu sín með marki sem kláraði leikinn.

2. Gustav Kjeldsen

Miðvörðurinn setti tvö mörk og var þar að auki afar sterkur í sinni stöðu að vanda.

Atvikið

Annað mark Vestra. Kom rétt fyrir hlé og gaf þeim kraft til að klára leikinn. Hefði verið svekkjandi fyrir þá að fara inn með jafna stöðu eftir sterkan fyrri hálfleik.

Hvað þýða úrslitin?

Vestri bjarga sér tölfræðilega frá falli en aðal málið er að þeir eru komnir í afar góða stöðu til að tryggja sér í umspilið. Fjölnismenn sitja áfram í þriðja sæti en liðin fyrir neðan nálgast þá.

Vondur dagur

Erfitt að taka einhvern einn út fyrir sviga hjá Fjölni. Sigurjón markvörður varði oft vel en annars var Fjölnisliðið ekki nógu gott í dag. Ekki margar góðar sóknir og oft mikið svæði fyrir heimamenn að sækja í.

Dómarinn - 6

Fannst línan hjá honum svoldið rokkandi. Flautað á lítið og augljósum brotum sleppt. Sá ekki nógu vel vítaspyrnudóminn sem Fjölnir fékk.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.