SKÝRSLAN: Þróttur leiddi Grindavík til slátrunar
Hvað réði úrslitum?
Grindvíkingarnir mættu bara ekki til leiks og voru aldrei líklegir til neins. Þróttur vildu þetta meira og komu grimmari en Grindvíkingar í þennan leik eins og Brynjar sagði eftir leik.
Bestu leikmenn
1. Hinrik Harðarson
Lang auðveldasta val sumarsins. Hvað er eiginlega hægt að segja? Skorar þrjú mörk, fiskar víti og fær heiðursskiptingu. Ekki hægt að biðja um neitt meira. Þessi mörk voru líka ótrúlega flott og vel tekin. Sláin inn og bara ótrúlega yfirvegaður fyrir framan markið. Ekkert annað í stöðunni en að gera hann að manni leiksins. Verður líklega leikmaður umferðarinnar.
2. Baldur Hannes Stefánsson
Stóð vaktina frábærlega. Ekki láta þessa sendingu sem hann átti á Hinrik í öðru markinu fara framhjá ykkur. Gjörsamlega geggjuð sending og líklega mark kvöldsins. Síðan skoraði hann með skalla úr hornspyrnu og hefði getað skorað annað rétt áður. Síðan skemmdi það ekki að hann hélt hreinu og var ein af stóru ástæðunum afhverju Þróttur héldur hreinu.
Atvikið
100% annað mark leiksins þegar Hinrik setti skotið í slána og inn. Geggjuð sending sem Baldur kemur með á Hinrik and the rest is history. Tekur boltann inn á teignum og fer yfir á hægri áður en hann gjörsamlega neglir boltanum í sláin inn. Sturlað mark!
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur fara upp fyrir Njarðvík á markatölu í 9. sætið. Hinsvegar er Grindavík ennþá í 6. sætinu og ef Leiknir vinnur sinn leik á morgun er ekki möguleiki fyrir þá að enda fyrir ofan þá
Vondur dagur
Marko Vardic. Hefði getað valið einhverja aðra en fannst hann verstur af þeim. Gaf vítið í byrjun og gat ekki mikið. Fannst hann líka mögulega geta gert betur í fjórða markinu þegar Hinrik bara er miklu grimmari en hann. Þetta var bara svo andlaust hjá honum.
Dómarinn - 8
Ekkert mikið út á teymið að setja. Mögulega var þetta ekki víti þegar Þróttur komust 1-0 yfir á 12. mínútu en miðað við fyrstu sýn var þetta víti. Fínasta flæði í þessu og þeir voru með fína stjórn á þessum leik.



