SKÝRSLAN: Sýning Amöndu Andradóttur gerði út um Þór/KA
Hvað réði úrslitum?
Valur byrjaði leikinn á að ná forystunni á þriðju mínútunni en Þór/KA klúðraði tveimur dauðafærum eftir hálftímaleik og fékk skellinn á móti, annað mark Vals beint í kjölfarið. Eftir það var þetta í raun enginn leikur, gæðin í Valsliðinu eftir liðsstyrkinn í sumarglugganum eru rosaleg. Allar fimm sem komu í glugganum spiluðu í dag, Amanda Andradóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir, Berglind Rós Ágústsdóttir, Lise Dissing og Laura Frank. Hálft byrjunarliði á einu bretti sem hefur breytt Val úr besta liði landsins, í langbesta lið landsins og gæðin í Amöndu Andradóttur skiptu svo sköpum í dag.
Bestu leikmenn
1. Amanda Andradóttir, Valur
Auðvelt að byrja þessa færslu á fullyrðingu sem ég tel mig geta staðið við. Amanda Andradóttir er besti leikmaður Bestu-deildarinnar í dag! Hún átti þvílíkan stórleik í dag, skoraði fyrsta markið, lagði svo upp fjögur og var dugleg að koma sjálfri sér, og liðsfélögunum í góð færi.
2. Berglind Rós Ágústsdóttir, Valur
Það er alveg ástæða fyrir að öll stóru liðin reyndu að næla í Berglindi í glugganum. Ofboðslega góður og fjölhæfur leikmaður sem getur spilað allar stöður en hefur líka þetta fína markanef. Tvö mörk í dag frá henni.
Atvikið
Ásta Árnadóttir hóf feril sinn sem leikmaður í meistaraflokki Þórs/KA árið 1999 en spilaði lengi með Val líka. Í dag er hún sjúkraþjálfari Vals og þar sem leiknum var óvænt flýtt um einn dag vegna óveðurs á morgun náði Þór/KA ekki að taka með sér sjúkraþjálfara í dag. Ásta fékk því það verkefni að sinna báðum liðum og þó það hafi verið nokkuð rólegt Valsmegin þurfti hún nokkrum sinnum að koma inná til að gera að meiðslum leikmanna gestanna. Falleg samvinna milli félaganna og eitthvað sem segir mér að Ásta hafi haft gaman af því að fá að hjálpa sínu gamla liði með þessum hætti.
Hvað þýða úrslitin?
Valur er komið með 11 stiga forskot á Breiðablik sem er í 2. sæti en á leik til góða. Úrslitakeppnin er bara fimm leikir á lið svo Valur á tólf stig eftir í pottinum. Þær gætu mögulega orðið Íslandsmeistarar með sigri á Stjörnunni í næsta leik eftir tvær vikur, ef úrslit verða þeim hagstæð. Ef ekki þá er nægur tími til að klára verkið, og nánast ljóst að þær munu gera það fyrr en síðar. Þór/KA er áfram í 6. sætinu.
Vondur dagur
Sandra Sigurðardóttir byrjaði síðasta leik gegn Keflavík og lýsti því svo yfir að hún vildi snúa aftur í íslenska landsliðið. Það hljóta því að hafa verið vonbrigði fyrir hana að Fanney Inga Birkisdóttir hafi tekið byrjunarliðssætið aftur af henni í dag. Staða markmannsmála í landsliðinu er ekkert spes í dag þegar Cecilía Rán Rúnarsdóttir verður lengi frá vegna meiðsla, auk þess sem Sandra spilar lítið og Auður Scheving hefur verið inn og út úr liði hjá Stjörnunni. Telma Ívarsdóttir úr Breiðabliki er því eini markvörðurinn sem var í hópnum í ágúst (Telma, Cecilía og Auður voru í hópnum) og er að spila að staðaldri núna og líklegt að 1-2 sæti séu í boði fyrir þá sem stendur sig vel. Fanney Inga gæti því gert tilkall meðan Sandra fær ekki að spila leiki með Val. Ísland mætir Wales (heima) og Þýskalandi (úti) í Þjóðadeildinni síðar í mánuðinum.
Dómarinn - 8
Auðvelt verkefni hjá Helga Mikael og aðstoðarkonum hans í dag. Ekkert umdeilt atvik og þau með þetta í teskeið eins og einhversstaðar stóð. Þurfti nánast ekkert að nota flautuna.




