SKÝRSLAN: Deildin ekki lengur í höndum Aftureldingar
Hvað réði úrslitum?
Úlfur segir í viðtali eftir leik að það hafi komið honum á óvart hvað Afturelding lágu til baka og segir hann að þeir hafi þurft tíma til að átta sig á hvernig ætti að koma fyrirgjöfum inn og hvernig ætti að sækja á Aftureldingu. Afturelding var með yfirhöndina í leiknum fyrstu 30 mínúturnar en eftir það voru Fjölnismenn sterkari, þangað til að Afturelding minnkaði muninn undir lok leiks. Fjölnir nýttu færin sín vel og lokuðu vel á Aftureldingu þegar þeir sóttu.
Bestu leikmenn
1. Bjarni Gunnarsson
Bjarni var einstaklega klínískur í færunum sem hann fékk. Skoraði 2 frábær mörk, annað skallamark sem hann afgreiddi vel og svo komst hann í sendingu Ásgeirs Frank og kom sér í einn á einn stöðu við markmann þar sem Bjarni kláraði vel.
2. Axel Freyr Harðarson
Axel stóð sig frábærlega á hægri kantinum, ógnaði mikið og átti draumasendingu þar sem hann þræddi boltann í gegnum vörn Aftureldingar á Júlíus Mar í öðru markinu.
Atvikið
2-1 Mark Fjölnis sem Júlíus Mar skoraði. Markið kom aðeins 67 sekúndum eftir fyrsta mark Fjölnis og á einu augabragði voru Fjölnismenn komnir yfir.
Hvað þýða úrslitin?
Deildin er ekki lengur í höndum Aftureldingar. ÍA og Afturelding eru jöfn á stigum en Skagamenn eiga eftir að spila sinn leik í umferðinni og geta komið sér á topp deildarinnar.
Fjölnir siglir lignan sjó þessa stundina en liðið er öruggt á að koma áfram í úrslitakeppnina, en geta ekki unnið deildina nema mikið gangi á.
Vondur dagur
Leikurinn fannst mér einkennast af mörgum mistökum og ódýrum mörkum.
Fyrsta mark leiksins var gjöf frá Sigurjóni í marki Fjölnis, þar sem hann gaf boltann beint á Ivo Braz sem skoraði auðvelt mark.
Ásgeir Frank gerði sig einnig sekann um skelfileg mistök í þriðja marki Fjölnis, þar sem hann senti boltann beint á Bjarna Gunn og hann komst einn á móti markmanni og skoraði.
Undir lok leiks átti síðan Yevgen Galchuk slæman bolta sem Hákon Ingi komst inn í og gerði út um leikinn.
Dómarinn - 8
Maður tók ekki mikið eftir Vilhjálmi Alvari og hans aðstoðarmönnum í leiknum og boðar það yfirleitt gott. Flott dagsverk hjá dómurum leiksins.



