SKÝRSLAN: Stjarnan setur pressu á Breiðablik
Hvað réði úrslitum?
Fyrst og fremst færasköpun og færanýting. FH sem réði ferðinni á miðjunni að stærstum hluta í dag gekk illa að skapa sér færi. Á meðan nýtti Stjarnan flesta sína sénsa vel og því fór sem fór.
Bestu leikmenn
1. Andrea Mist Pálsdóttir
Tvö glæsileg mörk hjá Andreu í dag. Bæði eftir frábær skot frá henni. Í leik sem þú liggur til baka í er gott að vera með leikmann sem klárar þau færi sem hún fær. Það gerði Andrea svo sannarlega í dag.
2. Málfríður Erna Sigurðardóttir
Í 94 mínútur hélt vörn Stjörnunar liði FH frá marki sínu. Skoruðu reyndar einu sinni í eigið net en heilt yfir var varnarleikur þeirra til fyrirmyndar. Vel Málfríði sem fulltrúa heildarinnar í vörninni.
Atvikið
Fyrra mark Andreu í dag. Fær boltann frá varnarmanni FH og á stórglæsilegt skot sem smellur í slánni og inn. Glæsilegt mark.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan fer í 32 stig í 3.sæti deildarinnar og setur þar með smá pressu á lið Breiðabliks sem situr í 2.sæti með 34 stig. FH í 5.sæti með 28 stig.
Vondur dagur
Fremstu konum FH liðsins gekk illa að finna leiðina að markinu í dag. Þéttur varnarleikur Stjörnunar var ekki að hjálpa þeim en stundum virtist bara vanta smá hugmyndaflug.
Dómarinn - 7
Lítið yfir störfum dómara leiksins að kvarta frá mínum bæjardyrum séð. Solid sjöa á gengið.



