Fotbolti.net
@haflidibHafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Lengjudeild karla
Rafholtsvöllurinn
Hífandi rok, 14 metrar á sekúndu og 10 stiga hiti. Smá rigning með.
Njarðvík
Njarðvík
2 - 4
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 126' Hreggviður Hermannsson (sjm)0 - 235' Daníel Finns Matthíasson (víti)Kenneth Hogg 38'1 - 21 - 349' Daníel Finns Matthíasson Oumar Diouck 59'2 - 32 - 473' Omar Sowe
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Umtalað víti og fyrsta haustlægðin setti svip sinn á sigur Leiknis í Njarðvík

Hvað réði úrslitum?

Kannski má segja að úrslitin hafi að einhverju leiti verið tilviljanakennd. Leiknismenn náðu að klára sín færi en Njarðvík fékk fjölda tækifæra til að setja fleiri mörk í leikinn, en mikill vindur sem stóð þvert á völlinn gerði þetta svolítið tilviljanakennt, hvar boltinn endaði. Stundum var hraðinn á boltanum með vindi það mikill að ökumaður hefði verið sviptur á staðnum fyrir að keyra svona hratt.

Bestu leikmenn

1. Daníel Finns Matthíasson, Leiknir

Skoraði úr vítinu umdeilda og það er ekkert við hann að sakast þó það hafi staðið. Afgreiddi færið svo vel í markinu og átti geggjaða aukaspyrnu sem fór í þverslánna. Flottur leikur hjá Daníel.

2. Omar Sowe, Leiknir

Var kraftmikill frá fyrstu mínútu til síðustu, lagði upp markið fyrir Daníel með laglegum hætti og nýtti sér klaufagang Njarðvíkinga með því að skora svo fjórða markið sjálfur.

Atvikið

Stóra atvikið í leiknum sem allir eru að tala um er vítaspyrnan sem kom Leikni í 0-2 í fyrri hálfleik. Vítaspyrnudómurinn var reyndar svo fjarri því að vera rangur því í raun hefði mátt flauta víti á tvö atvik, hendi í teignum og brot á Robert Quental sekúndu síðar. Það var hinsvegar framkvæmd spyrnunnar hjá Daníel Finns Matthíassyni. Hann rann þegar hann spyrnti boltanum, sparkar því í hinn fótinn á sér, þaðan tekur hann sveig upp í stöngina og er að rúlla yfir marklínuna þegar Robert Blakala markvörður blakar honum út. Spyrnumaður má ekki snerta boltann eftir að hann hefur spyrnt svo í raun hefði átt að dæma aukaspyrnu á Leikni.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin voru risastór fyrir bæði lið í kvöld. Leiknir tryggði sér sæti í umspili um sæti í Bestu-deildinni. Lið sem beið afhroð lengi framan af móti, sneri genginu svo við og nær svo þessum árangri þegar tvær umferðir eru eftir. Fyrir Njarðvík eru úrslitin svo mikil vonbrigði því þeir eru í bullandi fallbaráttu, með 23 stig eins og þrjú önnur lið, þar af eitt í fallsæti, þegar tvær umferðir eru eftir.

Vondur dagur

Það pirrar mig smá að það þurfi að velja að spila leikinn í þeim aðstæðum sem voru í Njarðvík í dag. Alla vikuna var búist við fyrstu haustlægðinni á föstudeginum og fram í helgina. KSÍ bauð félögunum í byrjun vikunnar að finna aðra leiktíma. Þannig voru Fjölnir-Afturelding og Þróttur-Grindavík í þessari deild, auk tveggja leikja í Bestu-deild kvenna spilaðir við príma aðstæður á fimmtudaginn. Tvö lið sem segjast vilja spila fótbolta eiga aldrei að enda með þá niðurstöðu að best sé að spila bara í haustlægðinni, það er vitað að það verður ekki skemmtilegt fyrir neinn. Hrós samt á þá áhorfendur sem klæddu sig vel og lögðu leið sína á völlinn.

Dómarinn - 4

Vendipunkturinn í leiknum er vítaspyrnan þar sem allt dómarateymið er með augun á sínum stað. Þegar Daníel Finns spyrnir boltanum í hinn fótinn á sér og þaðan endar hann í stönginni og líklega fyrir innan marklínu.. Af þríeykinu er það Gunnar Freyr dómari sem á bara að sjá þetta atvik og hefur í raun enga afsökun fyrir að gera það ekki. Jakub Róg línuvörður á að horfa á marklínuna og hann úrskurðar að boltinn hafi farið inn. Hann er í langbestri stöðu allra á vellinum til að meta það og því hlýtur sú ákvörðun að vera rétt. Dýrkeypt atvik fyrir leikinn því þarna kemst Leiknir í 2-0 og allt bendir til þess að Gunnar Freyr hafi gert mistök með að horfa ekki á hvort spyrnan sé rétt framkvæmd.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.