SKÝRSLAN: Vestri mættir í umspil
Hvað réði úrslitum?
Vestri komst yfir eftir aðeins 40 sekúndur og gaf það til kynna hvað koma skyldi. Staðan var 3-0 eftir 10 mínútur, en eftir það náðu Ægismenn aðeins að þétta raðirnar svo að leikurinn myndi ekki enda í stórslysi.
Bestu leikmenn
1. Benedikt V. Warén
Benedikt var óaðfinnanlegur í dag, 2 mörk og 2 stoðsendingar og hefði það getað verið meira. Áberandi bestur á vellinum í dag.
2. Ibrahima Balde
Balde var geggjaður á miðjunni skapaði mikið og skoraði svo sturlað mark, á lofti og í skeytin. Hann fer sáttur á koddann í kvöld.
Atvikið
Þriðja mark Vestra sem kom aðeins á 9. mínútu, þetta var orðið vandræðalegt fyrir Ægismenn, það fór allt inn sem Vestri gerði og hélt maður að leikurinn myndi enda með tveggja stafa sigri Vestra á þessum tímapunkti.
Hvað þýða úrslitin?
Vestri er búið að tryggja sér sæti í umspil í Bestu-deildinni en Ægismenn eru fallnir og hafa lítið sem ekkert að keppa uppá í næstu tveimur leikjum.
Vondur dagur
Eins og staðan gefur að skilja þá voru ekki margir í Ægisliðinu sem stóðu uppúr, allir á sama plani.
Ivaylo Yanachkov átti mjög skrýtinn leik í dag, mér fannst hann eiga verja 2-3 mörk Vestra en inn á milli átti hann mjög góðar vörslur.
Dómarinn - 8
Það fór lítið fyrir Aðalbirni og aðstoðarmönnum hans og boðar það oftast gott, fínt dagsverk hjá þeim.



