Fotbolti.net
@utanvallarSævar Þór Sveinsson
Sævar Þór Sveinsson
Lengjudeild kvenna
Würth völlurinn
10 gráður og hvasst
Fylkir
Fylkir
4 - 0
FHL
FHL
Guðrún Karítas Sigurðardóttir 14'1 - 0Guðrún Karítas Sigurðardóttir 66'2 - 0Marija Radojicic 68'3 - 0Mist Funadóttir 70'4 - 0
Dómari: Tómas Wolfgang Meyer

SKÝRSLAN: Sterkur sigur Fylkis í Lautinni

Hvað réði úrslitum?

Tvöföld skipting Gunnars á 62. mínútum réði úrslitum leiksins. Settu þrjú mörk í kjölfarið sem innsiglaði sigurinn.

Bestu leikmenn

1. Tinna Harðardóttir

Mjög öflug þegar hún kom inn á völlinn á 62. mínútu. Breytti leiknum gjörsamlega fyrir Fylki og átti sinn þátt í mörkunum sem voru skoruð eftir að hún kom inn á.

2. Erna Sólveig Sverrisdóttir

Góð frammistaða í hjarta varnarinnar. Byrjaði að spila þessa stöðu fyrir nokkrum leikjum síðan og hefur staðið sig vel.

Atvikið

Tvöfalda skiptingin án efa. FHL var grátlega nálægt því að jafna leikinn rétt fyrir skiptinguna. Í kjölfar skiptingarinnar komu svo þrjú Fylkismörk.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkir mun spila algjöran úrslitaleik við Gróttu næsta laugardag um sæti í Bestu deildinni. Fylkir þarf sigur eða jafntefli úr þeim leik til þess að tryggja sér sæti í deild þeirra Bestu.

Vondur dagur

FHL liðið eftir þessa tvöföldu skiptingu. Þær voru búnar að vera fínar fram að því en töpuðu leiknum eftir þessar skiptingar Fylkis.

Dómarinn - 10

Vel dæmdur leikur hjá dómaratríóinu. Fylkir vildi fá vítaspyrnu á einum tímapunkti sem var ekki dæmt. Ég átti hins vegar gott spjall við Tómas aðaldómara eftir leikinn sem sagði mér aðeins frá sínum ákvörðunum í gegnum leikinn. Fyrir þetta frábæra spjall sem ég átti við hann ætla ég að gefa honum 10 í einkunn. Það er frábært að fá að heyra rök dómara fyrir dómum þeirra eftir leiki.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.