SKÝRSLAN: Dalvíkingar sóttu stig í Breiðholtið
Hvað réði úrslitum?
Varnarleikur Dalvíkinga. Þeir gjörsamlega pökkuðu í vörn frá byrjun og greinilegt að þeir fóru inn í leikinn til þess að virða stigið. ÍR áttu í erfiðleikum með að opna þá en það var ekki mikið að gera í dag hjá markmönnum liðanna. Einungis þriðji leikur ÍR-inga í sumar þar sem þeim misstekst að skora og þeirra annað jafntefli.
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
Finnst þetta frekar erfitt val en hann var gjörsamlega geggjaður í dag. Maður sér hvað það gerir mikið fyrir ÍR að vera með svona reynslubolta og leiðtoga inn á. Var geggjaður í dag.
2. Hrafn Hallgrímsson
Margir sem koma til greina hérna finnst mér. Að mínu mati var Hrafn næst besti maður vallarins. Það voru ekki margir sem komu til greina en þegar ÍR þurfti Hrafn til þess að stíga upp þá gerði hann það. Líklega einn af hans bestu leikjum í sumar.
Atvikið
Verð að segja rauða spjaldið. Gjörsamlega glórulaus tækling hjá Toni Tipuric þegar hann neglir Ívan Óla niður á miðjum vellinum. Gjörsamlega galin ákvörðun sérstaklega í ljósi þess að hann verður ekki með Dalvík í næsta leik gegn Hetti/Huginn. Það má samt einnig nefna eitt stórt atvik í leiknum. Þá voru ÍR-ingarnir sloppnir í gegn en dómarinn missteig sig og þurfti að stoppa leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Dalvíkingar halda stöðu sinni á toppnum þegar tveir leikir eru eftir. ÍR hinsvegar eru þremur stigum á eftir KFA í öðru sæti en þeir eiga einmitt þá í Breiðholtinu í næsta leik og fara upp fyrir KFA á markatölu með sigri.
Vondur dagur
Það blés mjög vel í dag. Vindurinn hafði mjög oft á tíðum gífurlega mikil áhrif á leikinn. Sendingar og hornspyrnur fuku oft í sandinn. Veðrið fær vondan dag!
Dómarinn - 9
Lítið sem ekkert út á hann að setja. Einn besti leikur dómara í 2. deildinni í sumar finnst mér. Hafði góð tök á leiknum og það var bara fínasta tempó í þessu. Allar stóru ákvarðanirnar sem hann tók voru líka spot on!



