Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild karla
VÍS völlurinn
Þór
Þór
2 - 3
ÍA
ÍA
0 - 19' Viktor Jónsson0 - 216' Arnór SmárasonBjarni Guðjón Brynjólfsson 24'1 - 21 - 386' Breki Þór HermannssonNikola Kristinn Stojanovic 99'2 - 3
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Víti eða ekki víti það er spurningin

Hvað réði úrslitum?

Skagamenn hófu leikinn af miklum krafti og skoruðu tvö mörk snemma. Hörku leikur í fyrri hálfleik en Skagamönnum tókst að loka vel á Þórsarana í þeim síðari og refsuðu með þriðja markinu sínu.

Bestu leikmenn

1. Viktor Jónsson

Magnaður leikmaður! Skorar fyrsta markið og klárar leikinn fyrir Skagamenn með því að leggja upp þriðja markið.

2. Johannes Vall

Þórsarar sóttu mikið á Johannes en hann lokaði mjög vel á þá auk þess að leggja upp fyrsta markið með glæsilegri sendingu. Indriði Áki vann líka hrikalega vel til baka og braut upp sóknir Þórs.

Atvikið

Víti eða ekki víti? eftir tæplega klukkutíma leik fór Árni Marinó markvörður ÍA harkalega í Alexander Má og Þórsarar vildu fá vítaspyrnu.

Hvað þýða úrslitin?

ÍA er með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Þórsarar hins vegar í mikilli fallbaráttu, aðeins einu stigi frá fallsæti.

Vondur dagur

Það vantar oft á tíðum allt bit í sóknarleik Þórs og það sýndi sig í dag. Þetta var brekka eftir erfiða byrjun.

Dómarinn - 5

Fannst Þórsarar eiga fá vítaspyrnu þegar Árni fór í Alexander. Risastórt atvik í leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.