Leik lokið!
leik lokið með sigri KA!
93. mín
Eyjamenn reyna hvað þeir geta að ná jöfnunarmarkinu. Sending fyrir og Elfar Árni er fyrstur í boltann en hann rennur til en nær að bjarga í horn.
92. mín
Sex mínútur í uppbótatíma
90. mín
InnArnór Sölvi Harðarson
ÚtSverrir Páll Hjaltested
90. mín
InnValdimar Logi Sævarsson
ÚtSveinn Margeir Hauksson
90. mín
InnMikael Breki Þórðarson
ÚtAndri Fannar Stefánsson
87. mín
Sverrir Páll og Steinþór Már eru hér í baráttunni við boltann og báðir liggja. Þjálfarar liðanna rífast hressilega á hliðarlínunni en Hermann Hreiðarsson er á því að þetta hafi átt að vera vítaspyrna. Sigurður Hjörtur Dómari leiksins er hins vegar að gera sig líklegan til að spjalda Sverri, finnst það kannski full gróft.
83. mín
GUÐJÓN ERNIR
Elvis með frábæra sendingu á Guðjón Erni sem er kominn í dauðafæri en setur boltann yfir!
82. mín
InnElfar Árni Aðalsteinsson
ÚtJóan Símun Edmundsson
81. mín
Ansi rólegt síðustu mínútur
74. mín
InnArnór Sölvi Harðarson
ÚtMichael Jordan Nkololo
74. mín
InnBreki Ómarsson
ÚtKevin Bru
71. mín
KA fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Svipuðum og Jón Ingason skoraði úr fyrir ÍBV.
Hallgrímur Mar með lúmskt skot framhjá veggnum en framhjá markinu líka.
Hallgrímur Mar með lúmskt skot framhjá veggnum en framhjá markinu líka.
68. mín
Flott útfærsla úr horni hjá KA. Hallgrímur Mar fær langa sendingu og á viðstöðulaust skot sem fer í varnarmann ÍBV. Boltinn hrekkur til Ingimar Stöle sem á skot yfir markið.
65. mín
InnJón Jökull Hjaltason
ÚtEiður Aron Sigurbjörnsson
Eiður Aron þarf að fara af velli
65. mín
InnBjarni Aðalsteinsson
ÚtHarley Bryn Willard
Tvöföld breyting hjá KA
65. mín
InnPætur Joensson Petersen
ÚtJakob Snær Árnason
63. mín
Ívar Örn Árnason rennur við vítateig KA en móttakan svíkur Sverri Pál sem missir boltann.
62. mín
Eiður Aron þarf á aðhlynningu að halda eftir þessa björgun.
61. mín
Góð sókn hjá KA. Willard kemst inn á teiginn en Eiður Aron kemst fyrir skotið. Sóknin heldur áfram og Hallgrímur á skotið en boltinn fer yfir markið.
60. mín
Jakob snær í fínu færi en skóflar boltanum yfir markið
54. mín
MAAAARK
Hallgrímur Mar Steingrímsson
Öruggt hjá Hallgrími. Smit fer í rétt horn en það dugði ekki til!53. mín
víti
Jón Ingason brýtur á Sveini Margeiri
51. mín
Frábær undirbúningur hjá Jakobi Snæ. Boltinn var á leið útaf en Jakob rennir sér í boltann og bjargar því að hann fari útaf. Felix Örn Friðriksson verst Jakobi með hálfum hug og KA maðurinn er fyrstur í boltann og brunar upp kantinn. á sendingu á Svei Margeirsem á skot beint á Guy Smit
46. mín
Síðari hálfleikur kominn af stað
46. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
Skipting hjá gestunum fyrir seinni hálfleikinn
45. mín
Hálfleikur
+2
Fyrri hálfleiknum lokið. Komum að vörmu spori með þann síðari.
45. mín
+2
Harley Willard með hörku skot en Guy Smit ver vel.
45. mín
+1
Tvær mínútur í uppbótatíma
Tvær mínútur í uppbótatíma
42. mín
Ökklinn eitthvað að stríða Alex Frey Hilmarssyni. Þetta er ´æi annað sinn sem hann leggst í jörðina í dag vegna meiðsla.
40. mín
Hallgrímur Mar fær sending inn á teiginn og gerir hrikalega vel með því að setja hælinn í boltann og skilja hann eftir fyrir Jakob Snæ en hann var ekki nógu snöggur að átta sig á þessum tilþrifum og Eyjamenn koma boltanum frá.
35. mín
Ingimar Stöle kominn inn á teiginn og fær sendingu frá Sveini Margeiri en skotið slakt, beint í fangið á Guy Smit.
34. mín
Richard King með fína hugmynd en skotið afskaplega slakt og boltinn fer vel framhjá markinu.
30. mín
KA menn klöppuðu boltanum vel hér síðustu mínúturnar en sókninni lauk með fyrirgjöf sem endaði afturfyrir.
23. mín
Sverrir Páll með skot af löngu færi. Stubbur ver boltann í horn. Ekkert markvert kom út úr horninu.
22. mín
MAAAARK!
Jón Ingason
Jón Ingason jafnar metin! Skorar úr aukaspyrnu, setur boltann í markmannshornið!19. mín
MAAAARK
Jóan Símun Edmundsson (stoðsending: Ingimar Torbjörnsson Stöle)
Guðjón Ernir leit hrikalega illa út þarna. Sending inn á teiginn ætluð Ingimar en Guðjón kemst í boltann og virðist ælta að skýla honum útaf en Ingimar nær boltanum af honum og sendir boltann á Jóan sem skorar á opið markið af stuttu færi.13. mín
Sverrir Páll Hjaltested með skalla framhjá! Hörku skalli.
9. mín
Afskaplega róleg byrjun. Liðunum gengur illa að skapa sér almennileg færi.
3. mín
Sveinn Margeir Hauksson fær fyrsta færi leiksins. Á skot rétt fyrir utan vítateiginn en það er slakt og boltinn rúllar framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir koma þessu af stað
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Steinþór Már Auðunsson kemur inn fyrir Kristijan Jajalo sem meiddist í sigrinum á Fylki í síðustu umferð. Pætur Petersen og Ásgeir Sigurgeirsson fá sér sæti á bekknum og Dusan Brkovic og Sveinn Margeir Hauksson koma inn í þeirra stað.
Það eru fimm breytingar á liði ÍBV sem gerði 2-2 jafntefli gegn Fram í síðustu umferð. Guy Smit er kominn aftur í markið.
Michael Jordan Nkololo, Alex Freyr Hilmarsson, Kevin Bru og Richard King koma inn í liðið á kostnað Arnar Breki Gunnarsson, Tómas Bent Magnússon, Viggó Valgeirsson og Oliver Heiðarsson.

Það eru fimm breytingar á liði ÍBV sem gerði 2-2 jafntefli gegn Fram í síðustu umferð. Guy Smit er kominn aftur í markið.
Michael Jordan Nkololo, Alex Freyr Hilmarsson, Kevin Bru og Richard King koma inn í liðið á kostnað Arnar Breki Gunnarsson, Tómas Bent Magnússon, Viggó Valgeirsson og Oliver Heiðarsson.

Fyrir leik
Dómarateymið
Sigurður Hjörtur Þrastarson verður með flautuna í dag. Þórður Arnar Árnason og Eðvarð Eðvarðsson eru honum til aðstoðar. Birgir Þór Þrastarson verður á hliðarlínunni og Bragi Bergmann er eftirlitsmaður KSÍ.

Fyrir leik
ÍBV er í mikilli fallbaráttu. Liðið er í fallsæti með jafn mörg stgi og Fram sem er í öruggu sæti og stigi á eftir Fylki. KA er hins vegar í góðum málum á toppnum í neðri hlutanum.
Jón Arnar Barðdal leikmaður KFG er spámaður umferðarinnar og spáir útisigri.
KA 2 - 3 ÍBV
Held að Ívar Örn fyrirliði KA sé ennþá að fagna eftir markið í bikarúrslitunum, og er víst ekki mjög spenntur fyrir þessum leik á móti baráttuglöðum Vestmannaeyjingum.
2-2 fram að 90. mínútu þar sem Hemmi skiptir sér sjálfur inná og setur úrslitamarkið þegar markvörður KA hreinsar í bakið á honum og inn.

Jón Arnar Barðdal leikmaður KFG er spámaður umferðarinnar og spáir útisigri.
KA 2 - 3 ÍBV
Held að Ívar Örn fyrirliði KA sé ennþá að fagna eftir markið í bikarúrslitunum, og er víst ekki mjög spenntur fyrir þessum leik á móti baráttuglöðum Vestmannaeyjingum.
2-2 fram að 90. mínútu þar sem Hemmi skiptir sér sjálfur inná og setur úrslitamarkið þegar markvörður KA hreinsar í bakið á honum og inn.

Fyrir leik
Tveir í banni
Einn leikmaður úr hvoru liði tekur út leikbann í dag. Daníel Hafsteinsson tekur út bann hjá KA sem fær ÍBV í heimsókn í neðri hlutanum. Hjá Eyjamönnum verður Tómas Bent Magnússon í leikbanni.
Fyrir leik
Liðin mættust tvisvar í deildinni fyrir tvískiptinguna og unnu sína heimaleiki. Fyrst mættust liðin á Akureyri þar sem KA fór með 3-0 sigur af hólmi. Í Eyjum lagði ÍBV KA 2-0 en Richard King fékk að líta rauða spjaldið þegar tæpar 20 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Fyrir leik
Góðan daginn
Verið velkomin í beina textalýsingu af leik KA og ÍBV í niðri hluta Bestu deildarinnar. Leikurinn fer fram á Greifavellinum á Akureyri en undirritaður er ekki á staðnum svo lýst verður því sem blasir við í sjónvarpinu.



