Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
ÍBV
1
1
Keflavík
0-1 Muhamed Alghoul '51
Eiður Aron Sigurbjörnsson '69 , víti 1-1
07.10.2023  -  14:00
Hásteinsvöllur
Besta-deild karla - Neðri hluti
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Muhamed Alghoul
Byrjunarlið:
12. Guy Smit (m)
5. Jón Ingason
7. Guðjón Ernir Hrafnkelsson ('45)
10. Kevin Bru ('45)
14. Arnar Breki Gunnarsson ('88)
16. Tómas Bent Magnússon
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
24. Michael Jordan Nkololo ('60)
26. Richard King
42. Elvis Bwomono
44. Arnór Sölvi Harðarson ('60)

Varamenn:
21. Dagur Einarsson (m)
6. Jón Jökull Hjaltason
8. Bjarki Björn Gunnarsson ('60)
17. Sigurður Grétar Benónýsson ('45)
19. Breki Ómarsson ('88)
22. Oliver Heiðarsson ('60)
25. Alex Freyr Hilmarsson ('45)

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Elías J Friðriksson
Mikkel Vandal Hasling
Halldór Jón Sigurður Þórðarson
Elías Árni Jónsson

Gul spjöld:
Jón Ingason ('91)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
ÍBV er fallið!
91. mín Gult spjald: Jón Ingason (ÍBV)
Jonni traðkar á mótherja
90. mín
3 mínútum bætt við
89. mín
Alex í dauðafæri en skallar yfir!
89. mín
Ekkert kom úr horninu
88. mín
Inn:Breki Ómarsson (ÍBV) Út:Arnar Breki Gunnarsson (ÍBV)
88. mín
ÍBV fær horn
83. mín
Inn:Valur Þór Hákonarson (Keflavík) Út:Edon Osmani (Keflavík)
76. mín
Sigurður Grétar með skot í slá og hugsanlega inn en ekki mark!!
75. mín Gult spjald: Frans Elvarsson (Keflavík)
Brot á miðjum velli. Óþarfi
69. mín Mark úr víti!
Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV)
Af öryggi!! Er líf?
68. mín
ÍBV fær víti!!!
68. mín
Inn:Aron Örn Hákonarson (Keflavík) Út:Magnús Þór Magnússon (Keflavík)
67. mín
Annað horn hjá ÍBV og aftur ekkert
66. mín
ÍBV fær horn og ekkert varð úr
62. mín
Inn:Dagur Ingi Valsson (Keflavík) Út:Ísak Daði Ívarsson (Keflavík)
60. mín
Inn:Oliver Heiðarsson (ÍBV) Út:Arnór Sölvi Harðarson (ÍBV)
60. mín
Inn:Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV) Út:Michael Jordan Nkololo (ÍBV)
58. mín
Alex með skalla en beint á markvörð
55. mín
Edon Osmani einn á móti markmanni en setur hann beint á Guy
51. mín
Úff skelfilegur varnarleikur og Keflavík skorar
51. mín MARK!
Muhamed Alghoul (Keflavík)
Stoðsending: Sami Kamel
49. mín
Jordan í flottun færi en skýtur beint á markmann
48. mín
ÍBV fær horn
46. mín
Leikur hafinn
45. mín
Inn:Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV) Út:Kevin Bru (ÍBV)
Tvöföld skipting hjá ÍBV
45. mín
Inn:Sigurður Grétar Benónýsson (ÍBV) Út:Guðjón Ernir Hrafnkelsson (ÍBV)
Tvöföld skipting hjá ÍBV
45. mín
Hálfleikur
Staðan svört fyrir ÍBV í hálfleik
Útlitið er dökkt fyrir Eyjamenn í hálfleik svo einfalt er það. Eftir heldur rólegan fyrri hálfleik er staðan því sem næst sú sama. Sex mörk þurfa þeir sem stendur til að halda sæti sínu og myndu með því fella HK sem er sem stendur 1-0 undir gegn KA á Akureyri.
Sverrir Örn Einarsson
45. mín
Hálfleikur
Frekar dapur fyrri hálfleikur búinn
45. mín
Guðjón Ernir situr eftir meiddur
37. mín
Keflavík fær horn sem ekkert verður úr
36. mín
Betri en klára ekki sóknir sínar
35. mín
Vantar eitthvað í ákefð hjá ÍBV
29. mín
Fylkismenn eru komnir yfir í Árbæ. Sjö marka sigur og ekkert minna er það sem ÍBV þarf eins og staðan er til þess að tryggja sæti sitt að ári.
Sverrir Örn Einarsson
27. mín
Jordan með skot yfir úr teingnum
26. mín Gult spjald: Nacho Heras (Keflavík)
Brot á miðjum velli
15. mín
Tómas Bent með fínan skalla en beint á markvörð
10. mín
ÍBV fær horn en ekkert verður úr því
8. mín
Arnar Breki í góðu færi en varið í horn. Ekkert varð úr því
4. mín
Edon í hörkufæri en klárr illa
4. mín
Sólin komin
2. mín
Jordan í færi en yfir
1. mín
Leikur hafinn
Nú byrjar þetta! Kef byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin eru mætt í hús Eyjamenn gera eina breytingu á liði sínu frá sigrinum gegn HK.
Felix Örn Friðriksson er í leikbanni í liði ÍBV í dag og missir þar með af sínum fyrsta leik í sumar. Inn í hans stað kemur Arnór Sölvi Harðarson

Gestirnir úr Keflavík gera þá tvær breytinngar á byrjunarliði sínu frá tapinu gegn Fylki. Oleksii Kovtun og Stefan Alexander Ljubicic fara úr byrjunarliði þeirra milli leikja og inn í þeirra stað koma þeir Magnús Þór Magnússon og Ísak Daði Ívarsson.
Sverrir Örn Einarsson
Fyrir leik
Spáir ÍBV sigri, en samt falli
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði Vestra sem verður í Bestu deildinni á næsta tímabili, spáir í lokaumferðina.

ÍBV 3 - 1 Keflavík
Sérstakur leikur sem ÍBV klárar en úrslit annara leikja verða þeim óhagstæð. Fallnir Keflvíkingar mæta gíraðir til leiks en tapa samt og draga ÍBV niður með sér í Lengjudeildina.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Hemmi Hreiðars: Þá veit ég að góðir hlutir gerast
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fótbolti.net ræddi við Hermann Hreiðarsson og spurði hann út í leikinn.

   05.10.2023 10:30
Fjögur lið geta fallið í lokaumferðinni - Nokkrar sviðsmyndir

„Mér líst vel á leikinn, við erum búnir að vera í fínu standi í síðustu leikjum og það er hugur í mannskapnum. Við vitum að þetta er allt galopið, erum að fara í Hásteinsvöll í lokaleik og menn munu tækla þetta með stæl," sagði Hemmi.

Fara Eyjamenn inn í leikinn með því hugarfari að vinna leikinn stórt? Þrjú stig duga liðinu einungis ef Fylkir tapar gegn Fram. Annars þarf ÍBV að vinna stórt.

„Nei, hugarfarið er fyrst og fremst að ná í þrjú stig. Það er ekkert sjálfgefið, við verðum að vera með hausinn á hárréttum stað og fylgja eftir góðum sigri á móti HK. Þá veit ég að góðir hlutir gerast."

Felix Örn Friðriksson tekur út leikbann í leiknum. Er einhver önnur breyting í kortunum á leikmannahópi ÍBV?

„Það eru nokkrir hjá okkur sem eru búnir að vera smá laskaðir. Það er ekki alveg ljóst með möguleikann á því að þeir geti spilað og verður það ekki ljóst fyrr en á leikdegi hvort að við náum að nýta þá eitthvað."

Keflvíkingar munu vilja enda tímabilið með sæmd
Keflavík er fallið og verður í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Við hvernig Keflavíkurliði býst Hemmi?

„Þetta eru fótboltamenn eins og við og þeir munu spila upp á stoltið, vissulega gæti verið erfitt að gíra sig upp fyrir leikinn en menn reyna alltaf að standa sig vel og vera sjálfum sér til sóma. Við áttum okkur á því að þrátt fyrir að þeir séu fallnir þá munu þeir vilja enda tímabilið sem sæmd."

Munu fylgjast vel með hinum leikjunum
Munu Eyjamenn fylgjast með gangi mála á Akureyri og í Árbænum?

„Já, að sjálfsögðu. Við verðum með puttann á púlsinum á því hvernig dagurinn þróast úrslitalega séð. Við verðum að horfa á aðra leiki, þetta er ekki alfarið í okkar höndum."

Munu skilja allt eftir á Hásteinsvelli
Hvernig er stemningin í hópnum?

„Það er bullandi trú á þessu, við höfum aldrei misst trúna og í síðustu sjö leikjum erum við með einn tapaðan leik. Það er búinn að vera ágætis spilamennska og það er hugur í okkur. Það var mjög nærandi að fá góðan og lífsnauðsynlegan sigur á móti HK. Þetta er annar leikur sem er upp á líf og dauða. Við eigum eftir að leggja allt í sölurnar og rúmlega það; munum skilja allt eftir á Hásteinsvelli."

Vilja sýna að þeir eigi heima í efstu deild
Eru margir leikmenn að spila upp á sína framtíð hjá ÍBV?

„Já, það er engin spurning, þannig er bara staðan. Menn vilja sýna sig og sanna, að þeir eigi heima í liðinu og að þeir eigi heima í efstu deild," sagði Hemmi.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðstoðardómarar: Egill Guðvarður Guðlaugsson Aðstoðardómari og Þórður Arnar Árnason.
Eftirlitsmaður: Frosti Viðar Gunnarsson.
Varadómari: Twana Khalid Ahmed.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Í banni Felix Örn Friðriksson getur ekki hjálpað sínum mönnum í ÍBV þar sem hann tekur út bann vegna uppsafnaðra áminninga. Sindri Þór Guðmundsson og Oleksii Kovtun taka út leikbann hjá Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Gunnar Heiðar segir að fótboltinn í Vestmannaeyjum sé á slæmum stað
   03.10.2023 21:29
Dregur upp svarta mynd af stöðu fótboltans í Eyjum
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Leikir liðanna í sumar ÍBV sigur í 4. umferð
Liðin mættust í 4. umferð Bestu-deildarinnar 29. apríl en þá var leikið á gervigrasvellinum við Reykjaneshöll og ÍBV vann 1 - 3 sigur. Ekkert var skorað í fyrri hálfleik en Sami Kamel kom Keflavík yfir eftir rúmlega klukkutíma leik. ÍBV svaraði um hæl með þremur mörkum.

Keflavík 1 - 3 ÍBV
1-0 Sami Kamel ('66)
1-1 Hermann Þór Ragnarsson ('70)
1-2 Sverrir Páll Hjaltested ('74)
1-3 Oliver Heiðarsson ('79)
Lestu um leikinn

Mynd: Fótbolti.net


Rautt spjald í 15. umferð

Liðin mættust svo aftur 16. júlí og þá gekk ýmislegt á. Felix Örn Friðriksson misnotaði vítaspyrnu eftir stundarfjórðung en Hermann Þór Ragnarsson kom ÍBV yfir á markamínútunni, þeirri 43. Sami Kamel jafnaði metin í byrjun seinni hálfleiks og eftir klukkutíma leik fékk Sindri Snær Magnússon rautt spjald fyrir ljótt brot.

ÍBV 1 - 1 Keflavík
0-0 Felix Örn Friðriksson )'15 , misnotað víti)
1-0 Hermann Þór Ragnarsson ('43)
1-1 Sami Kamel ('48)
Rautt spjald Sindri Snær Magnússon, Keflavík ('64)
Lestu um leikinn

Mynd: Fótbolti.net
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fjögur lið í fallhættu með Keflavík í dag Staðan er sú að leikurinn í dag skiptir Keflavík engu máli, þeir eru fallnir niður í Lengjudeildina. Hann er hinsvegar gríðarlega mikilvægur fyrir ÍBV sem á möguleika á að bjarga sér með sigri og hagstæðum úrslitum.

Hinir leikirnir
14:00 KA - HK
14:00 Fylkir - Fram

ÍBV getur með sigri komist uppfyrir Fylki og jafnað HK og Fram að stigum að því gefnu að hin liðin vinni ekki á sama tíma. Þá á samt eftir að hugsa um markamun. Reyndar er ljóst að innbyrðis viðureign Fylkis og Fram þýðir að ÍBV kæmist bara upp fyrir annað þeirra eða hvorugt eftir úrslitum.

Staðan
7. KA - 38 stig (-4)
8. Fram - 27 stig (-12)
9. HK - 27 stig (-13)
10. Fylkir- 26 stig (-16)
11. ÍBV - 24 stig (-19)
12. Keflavík - 15 stig (-27)
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Bein textalýsing frá Hásteinsvelli Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.

Hér mætast ÍBV og Keflavík í lokaumferð í neðri hluta Bestu-deildar karla en leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir heimamenn sem þurfa að bjarga sér frá falli.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Besta-deild karla - Efri hluti
14:00 Víkingur R.-Valur (Víkingsvöllur)
14:00 FH-KR (Kaplakrikavöllur)

Besta-deild karla - Neðri hluti
14:00 ÍBV-Keflavík (Hásteinsvöllur)
14:00 Fylkir-Fram (Würth völlurinn)
14:00 KA-HK (Greifavöllurinn)
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
4. Nacho Heras
5. Magnús Þór Magnússon (f) ('68)
6. Sindri Snær Magnússon
9. Muhamed Alghoul
19. Edon Osmani ('83)
23. Sami Kamel
24. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
25. Frans Elvarsson (f)
26. Ísak Daði Ívarsson ('62)

Varamenn:
12. Bergsteinn Magnússon (m)
2. Alex Þór Reynisson
2. Gabríel Máni Sævarsson
9. Gabríel Aron Sævarsson
10. Dagur Ingi Valsson ('62)
18. Valur Þór Hákonarson ('83)
21. Aron Örn Hákonarson ('68)

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ)
Ómar Jóhannsson
Þórólfur Þorsteinsson
Gunnar Örn Ástráðsson
Luka Jagacic
Stefán Bjarki Sturluson
Guðmundur Árni Þórðarson

Gul spjöld:
Nacho Heras ('26)
Frans Elvarsson ('75)

Rauð spjöld: