Fotbolti.net
Besta deildin
@thorsteinnhaukuÞorsteinn Haukur Harðarson
Þorsteinn Haukur Harðarson
FH
FH
Besta-deild kvenna
BIRTU völlurinn
Hlýtt en svolítið hvasst
0 - 4
Þór/KA
Þór/​KA
0 - 17' Sandra María Jessen 0 - 227' Sandra María Jessen 0 - 385' Sandra María Jessen 0 - 488' Sandra María Jessen
Dómari: Atli Haukur Arnarsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Sandra María sá um FH

Hvað réði úrslitum?

Færanýting fyrst og fremst. Mér fannst þetta eiginlega ekki vera 4-0 leikur. Munurinn var sá að Þór/KA nýtti sín færi

Bestu leikmenn

1. Sandra María Jessen

Hún skorar 4 mörk í 4-0 sigri. Þarf ég að segja meira?

2. Lidija Kulis

Fannst hún öflug í vörninni. Lara hefði líka komið til greina

Atvikið

Líklega þriðja mark Þórs/KA í lokin. Fram að þeim tíma hafði FH liðið verið líklegra í seinni hálfleiknum og hafði maður á tilfiningunni að mark frá FH myndi setja lokamínúturnar í uppnám. Þriðja mark leiksins kom hinsvegar frá gestunum og það kláraði leikinn

Hvað þýða úrslitin?

Bæði lið eru með þrjú stig eftir tvo leiki. FH heimsækir Breiðablik í næstu umferð en Þór/KA fær Þrótt í heimsókn.

Vondur dagur

Verðum að setja FH-liðið hérna. Færanýtingin var rosalega döpur hjá fremstu leikmönnum. Að sama skapi var varnarleikurinn oft klaufalegur í aðdraganda marka Þórs/KA

Dómarinn - 8,5

Atli Haukur var bara ljómandi fínn í dag. Ég hef ekkert út á hans frammistöðu að setja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.