Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Víkingur R.
Víkingur R.
Besta-deild kvenna
Víkingsvöllur
Ákveðinn hliðarvindur. Sólin skín þó og hiti um 10 gráður.
2 - 2
Fylkir
Fylkir
Sigdís Eva Bárðardóttir 43'1 - 01 - 144' Mist Funadóttir1 - 247' Eva Rut Ásþórsdóttir (víti)Birta Birgisdóttir 58'2 - 2
Dómari: Andri Vigfússon
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Stál í stál í Hamingjunni

Hvað réði úrslitum?

Erfitt að festa fingur á hvað það kann að vera. Víkingar ólíkir sjálfum sér í byrjun þó þær hafi farið vaxandi er leið á hálfleikinn. Það er dýrt að misnota víti og ennþá dýrara að halda ekki einbeitingu í blálok hálfleiks verandi nýkomnar yfir. Það er þó þannig að ástæða þess að ekki gekk betur hjá heimakonum er það að Fylkiskonur stigu upp og gerðu betur. Þær unnu sig til baka og jöfnuðu rétt um 60 sekúndum eftir að hafa lent undir. Þær sóttu vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks og komust yfir. Heilt yfir jafntefli sanngjörn úrslit.

Bestu leikmenn

1. Mist Funadóttir

Gerir mistök sem kosta mark og bætir upp fyrir þau mínútu síðar. Alvöru karakter það. Auk þess átti hún fínan leik í vinstri bakverðinum fyrir Fylkiskonur. Verð líka að minnast á Tinnu Brá markvörð sem að gerði frábærlega í að verja víti sem hún fékk dæmt á sig sjálf.

2. Sigdís Eva Bárðardóttir

Fiskað víti, mark og stoðsending. Á öðrum degi hefði þetta aldrei verið spurning en næst best er hennar hlutskipti í dag. Óheppin að tryggja liði sínu ekki sigur þegar skot hennar úr teignum small í þverslánni.

Atvikið

Held að þessar 60 sekúndur þar sem MIst Funadóttir fór úr skúrk í hetju hljóta að verða að vera atvik leiksins í þetta sinn.

Hvað þýða úrslitin?

Heimakonur í Víkingum sitja í 3.sæti deildarinnar með fjögur stig. Fylkiskonur í því 7. með tvö stig.

Vondur dagur

Shaina Faiena Ashouri fór illa með gullið tækifæri er hún misnotaði vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum. Var þess utan ekkert slök en hún er eflaust ósátt með sjálfa sig.

Dómarinn - 7

Báðir vítadómarnir líklegast réttir. Þess utan leyfði Andri leiknum að fljóta nokkuð vel og var samkvæmur sjálfum sér í ákvarðanatöku. Ekkert upp á hann að klaga.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.