Leik lokið!
Njarðvíkingar komast aftur á sigurbraut og tilla sér á toppinn í bili hið minnsta.
Viðtöl og skýrsla væntanleg.
92. mín
Vandræðagangur í öftustu línu Njarðvíkur en Gunnar Oddur flautar og boltinn farið útaf.
Þarna sluppu Njarðvíkingar.
91. mín
Hugsa að uppbótartíminn sé líklega um þrjár mínútur ef ég ætti að giska.
90. mín
InnSlavi Miroslavov Kosov
ÚtDominik Radic
87. mín
NJARÐVÍKINGAR AÐ GANGA FRÁ ÞESSU!
Dominik Radic
Amin Cosic er maðurinn á bakvið þetta mark! Gerði gríðarlega vel og kom sér í gott skotfæri og lét vaða en Vilhelm Þráinn ver boltann en heldur honum þó ekki og Dominik Radic kemur með tap-in.86. mín
Bragi Karl með lúmska tilraun en Aron Snær vel vakandi.
84. mín
InnHrafn Hallgrímsson
ÚtÁgúst Unnar Kristinsson
84. mín
InnFreysteinn Ingi Guðnason
ÚtKenneth Hogg
79. mín
Ótrúlegt að ÍR hafi ekki skorað!
Fengu hvert tækifærið á fætur öðru en varnarmenn Njarðvíkur henda sér fyrir!
75. mín
InnSæmundur Sven A Schepsky
ÚtBergvin Fannar Helgason
75. mín
InnSvavar Örn Þórðarson
ÚtHreggviður Hermannsson
75. mín
InnAmin Cosic
ÚtOumar Diouck
73. mín
Njarðvíkingar í hörku færi og Kaj Leo er í frábæru skotfæri en reynir að koma boltanum fyrir markið frekar en þar mætir Arnór Gauti og hreinsar í horn.
72. mín
Bergvin Fannar að nær að stinga sér fram fyrir varnarmenn Njarðvíkur og reynir að koma boltanum fyrir en Sigurjón Már hendir sér fyrir.
70. mín
Hákon Dagur stingur Sæþóri Ívan í gegn en fyrsta snertingin svíkur hann og Aron Snær nær að pikka boltanum í horn.
Það kemur svo ekkert úr hornspyrnunni.
68. mín
Oumar Diouck við það að komast í gegn en Arnór Gauti með nauðsynlega tæklingu.
67. mín
ÍR reyna að finna Sæþór Ívan á bakvið vörn Njarðvíkinga en vindurinn tók þennan bolta til Aron Snærs.
65. mín
InnRóbert Elís Hlynsson
ÚtRenato Punyed Dubon
64. mín
Njarðvíkingar að komast í flotta stöðu en skotið frá Oumar Diouck fær varla að teljast sem skot. Fór hátt og langt framhjá.
61. mín
Vert að minnast á það að núna eru það ÍR-ingar sem spila með vindinn í bakið.
60. mín
Óliver Elís tekur hornið en spyrnan svífur yfir allan pakkan og aftur fyrir á fjær.
59. mín
Njarðvíkingar heppnir að skora ekki sjálfsmark! Boltinn í horn.
58. mín
Kaj Leo með skemmtilega takta og kemur sér framhjá Óliver Elís en fyrirgjöfin í hliðarnetið.
56. mín
Gult spjald
Renato Punyed Dubon
Fer heldur fast í Joao Ananias og uppsker gult.55. mín
Bragi Karl að komast í færi en Sigurjón Már gerir virkilega vel og lokar á það.
53. mín
Njarðvíkingar þjarma að marki ÍR og Vilhelm Þráinn býður upp á hörku vörslu! Alvöru handbolta markvarsla og bjargar því að Njarðvíkignar komi inn þriðja markinu!
52. mín
Gult spjald
Marc Mcausland
Tekur Oumar Diouck niður og fær réttilega spjald.50. mín
Sæþór Ívan með frábært skot sem Aron Snær ver stórkostlega!
48. mín
Bragi Karl með skot hátt yfir markið.
47. mín
Joao Ananias kemur boltanum fyrir markið á Oumar Diouck sem nær þó ekki að koma skotinu að marki!
46. mín
Dominik Radic sparkar okkur af stað aftur.
46. mín
InnAlexander Kostic
ÚtKristján Atli Marteinsson
46. mín
InnHákon Dagur Matthíasson
ÚtMarteinn Theodórsson
45. mín
+2
Horn skapar enn eina hættuna inni á teig Njarðvíkinga en þeir ná að koma boltanum burt og Gunnar Oddur flautar til hálfleiks!
ÞVÍLÍKUR FYRRI HÁLFLEIKUR! !
45. mín
DAUUUÐAFÆRI!!
+1
ÓTRÚLEGT AÐ ÍR HAFI EKKI SKORAÐ!!
Óliver Elís með flottan bolta fyrir markið og það er ómögulegt að sjá hver er hvað þarna í þvögunni en boltinn fer í skeytina og fellur svo niður og Njarðvíkingar henda sér niður hver á eftir öðrum fyrir boltann. Sigurjón Már nær svo að henda sér fyrir síðasta skotið áður en ÍR fær horn!
45. mín
Gult spjald
Tómas Bjarki Jónsson
Tekur Sæþór Ívan niður.43. mín
Gult spjald
Ibrahima Kalil Camara Diakite
Sparkar boltanum burt eftir flaut hjá dómaranum. Óþarfa spjald hjá Ibra.38. mín
Joao Ananias með tilraun hátt yfir markið.
37. mín
Njarðvíkingar reyna áhugaverða útfærslu á horninu en missa boltann svo aftur fyrir.
36. mín
Kaj Leo með tilraun sem fer af varnarmanni ÍR og Njarðvíkingar fá horn.
Heimamenn verið hættulegir í hornspyrnunum til þessa.
34. mín
Njarðvíkingar koma boltanum á Kaj Leo úti vinstra meginn sem kemur með hættulegan bolta fyrir markið en Arnór Gauti bjargar því að boltinn berist til Dominik Radic sem var klár á fjærstönginni.
32. mín
Njarðvíkingar sækja hratt og Oumar Diouck kemur með flottan bolta fyrir markið en Dominik Radic nær ekki að stýra boltanum í átt að marki.
31. mín
Renato Punyed með tilraun hátt yfir markið.
30. mín
ÍR-ingar að komast í hættulega stöðu en Arnar Helgi gerir frábærlega í vörn Njarðvíkinga.
27. mín
ÍR-ingar reyna að þræða Sæþór Ívan í gegn en Aron Snær vel vakandi og kemur út og sparkar boltanum frá.
26. mín
Njarðvíkingar með skemmtilega útfærslu á hornspyrnu en Joao Ananias nær ekki að koma skotinu að marki.
24. mín
Oumar Diouck æðir í átt að marki ÍR og fellur við en Gunnar Oddur dæmir ekkert. Oumar Diouck vinnur svo boltann aftur og á hörku skot sem Vilhelm Þráinn ver virkilega vel!
23. mín
DAUÐAFÆRI!!
ÍR í daaaaauðaafærri!!!
Koma boltanum inn á teig þar sem Bragi Karl sýndist mér eiga skot sem Tómas Bjarki bjargar á línu en boltinn berst svo til Marteins Theodórssonar sem kemur öðru skoti á markið en Aron Snær ver það og heldur svo boltanum!
Þarna hefðu ÍR-ingar hæglega geta komið sér á blað!
21. mín
NJARÐVÍKINGAR TVÖFALDA!
Arnar Helgi Magnússon (stoðsending: Oumar Diouck)
Oumar Diouck tekur flotta hornspyrnu á nærstöngina þar sem Arnar Helgi flikkar boltanum aftur fyrir sig beint í fjærhornið!
20. mín
Bragi Karl í flottu skotfæri en Aron Snær ver þetta nokkuð þægilega.
18. mín
Oumar Diouck með fyrirgjöf sem verður að hálfgerðu skoti sem Vilhelm Þráinn tekur.
17. mín
DAUÐAFÆRI!!!
Arnar Helgi með stórkostlegan bolta úr djúpinu beint í hlaupið hjá Oumar Diouck sem er einn á Vilhem Þráinn og reynir að lyfta boltanum yfir hann en Vilhelm Þráinn grípur boltann.
Þarna var svo sannarlega færi fyrir heimamenn að komast í 2-0!
14. mín
Flott aukaspyrna á kollinn á Marc McAusland en skallinn rétt framhjá.
14. mín
Gult spjald
Arnar Helgi Magnússon
Tekur Sæþór Ívan niður sem var að stinga sér í gegn.13. mín
ÍR með hættulegan bolta fram á við ætlað Bergvin Fannari en Aron Snær kemur vel út og handsamar boltann.
10. mín
Dominik Radic með skot sem fer yfir markið.
8. mín
Njarðvíkingar með vindinn í bakið og vonast til þess að ná að nýta sér það til fulls.
5. mín
NJARÐVÍKINGAR TAKA FORYSTU!
Dominik Radic (stoðsending: Tómas Bjarki Jónsson)
Frábærlega spilað hjá Njarðvíkingum! Tómas Bjarki fer í þríhyrning við Kaj Leo og lagði boltann svo fyrir markið þar sem Dominik Radic stingur sér framfyrir varnarmann ÍR og setur hann í netið!
1. mín
Það eru gestirnir sem byrja með boltann.
0. mín
Spámaður umferðarinnar
Landsliðsmaðurinn Bjarki Steinn Bjarkason, leikmaður Venezia á Ítalíu, er spámaður umferðarinnar og er hann ekkert sérlega bjartsýnn fyrir leik Njarðvíkur og ÍR.
Njarðvík 0 - 0 ÍR
Dómarinn flautar af á 80. mín vegna áhugaleysis

0. mín
Njarðvíkingar framlengja við lykilmenn
Arnar Helgi Magnússon og Kenneth Hogg hafa báðir framlengt samningi sínum við Njarðvíkinga til ársins 2026.
„Arnar er frábær liðsmaður og félagsmaður sem hefur leikið hinar ýmsu stöður fyrir félagið frá því hann kom til okkar fyrst árið 2016, og nú síðast myndað frábært hafsentapar með Sigurjóni Má í upphafi leiktíðar þar sem Arnar hefur spilað hverja einustu mínútu tímabilsins," segir í tilkynningu Njarðvíkingur.
„Kenny hefur svo sannarlega verið dyggur þjónn fyrir Njarðvíkurliðið allt frá árinu 2017, eða síðan hann kom gekk til liðs við okkur frá Tindastól þar sem hann lék í 1 og hálfa leiktíð."
„Kenny hefur leikið í heildina 189 meistaraflokksleiki fyrir Njarðvík á vegum KSÍ og skorað í þeim 74 mörk sem gerir hann af áttunda leikjahæsta Njarðvíking sögunnar, og jafn markahæsta leikmann í sögu Knattspyrnudeildarinnar, en hann jafnaði met Sævars Eyjólfssonar í síðasta leik gegn Fjölnir."
„Þess að auki ber Kenny í dag fyrirliðaband Njarðvíkur og er mikilvægur leikmaður innan sem utan vallar í félaginu," segir í tilkynningu Njarðvíkur.


0. mín
Innbyrðis viðureignir
Liðin hafa mæst 27 sinnum í mótsleikjum á vegum KSÍ samkv. vef KSÍ.
Njarðvíkingar hafa 9 sinnum (33%) haft betur.
ÍR hafa 13 sinnum (48%) haft betur.
Liðin hafa þá skilið jöfn fimm sinnum (19%)

0. mín
Marc McAusland mætir gömlu félögunum
Marc McAusland mætir sínum gömlu félögum hér í dag. Marc McAusland spilaði í 4 ár fyrir Njarðvíkinga og bar meðal annars fyrirliðabandið á þeim tíma.
Marc McAusland var í skemmtilegu viðtali hjá ÍR hlaðvarpinu fyrr í vikunni þar sem hann fór yfir ferilinn. Hægt er að nálgast þáttin hjá öllum helstu hlaðvarpsveitum.
0. mín
Þriðja liðið
Gunnar Oddur Hafliðason verður með flautuna í kvöld og honum til aðstoðar verða Guðni Freyr Ingvason og Ragnar Arelíus Sveinsson.
Gylfi Þór Orrason er eftirlitsmaður.

0. mín
Njarðvík
Njarðvíkingar hafa farið frábærlega af stað og sitja í 2.sæti deildarinnar stigi á eftir toppsætinu eftir sex umferðir.
Njarðvíkingar hafa unnið fjóra, gert eitt jafntefli og tapað einum.
Njarðvíkingar töpuðu sínum fyrsta leik í síðustu umferð þegar þeir heimsóttu Fjölni í Egilshöll í uppgjöri efstu liðana.
Oumar Diocuk er ásamt Oliver Heiðarssyni (ÍBV) markahæstur í Lengjudeildinni með 5 mörk.
Njarðvíkignar hafa skorað 13 mörk og fengið á sig 6. Eru þar jafnir Fjölni með flest mörk skoruð og jafnir Keflavík með fæst mörk fengin á sig.

0. mín
ÍR
ÍR hefur farið þokkalega af stað og sitja í 9.sætinu með 6 stig eftir jafn margar umferðir.
ÍR-ingar hafa unnið einn, gert þrjú jafntefli og tapað tveimur.
ÍR hafa verið að taka stig af liðum eins og Keflavík, Grindavík og ÍBV.
Bragi Karl Bjarkason er markahæstur í liði ÍR með 3 mörk. ÍR hefur skorað 6 mörk og fengið á sig 11.

0. mín
Lengjudeildin
Lengjudeildin hefur farið frábærlega af stað og við höfum fengið fullt af frábærum leikjum sem og skemmtilegum úrslitum.
Lengjudeildin hefur sennilega aldrei verið meira spennandi þar sem öll lið virðast geta tekið stig af hvor öðru.
Staðan í Lengjunni fyrir 7.umferð:
1.Fjölnir - 14 stig
2.Njarðvík - 13 stig
3.Grótta - 10 stig
4.Keflavík - 8 stig
5.Afturelding - 8 stig
6.ÍBV - 7 stig
7.Dalvík/Reynir - 6 stig
8.Þór Ak - 6 stig (5 Leikir)
9.ÍR - 6 stig
10.Þróttur R. - 5 stig
11.Grindavík - 4 stig (5 Leikir)
12.Leiknir R. - 3 stig

0. mín
Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Rafholtsvellinum þar sem heimamenn í Njarðvík taka á móti ÍR í 7.umferð Lengjudeildarinnar.






