Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
Í BEINNI
Meistaradeild kvenna - forkeppni
Breiðablik
LL 0
2
Sporting
Þór
0
3
ÍBV
0-1 Sverrir Páll Hjaltested '29
0-2 Oliver Heiðarsson '49
0-3 Sverrir Páll Hjaltested '94
Ragnar Óli Ragnarsson '95
27.07.2024  -  15:00
VÍS völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Sverrir Páll Hjaltested
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
3. Birgir Ómar Hlynsson
6. Árni Elvar Árnason ('59)
7. Rafael Victor
9. Alexander Már Þorláksson ('77)
11. Marc Rochester Sörensen
15. Kristófer Kristjánsson ('89)
19. Ragnar Óli Ragnarsson
20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson ('59)
22. Einar Freyr Halldórsson ('59)
23. Ingimar Arnar Kristjánsson

Varamenn:
12. Sigurður Jökull Ingvason (m)
2. Elmar Þór Jónsson ('59)
10. Aron Ingi Magnússon ('59)
16. Nökkvi Hjörvarsson
18. Sverrir Páll Ingason ('77)
21. Sigfús Fannar Gunnarsson ('59)
30. Bjarki Þór Viðarsson ('89)

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Sveinn Leó Bogason
Stefán Ingi Jóhannsson
Sveinn Orri Vatnsdal Sveinsson
Jónas Leifur Sigursteinsson

Gul spjöld:
Ragnar Óli Ragnarsson ('35)
Vilhelm Ottó Biering Ottósson ('39)

Rauð spjöld:
Ragnar Óli Ragnarsson ('95)
Leik lokið!
Öruggur sigur Eyjamanna staðreynd. Viðtöl og skýrsla kemur inn á síðuna síðar í dag.
95. mín Rautt spjald: Ragnar Óli Ragnarsson (Þór )
Sigurður Arnar lá meiddur og Ragnar Óli reyndi að rífa hann á fætur og fær að launum gult spjald. Seinna gula.
94. mín MARK!
Sverrir Páll Hjaltested (ÍBV)
MAAAARK! Sverrir Páll að gera endanlega út um þetta. Kemst í gegn og á skot sem Aron Birkir ver en Sverrir nær boltanum aftur og setur boltann inn í opið markið.
93. mín
Elmar Þór Jónsson með viðstöðulaust skot. Hittir boltann illa og hann fer vel framhjá.
90. mín
Sex mínútur í uppbótatíma.
90. mín
Sverrir Páll Hjaltested vinnur boltann á hættulegum stað. Sendir boltann á Oliver sem á skot sem Aron Birkir ver vel.
89. mín
Inn:Bjarki Þór Viðarsson (Þór ) Út:Kristófer Kristjánsson (Þór )
85. mín
Rólegt undanfarnar mínútur. Þetta er að renna úr greipum Þórsara.
80. mín
Inn:Sigurður Grétar Benónýsson (ÍBV) Út:Jón Ingason (ÍBV)
80. mín
Inn:Henrik Máni B. Hilmarsson (ÍBV) Út:Viggó Valgeirsson (ÍBV)
78. mín
Ingimar Arnar Kristjánsson kemst í gegn en Hjörvar Daði ver frá honum.
77. mín
Inn:Sverrir Páll Ingason (Þór ) Út:Alexander Már Þorláksson (Þór )
77. mín
Inn:Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV) Út:Nökkvi Már Nökkvason (ÍBV)
69. mín
Jón Ingason nær ekki að stýra boltanum á markið með höfðinu eftir hornspyrnu.
65. mín
Marc Sörensen með skot yfir markið beint úr aukaspyrnunni
65. mín Gult spjald: Sigurður Arnar Magnússon (ÍBV)
Þór fær aukaspyrnu á hættulegum stað
61. mín
Inn:Vicente Valor (ÍBV) Út:Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV)
61. mín
Inn:Felix Örn Friðriksson (ÍBV) Út:Eyþór Orri Ómarsson (ÍBV)
59. mín
Inn:Aron Ingi Magnússon (Þór ) Út:Árni Elvar Árnason (Þór )
59. mín
Inn:Sigfús Fannar Gunnarsson (Þór ) Út:Vilhelm Ottó Biering Ottósson (Þór )
59. mín
Inn:Elmar Þór Jónsson (Þór ) Út:Einar Freyr Halldórsson (Þór )
57. mín
Þór fær horn. Skot sem fer af varnarmanni og annað horn sem kemur ekkert úr
49. mín MARK!
Oliver Heiðarsson (ÍBV)
MAAAARAK ÍBV er komið með tveggja marka forystu! Alex Freyr brýtur sér leið inn á teiginn, heldur auðvelt fyrir hann. Leggur síðan boltann út í teiginn og Oliver er mættur og skorar
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
+3 Það er kominn hálfleikur. Komum með seinni hálfleikinn að vörmu spori.
44. mín
Þór fær horn. Ekkert verður úr því en Nökkvi Már Nökkvason lá eftir í teignum. Hélt eitthvað um bringuna á sér en er staðinn upp.
39. mín Gult spjald: Vilhelm Ottó Biering Ottósson (Þór )
Brýtur á Viggó Valgeirssyni. Viggo lá eftir í smá stund en er klár í slaginn.
38. mín
Sverrir Páll í hörku færi en setur boltann framhjá! Hefði átt að gera betur þarna.
35. mín Gult spjald: Ragnar Óli Ragnarsson (Þór )
29. mín MARK!
Sverrir Páll Hjaltested (ÍBV)
Stoðsending: Oliver Heiðarsson
MAAARK! Sverrir Páll skallar boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Oliver Heiðarssyni. Það klassíska, þessi leikur þurfti mark.
26. mín
Laglegur sprettur hjá Kristófer Kristjánssyni í átt að teig ÍBV. Hann sendir boltann inn í teiginn þar sem Rafael Victor kemur á ferðinni en Hjörvar virðist vera á undan í boltann. Stuðningsmenn Þórs kalla eftir vítaspyrnu en það var rétt að dæma ekkert.
25. mín
Hjörvar Daði! Hjörvar Daði heppinn þarna. Eitthvað að dútla sére með boltann og missir hann undir sig en sem betur fer fyrir hann rúllaði boltinn ekki hratt í átt að marki og hann nær að bjarga sér út úr þessu.
23. mín
Rosaleg stöðubarátta hérna. Rólegur dagur til þessa hjá Aroni Birki og Hjörvari.
15. mín
Hjörvar Daði fer ansi hikandi út úr teignum en honum tekst að vera fyrstur í boltann og koma honum vel frá.
11. mín
Þetta fer ansi hægt af stað..
6. mín
Einhver köll hérna eftir hendi/víti inn á vítateig ÍBV. Ekkert dæmt.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn koma þessu af stað
Fyrir leik
Leikurinn í beinni
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarliðin Það eru fjórar breytingar á liði Þórs sem tapaði 1-0 gegn Þrótti í síðustu umferð. Auðunn Ingi Valtýsson fékk höfuðhögg og er Aron Birkir Stefánsson kominn aftur í rammann. Elmar Þór Jónsson og Aron Ingi Magnússon setjast á bekkinn en Birkir Heimisson er ekki í leikmannahópnum. Alexander Már Þorláksson, Ingimar Arnar Kristjánsson og Einar Freyr Halldórsson koma inn í liðið.

Það eru þrjár breytingar á liði ÍBV sem lagði Dalvík/Reyni í síðustu umferð. Tómas Bent Magnússon og Hermann Þór Ragnarsson taka út leikbann. Þá sest Felix Örn Friðriksson á bekkinn. Sigurður Arnar Magnússon, Nökkvi Már Nökkvason og Alex Freyr Hilmarsson koma inn í liðið. Þá er Hermann Hreiðarsson ekki við stýrið í dag þar sem hann er í banni.
Fyrir leik
Úlfur spáir útisigri Úlfur Ágúst Björnsson, sóknarmaður FH, er spámaður umferðarinnar. Hann fylgir á eftir kettinum Kela sem var með fjóra leiki rétta í síðustu umferð.

Þór 0 - 1 ÍBV
Þetta verður alvöru baráttu leikur og verður allt hnífjafnt þangað til að Olli Heiðars tekur það að sér að stinga alla af og setja eitt mark í blálokin og tryggja 3 stig i 1-0 sigri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Tríóið Gunnar Oddur Hafliðason verður með flautuna í dag. Ronnarong Wongmahadthai og Patrik Freyr Guðmundsson verða honum til aðstoðar. Magnús Sigurður Sigurólason er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Markmannsskipti hjá Þór Auðunn Ingi Valtýsson hefur verið í markinu hjá Þór í tveimur síðustu leikjum en hann fékk slæmt höfuðhögg og rotaðist í tapinu gegn Þrótti í síðustu umferð. Aron Birkir Stefánsson snýr að öllum líkindum aftur í rammann í dag.
   21.07.2024 00:26
Auðunn rotaðist og var fluttur á sjúkrahús

Mynd: Akureyri.net/Skapti Hallgrímsson

Fyrir leik
Hermann sinnum tveir í banni Eyjamenn hafa nælt í níu stig í fimm síðustu leikjum. Hermann Hreiðarsson fékk gult spjald í 1-0 sigri á Dalvík/Reyni í síðustu umferð og tekur út leikbann fyrir uppsöfnuð spjöld í leiknum í dag. Nafni hans, Hermann Þór Ragnarsson fékk rautt gegn Dalvík/Reyni og Tómas Bent Magnússon hefur fengið sjö gul spjöld í sumar og taka þeir einnig út leikbann í dag. Liðið situr í 3. sæti með 22 stig og getur komist upp fyrir Njarðvík í 2. sætið með sigri í dag.
   23.07.2024 19:23
KSÍ færir rauða spjaldið yfir á réttan leikmann

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gengur ekkert að tengja saman sigra Þórs liðinu hefur ekki tekist að tengja saman sigra í sumar en liðið hefur nælt í átta stig í síðustu fimm leikjum. Liðið tapaði hér á VÍS vellinum 1-0 gegn Þrótti í síðustu umferð. Liðið situr í 7. sæti með 17 stig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Góðan daginn Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs og ÍBV í Lengjudeildinni. Þetta er síðasti leikurinn í 14. umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Byrjunarlið:
12. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon (f)
4. Nökkvi Már Nökkvason ('77)
5. Jón Ingason (f) ('80)
7. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
10. Sverrir Páll Hjaltested
20. Eyþór Orri Ómarsson ('61)
22. Oliver Heiðarsson
25. Alex Freyr Hilmarsson ('61)
31. Viggó Valgeirsson ('80)
45. Eiður Atli Rúnarsson

Varamenn:
1. Jón Kristinn Elíasson (m)
3. Felix Örn Friðriksson ('61)
6. Henrik Máni B. Hilmarsson ('80)
8. Vicente Valor ('61)
17. Sigurður Grétar Benónýsson ('80)
18. Bjarki Björn Gunnarsson ('77)

Liðsstjórn:
Elías J Friðriksson
Mikkel Vandal Hasling
Elías Árni Jónsson
Lewis Oliver William Mitchell

Gul spjöld:
Sigurður Arnar Magnússon ('65)

Rauð spjöld: