Leik lokið!
Boltinn er laus inn á teignum og bæði lið umkringja hann en Erin nær boltanum að lokum og flautað til leiksloka um leið.
93. mín
Þór/KA fær síðasta sénsinn. Hornspyrna!
90. mín
Þremur mínútum bætt við. fáum við sigurmark?
87. mín
Hulda Ósk að komast íi dauðafæri en er of lengi að athafna sig og Erin pressar vel á hana.
83. mín
InnEmelía Ósk Kruger
ÚtAgnes Birta Stefánsdóttir
82. mín
MAAARK!
Sandra María Jessen
Það er orðið jafnt aftur. Sandra María skallar boltann í netið eftir sendingu frá Huldu Ósk.76. mín
Ísfold Marý með skot sem fer af einum ef ekki tveimur varnarmönnum en það slær Erin ekki út af laginu sem grípur boltann.
75. mín
InnHildur Anna Birgisdóttir
ÚtBryndís Eiríksdóttir
75. mín
InnAngela Mary Helgadóttir
ÚtLidija Kulis
70. mín
Dauðafæri!
Hulda Hrund Arnarsdóttitr fer ansi illa með nöfnu sína Huldu Björg og á sendingu fyrir og Jessica Ayers skallar boltann í slánna af stuttu færi!
69. mín
Sandra María í góðum séns en skotið yfir. Andrea Mist gerði vel að preessa á hana og koma henni úr jafnvægi.
68. mín
InnSóley Edda Ingadóttir
ÚtEyrún Embla Hjartardóttir
64. mín
Gult spjald
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir
63. mín
Hulda Ósk með hörku skot en boltinn framhjá
59. mín
InnHenríetta Ágústsdóttir
ÚtGyða Kristín Gunnarsdóttir
59. mín
InnBríet Jóhannsdóttir
ÚtAmalía Árnadóttir
56. mín
Úlfa Dís fær boltann inn á teignum og kemst á milli Lidiju og Agnesar Birtu og klárar snyrtilega. Slakur varnarleikur hins vegar.
MAAAARK
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
Gestirnir komnir yfir!Úlfa Dís fær boltann inn á teignum og kemst á milli Lidiju og Agnesar Birtu og klárar snyrtilega. Slakur varnarleikur hins vegar.
55. mín
Nú fá Stjörnukonur færi. Hornspyrna
54. mín
Þór/KA frískara í byrjun seinni hálfleiksins...
49. mín
Þór/KA fær hornspyrnu. Erin rétt nær að koma fingurgómunum í boltann og bjarga í horn. Þór/KA fékk annað horn og eftir smá barning var rangstaða dæmd.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Ekki sekúndu bætt við þennan fyrri hálfleik
39. mín
ÞÆR JAFNA STRAX!
Hrefna Jónsdóttir
Harpa Jóhannsdóttir að dútla með boltann og Hrefna og Gyða Kristín pressa báðar. Hrefna nær boltanum og skorar.38. mín
MAAAARK!
Margrét Árnadóttir (stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir )
Hulda leikur á Eyrúnu Emblu og brunar inn á teiginn. Sendir boltann út á Margréti sem leggur boltann í fjærhornið.32. mín
Fyrirgjöf frá hægri og Erin nær ekki að kýla boltann langt, beint á Söndru en hún kemur boltanum ekki á markið.
27. mín
Sandra María aftur með skalla en nú fer boltinn í stöngina.
24. mín
Sandra María með skalla sem Erin blakar út í teiginn. Boltinn berst til Amalíu sem nær ekki að stýra boltanum á markið.
18. mín
MARGRÉT!
Amalía með skalla inn á teiginn og Margrét, systir hennar, er þar ein og óvölduð en lyftir boltanum yfir markið!
16. mín
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir með skot en beint í fangið á Erin.
11. mín
Amalía Árnadóttir á undan Erin í boltann en setur hann framhjá.
10. mín
Sandra María komin í hörku færi en Erin Mcleod ver vel. Þór/KA fær hornspyrnu.
5. mín
Þór/KA í vandræðum að koma boltanum frá eftir hornspyrnu en þetta rennur út í sandinn að lokum. Fyrirgjöf sem fer út fyrir hliðarlínu.
1. mín
Gestirnir koma þessu af stað
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Það eru þrjár breytingar á liði Þórs/KA sem tapaði gegn Breiðabliki í síðustu umferð. Amalía Árnadóttir, Lidija Kulis og Hulda Björg Hannesdóttir koma inn í liðið fyrir Angelu Mary Helgadóttur, Löru Ivanusa og Bríeti Jóhannsdóttur.
Það er ein breyting á liði Stjörnunnar sem gerði 1-1 jafntefli gegn Val. Henríetta Ágústsdóttir sest á bekkinn og Anna Dís Arnþórsdóttir kemur inn í hennar stað.
Það er ein breyting á liði Stjörnunnar sem gerði 1-1 jafntefli gegn Val. Henríetta Ágústsdóttir sest á bekkinn og Anna Dís Arnþórsdóttir kemur inn í hennar stað.
Fyrir leik
Sölvi Haralds spáir
Það er Sölvi Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, sem spáir í leiki umferðarinnar.
Þór/KA 3 - 1 Stjarnan
Þar sem það virðist ekkert ganga upp hjá karlaliðinu ætla ég að gleðja Sæbjörn Steinke vin minn og segja að Þór/KA taki þetta. Fólk má dæma mig en ég held að Sandra María setji þrennu. Það eru ekki mörg mörk í leikjum Stjörnunnar en ég held að þessi opnist aðeins. Stjörnukonur minnka muninn á 90. mínútu af punktinum.

Þór/KA 3 - 1 Stjarnan
Þar sem það virðist ekkert ganga upp hjá karlaliðinu ætla ég að gleðja Sæbjörn Steinke vin minn og segja að Þór/KA taki þetta. Fólk má dæma mig en ég held að Sandra María setji þrennu. Það eru ekki mörg mörk í leikjum Stjörnunnar en ég held að þessi opnist aðeins. Stjörnukonur minnka muninn á 90. mínútu af punktinum.

Fyrir leik
Teymið
Sveinn Arnarsson verður með flautuna í kvöld. Nafni hans, Sveinn Þórður Þórðarson og Ásgeir Þór Ásgeirsson verða honum til aðstoðar. Snorri Eldjárn Hauksson er fjórði dómari og Tryggvi Þór Gunnarsson eftirlitsmaður KSÍ.

Fyrir leik
Stjarnan skín skært
Stjarnan hefur nælt í sjö stig í síðustu þremur leikjum en liðið gerði jafntefli gegn Val á heimavelli í síðustu umferð. Stjarnan getur með sigri komist upp í efri hluta töflunnar en þetta er næst síðasta umferðin fyrir tvískiptingu.
Fyrir leik
Gengið illa á heimavelli
Það hefur gengið afar illa hjá Þór/KA að undanförnu en liðið hefur aðeins unnið tvo af síðustu sjö leikjum sínum. Liðið hefur tapað fjórum heimaleikjum í röð en liðið hafði unnið fyrstu fjóra heimaleiki sína í sumar. Liðið er sem stendur aðeeins tveimur stigum á undan Víkingi í 3. sæti deildarinnar.
Fyrir leik
Fyrri viðureignin
Liðin mættust í 8. umferð á Samsungvellinum þar sem Þór/KA vann 4-1. Sandra María Jessen skoraði tvö mörk, Margrét Árnadóttir og Hildur Anna Birgisdóttir skoruðu sitt markið hvor fyrir Þór/KA. Hrefna Jónsdóttir kom Stjörnunni yfir í leiknum.


Fyrir leik
Góða kvöldið
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs/KA og Stjörnunnar í Bestu deild kvenna. Leikurinn fer fram á VÍS vellinum á Akureyri og er liður í 17. umferð.



