Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Víkingur R.
Víkingur R.
Besta-deild kvenna
Víkingsvöllur
Grenjandi
5 - 1
Tindastóll
Tindastóll
Linda Líf Boama 3'1 - 0Linda Líf Boama 6'2 - 0Bergdís Sveinsdóttir 20'3 - 0Freyja Stefánsdóttir 23'4 - 0Shaina Faiena Ashouri 50'5 - 05 - 189' Elísa Bríet Björnsdóttir
Dómari: Frederikke Sökjær

SKÝRSLAN: Ljósmyndarinn hagaði sér eins og fífl

Hvað réði úrslitum?

Fyrstu 23 mínúturnar voru í eign Víkinga og þær voru komnar í 4-0 þá. Sú byrjun er klárlega það sem réði þessu í dag.

Bestu leikmenn

1. Freyja Stefánsdóttir

Var frábær í fremstu viglínunni og stanslaus hætta sem myndaðist þegar hún fékk boltann. Alltaf skot eða fyrirgjöf. Tvö mörk og ein stoðsending er nóg fyrir mig.

2. Linda Líf Boama

Linda var einnig með eitt mark og eina stoðsendingu. Hún var frábær í dag. Gífurlega góður leikmaður, klár, fljót og nautsterk. Geggjaður dagur á skrifstofunni hjá Lindu sem var að tengja mjög vel við Freyju.

Atvikið

Klárlega þegar danski dómari leiksins vísaði ljósmyndara Víkings af velli. Markmaður Stólanna meiddist þegar aðeins minna en 10 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma í fyrri hálfleiknum og honum fannst það ekki skemmtilegt. Hann hallaði sér að annarri stönginni á markinu og lét sjúkraþjálfarann heyra það. Eftir það elti hann sjúkraþjálfarann þegar hún var komin útaf og byrjaði að áreita hana heyrði ég úr mjög öruggri átt. Dómarinn hljóp að honum (ljósmyndaranum) og vísaði honum af vellinum. Hann byrjaði að rífast þá við dómarann og neitaði að yfirgefa völlinn en þau rifust í líklega meira en hálfa mínútu áður en hann loks fór út á bílastæði og líklega inn í bíl. Frábærlega tæklað hjá danska dómaranum en svona hegðun er til háborinnar skammar. Þarna er sjúkraþjálfari, sem er að hlúa að markmanni Tindastóls sem var í alvörunni meidd heyrði ég, að vinna óeigingjarnt starf og því þarf að bera virðingu fyrir. Ekki nóg með það var Víkingur að leiða 4-0 og afhverju ætti þá einhver sem heldur með Víking að vera pirraður yfir þessu? Ef þú ætlar að fá að mynda leiki og fá þennan aðgang að vellinum átt þú að haga þér og bera virðingu fyrir þeim sem koma að leiknum. Mér finnst þessi hegðun bar alveg út í hött.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar jafna Þór/KA að stigum en eru áfram í 4. sætinu. Stólarnir eru áfram í 8. sætinu aðeins þremur stigum frá fallsæti.

Vondur dagur

Varnarleikur Tindastóls var hálf barnalegur í fyrri hálfleiknum. Stutt á milli marka og liðið illa tengt í varnarleiknum.

Dómarinn - 10

Nákvæmlega ekkert sem ég get sett út á danska dómarann og ég get eiginlega bara hrósað henni. Rak ljósmyndarann af velli sem var gífurlega gott move fannst mér. Frábær leikur hjá teyminu í samt ekkert mjög krefjandi leik. Bara fullkomið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.