Fotbolti.net
Besta deildin
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þór/KA
Þór/​KA
Besta-deild kvenna
VÍS völlurinn
2 - 2
Stjarnan
Stjarnan
Margrét Árnadóttir 38'1 - 01 - 139' Hrefna Jónsdóttir1 - 256' Úlfa Dís Kreye ÚlfarsdóttirSandra María Jessen 82'2 - 2
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Fjörugt jafntefli á Akureyri

Hvað réði úrslitum?

Þór/KA nagar sig í handabökin að hafa ekki verið með meiri forystu í fyrri hálfleik en Stjarnan spyr ekki að því og jafnaði metin strax eftir slæm mistök hjá Hörpu í marki Þór/KA. Stjarnan komst svo yfir og hefði getað náð frekari forystu í seinni hálfleik en Sandra María tryggði Þór/KA að lokum sanngjarnt stig.

Bestu leikmenn

1. Hulda Ósk Jónsdóttir

Sífellt ógnandii og leggur upp bæði mörk Þórs/KA

2. Erin Mcleod

Fær vissulega á sig tvö mörk en átti nokkarar góðar vörslur. Hulda Hrund Arnarsdóttitr var einnig frábær og bjó til fyrir samherja sína sem skilaði sér því miður fyrir hana og Stjörnukonur ekki með marki.

Atvikið

Harpa Jóhannsdóttir markvörður Þórs/KA gerði slæm mistök þegar hún var full róleg á boltanum og Hrefna Jónsdóttir og Gyða Kristín Gunnarsdóttir komu í ákveðna pressu sem varð til þess að Hrefna skoraði og jafnaði metin mínútu eftir að Þór/KA komst yfir.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/KA er í 3. sæti með jafnmörg stig og Víkingur sem er í sætinu fyrir neðan en Þór/KA mætir Fylki í lokaumferðinni fyrir tvískiptingu sem berst fyrir lífi sínu í deildinni. Stjarnan mun hins vegar spila úrslitaleik gegn Þrótti um sæti í efri hlutanum eftir skiptinguna í lokaumferðinni.

Vondur dagur

Harpa átti fínan leik heilt yfir en átti dýrkeypt mistök. Varnarleikur Þórs/KA var einnig slappur í seinna markinu. Bæði lið voru að fara illa með góð færi og geta bæði verið svekkt að hafa ekkii tekið öll stigin.

Dómarinn - 7

Flottur leikur hjá tríóinu
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.