Leik lokið!
Leik lokið hér á króknum, 1-1 eru lokatölur leiksins eftir hörkuleik
90. mín
Mikið caos í teig gestana en boltinn endar hjá Varis í markinu eftir skot frá bæði Aldísi og Jordyn
89. mín
Gult spjald
Kristrún Ýr Holm
80. mín
InnSigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir
ÚtMarín Rún Guðmundsdóttir
Markaskorari Keflvíkinga er tekinn útaf
77. mín
InnAldís María Jóhannsdóttir
ÚtHugrún Pálsdóttir
76. mín
Laufey Harpa á skot sem fer yfir
71. mín
Marín Rún á skot á markið sem Monica ver mjög vel
62. mín
Jordyn skorar en hún er dæmd rangstæð svo markið er dæmt af
53. mín
InnHilda Rún Hafsteinsdóttir
ÚtAnita Bergrán Eyjólfsdóttir
52. mín
Laufey á frábæra fyrirgjöf sem að Jordyn tekur við og skýtur framhja
48. mín
MAAAARK!
Elísa Bríet Björnsdóttir
Boltinn hrekkur fyrir Elísu sem neglir honum inn, geggjað slútt, 1-146. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur og Keflavík leiðir með einu
43. mín
Hugrún Skorar en boltinn fór í hendina á henni áður og því réttilega dæmd aukaspyrna
41. mín
Aníta Bergrán á skot sem fer yfir
35. mín
Birgitta á skot sem Varis ver nokkuð örugglega
29. mín
Jordyn fær dauðafæri sem hún neglir framhja
25. mín
Jordyn Rhodes klúðrar fínu færi eftir flott upp spil frá Haanpaa
21. mín
Hugrún á skot sem fer yfir
19. mín
Stólarnir fá aukaspyrnu á fínum stað en Elísa skýtur beint í vegginn
15. mín
Það er búið að vera lítið að frétta í þessum leik fyrir utan markið, ekki mikið af færum
9. mín
MAAAARK!
Marín Rún Guðmundsdóttir (stoðsending: Saorla Lorraine Miller)
Marín Rún kemur Keflavík yfir á 9 mínútu, flott skyndisókn frá Keflavík sem endar á því að að Miller leggur hann fyrir Marínni sem neglir honum í vinstra hornið1. mín
Leikur hafinn hér á króknum
Fyrir leik
Lokaumferðin fyrir skiptingu
Leikurinn í dag er í 18. og síðustu umferð mótsins áður en farið verður í tvískiptingu þar sem sex efstu og fjögur neðstu fara í sitthvora áttina. Bæði liðin í dag enda í neðri hlutanum svo eftir leikinn í dag eiga þau þrjár leiki eftir í bullandi fallbaráttu.
Tindastóll er í 8. sætinu með 12 stig, aðeins 3 stigum frá Fylki og Keflavík sem eru í fallsætunum með 9 stig. Það er því mikið undir í dag enda nokkuð ljóst að tvö af þessum þremur munu falla þetta sumarið.
1. Valur - 46 stig
2. Breiðablik - 45
3. Þór/KA - 29
4. Víkingur - 29
5. FH - 25
6. Stjarnan - 21
7. Þróttur - 20
8. Tindastóll - 12
9. Fylkir - 9
10. Keflavík - 9
Fyrir leik
Dómarateymið
Gunnar Oddur Hafliðason dæimr leikinn í dag en hann er með þá Sigurð Schram og Tryggva Elías Hermannsson sér til aðstoðar á línunum. Tomasz Piotr Zietal er skiltadómari.

Fyrir leik
Bein textalýsing af Sauðárkróksvelli
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Sauðárkróki.
Hér mætast Tindastóll og Keflavík í Bestu-deild kvenna en leikurinn hefst klukkan 14:00.




