SKÝRSLAN: Grótta með smá von eftir þrjú stig gegn hrynjandi Fjölnis liði
Hvað réði úrslitum?
Fjölnir stýrðu boltann mest megnis af leiknum, en þrátt fyrir töluvert af færum þá enduðu þau ekki inn í netið. Grótta stóð sig vel í að verjast gegn sókn Fjölnis og Gabríel tryggði Gróttu þrjú stig með tvö glæsileg mörk
Bestu leikmenn
1. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
Skoraði tvö flott mörk og var flottur inn a vellinum.
2. Jónatan Guðni Arnarsson
Jónatan skoraði eina mark Fjölnis og var mjög hættulegur á vinstri kanti hjá Fjölnir. Hann skapaði mikið af færum pg mikla hættu.
Atvikið
Atvik leiksins var þegar hundur hljóp inn á völlinn og það þurfti að stoppa leikinn. Leikmenn og þjálfarar voru farnir að reyna ná hundinum sem hljóp með hörðum spretti í kringum allan völlinn.
Hvað þýða úrslitin?
Grótta er enn í 11. sæti deildarinnar með 16 stig, en eiga enn möguleika að halda sér upp. Fjölnir sija enn í 3. sæti, en hefði geta fært sig í annað sæti með jafntefli og efsta sæti með sigur.
Vondur dagur
Framherjar Fjölnis áttu slæman dag í dag. Þeir fengu fullt af færum sem voru öll ílla nýtt, alls ekki í boði þegar það er svona mikið í húfi fyrir Fjölnir.
Dómarinn - 8
Vel dæmdur leikur hjá Vilhjálmi og teyminu hans. Lítið hægt að segja vegna þess að það þurfti varla að taka neinar stórar ákverðarnir , en línan var mjög fín hjá honum í dag.



