SKÝRSLAN: Jafnt í rokinu á Akureyri
Hvað réði úrslitum?
Gríðarlega erfiðar aðstæður, mikill vindur en bæði mörkin komu á móti vindinum. Bæði lið fengu góð tækifæri til að skora fleiri mörk en það tókst ekki.
Bestu leikmenn
1. Bjarki Þór Viðarsson
Átti að gera betur sóknarlega en hans vinna er að verjast og hann gerði það svo sannarlega þegar hann svo gott sem kom í veg fyrir mark þegar hann náði boltanum af Gils á magnaðan hátt.
2. Hákon Dagur Matthíasson
Skoraði mark ÍR-inga og var líflegur í leiknum.
Atvikið
Tækling Bjarka Þórs Viðarsonar var mögnuð. Gils Gíslason var sloppinn í gegn og Bjarki virtist vera búinn að missa af lestinni en kom með frábæra tæklingu.
Hvað þýða úrslitin?
ÍR í 5. sæti og í bullandi baráttu að komast í umspilið á meðan Þór er enn í fallhættu þegar tvær umferðir eru eftir. Fjórum stigum munar á Þór og Gróttu.
Vondur dagur
Sóknarleikur beggja liða var ekki nægilega góður í dag. Bæði lið klúðruðu mjög góðum færum, markmennirnir þurftu ekki að aðhafast mikið þar sem menn voru ekki að hitta á markið. Svo áttu veðurguðirnir ekki góðan dag.
Dómarinn - 7
Með allt á hreinu. Það var ekkert um vafaatriði í leiknum en nokkur verðskulduð gul spjöld fóru á loft.


