Fotbolti.net
@fotboltinetLogi Freyr Gissurarson
2. deild karla
JÁVERK-völlurinn
Bullandi útsynningur.
Selfoss
Selfoss
5 - 0
Höttur/Huginn
Höttur/Huginn
Gonzalo Zamorano Leon 33'1 - 0Gonzalo Zamorano Leon 37'2 - 0Gonzalo Zamorano Leon 69'3 - 0Brynjar Þorri Magnússon (sjm) 80'4 - 0Sesar Örn Harðarson 87'5 - 0
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Mörkunum rigndi á Selfossi

Hvað réði úrslitum?

Gæðamunur á liðunum augljós þegar að leið á leikinn. Gestirnir sáu ekki til sólar í seinni hálfleik (reyndar sá enginn til sólar í dag). En Selfyssingar með sól í sinni og kjöldrógu H/H í seinni hálfleik.

Bestu leikmenn

1. Gonzalo Zamorano

Þrenna, þarfnast ekki skýringa.

2. Ingvi Rafn Óskarsson

Stjórnaði umferðinni á miðjunni hvort sem var fram eða til baka.

Atvikið

MARK-RAUTT-MARK á fimm mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks. Rauða spjaldið og mark beint úr aukaspyrnunni gekk alveg frá leiknum.

Hvað þýða úrslitin?

Einfaldlega að Selfyssingar eru komnir aftur í Lengjudeildina eftir eitt ár í 2. deildinni og tryggðu sér einnig toppsæti deildarinnar.

Vondur dagur

Verður að fara á Genis Arrastraria Caballe sem stuggar algjörlega að óþörfu við Aroni Fannari og uppsker réttilega rautt spjald. Leikurinn er alveg búinn eftir það.

Dómarinn - 9

Þægilegur leikur að dæma og í raun var rauða spjaldið eina stóra ákvörðun leiksins og Guðmundur Páll náði henni 100%
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.