Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Greifavöllurinn
Það virðist vera bálhvasst á Akureyri en skv Veðurstofunni er þó 20 gráðu hiti
Þór/KA
Þór/KA
1 - 0
FH
FH
Sandra María Jessen 49'1 - 0
Dómari: Bríet Bragadóttir

SKÝRSLAN: Sandra María enn og aftur örlagavaldur

Hvað réði úrslitum?

Heimakonur í Þór/KA skoruðu eitt löglegt mark á meðan að FH gerði það ekki. (Að mati dómara leiksins) Í grunninn var það eini munurinn á liðunum í dag. Jú Þór/KA fékk fleiri færi heilt yfir og er kannski verðskuldaður sigurvegari en stórt atvik situr þó í manni eftir á.

Bestu leikmenn

1. Sandra María Jessen

Þarf ekkert að sjást mikið í leiknum eða vera mikilvægur hluti af spili. Alltaf poppar hún upp á réttum augnablikum fyrir sitt lið og setur mark sitt á leikinn.

2. Jónína Linnet

Ég hreifst af frammistöðu Jónínu gegn Söndru Maríu lengst af í leiknum. Hélt henni algjörlega niðri í fyrri hálfleik og má vera stolt af sinni frammistöðu þó úrslitin séu súr.

Atvikið

Að því er virtist löglegt mark var dæmt af FH í fyrri hálfleik., Snædís María skallar boltann inn eftir horn en Bríet dæmir brot á Valgerði að því er virtist fyrir engar sakir. Á sjónvarpsmyndum að dæma er um kolrangann dóm að ræða.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/KA styrkir stöðu sína í þriðja sæti og jafnar stigafjölda sinn frá því í fyrra með 33 stig. FH áfram í 5.sæti með 25 stig.

Vondur dagur

Mér finnst hreinlega ósanngjarnt að taka einverja út fyrir sviga hér. Leikmenn sem og aðrir á vellinum vissulega að leggja sig fram og gera sitt allra besta. Thelma Karen nagar sig samt eflaust í handarbökin fyrir að eiga þessa hörmulegu sendingu út frá vörn FH sem sigurmark heimakvenna kemur upp úr.

Dómarinn - 5,5

Risa atvik þegar hún dæmir löglegt mark af FH. Engar stórar gloríur þess utan en Bríet má fara að taka skref upp á við sem dómari. Mikið traust á hana lagt sem mér finnst hún ekki alltaf standa undir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.