William Saliba, Cristian Romero, Lamine Yamal og fleiri koma við sögu í pakkanum
Vestri
0
0
Fylkir
01.09.2024  -  14:00
Kerecisvöllurinn
Besta-deild karla
Aðstæður: Rok
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Maður leiksins: Orri Sveinn Segatta
Byrjunarlið:
30. William Eskelinen (m)
2. Morten Ohlsen Hansen
4. Fatai Gbadamosi
11. Benedikt V. Warén ('82)
15. Guðmundur Arnar Svavarsson
17. Gunnar Jónas Hauksson ('82)
19. Pétur Bjarnason ('82)
20. Jeppe Gertsen
22. Elmar Atli Garðarsson (f)
23. Silas Songani ('74)
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson ('68)

Varamenn:
1. Benjamin Schubert (m)
3. Elvar Baldvinsson ('68)
6. Ibrahima Balde ('74)
7. Vladimir Tufegdzic ('82)
9. Andri Rúnar Bjarnason ('82)
14. Inaki Rodriguez Jugo
21. Sergine Fall
28. Jeppe Pedersen ('82)

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Daniel Osafo-Badu
Jón Hálfdán Pétursson
Þorsteinn Goði Einarsson
Vladan Dogatovic
Vladimir Vuckovic

Gul spjöld:
Vladimir Tufegdzic ('85)
Jeppe Pedersen ('89)
Morten Ohlsen Hansen ('90)
Guðmundur Arnar Svavarsson ('94)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
0-0 jafntefli er niðurstaðan í þessum botnbaráttuslag.
94. mín Gult spjald: Guðmundur Arnar Svavarsson (Vestri)
91. mín
Arnór Breki tekur spyrnuna meðfram jörðinni en Vestri hreinsar boltann.
90. mín Gult spjald: Morten Ohlsen Hansen (Vestri)
90. mín
Halldór Jón sækir aukaspyrnu alveg við vítateigslínuna.
89. mín Gult spjald: Jeppe Pedersen (Vestri)
88. mín
Jeppe Pedersen tekur spyrnuna sem Óli grípur afskaplega vel.
87. mín
Guðmundur tekur spyrnuna sem endar í annari hornspyrnu hinum megin.
87. mín
Vestri fær hornspyrnu
86. mín
Fylkir á aukaspyrnu í ágætis fyrirgjafarstöðu sem Arnór tekur en Eskelinen grípur boltann.
85. mín Gult spjald: Vladimir Tufegdzic (Vestri)
82. mín
Inn:Jeppe Pedersen (Vestri) Út:Pétur Bjarnason (Vestri)
82. mín
Inn:Andri Rúnar Bjarnason (Vestri) Út:Benedikt V. Warén (Vestri)
82. mín
Inn:Vladimir Tufegdzic (Vestri) Út:Gunnar Jónas Hauksson (Vestri)
81. mín
Inn:Þóroddur Víkingsson (Fylkir) Út:Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir)
81. mín
Benedikt Warén tekur spyrnuna en hún endar í markspyrnu.
81. mín
Vestri fær hornspyrnu
80. mín
Fylkir hreinsar hornspyrnuna út úr teignum.
79. mín
Vestri fær aðra hornspyrnu Benedikt Warén tekur spyrnuna sem Óli blakar yfir markið.
79. mín
Vestri fær hornspyrnu
74. mín
Inn:Ibrahima Balde (Vestri) Út:Silas Songani (Vestri)
72. mín
Arnór tekur spyrnuna en Vestri hreinsar boltann. Þeir fara í hraðaupphlaup og Fatai reynir skot frá miðju en það fer yfir markið.
71. mín
Fylkir fær aukaspyrnu í ágætis fyrirgjafarstöðu á hægri kantinum.
68. mín
Inn:Elvar Baldvinsson (Vestri) Út:Eiður Aron Sigurbjörnsson (Vestri)
67. mín
Eiður Aron fær smá aðhlynningu.
62. mín
Nikulás Val með skottilraun fyrir utan teig sem fer framhjá marki.
59. mín
Elmar Atli með fínan skalla á markið sem Óli handsamar.
57. mín
Inn:Halldór Jón Sigurður Þórðarson (Fylkir) Út:Emil Ásmundsson (Fylkir)
57. mín
Ekkert kom út úr þessari hornspyrnu.
56. mín
Vestri fær hornspyrnu
51. mín
Guðmundur tekur spyrnuna en ekkert kemur úr henni.
50. mín
Vestri fær aðra hornspyrnu Benedikt Warén tekur spyrnuna sem Óli blakar yfir markið.
50. mín
Vestri fær hornspyrnu
48. mín
Ásgeir Eyþórs brýtur á Pétri miðsvæðis. Vestramenn taka síðan aukaspyrnuna og Ragnar Bragi brýtur strax á Silas.
47. mín
Emil fær boltann við vítateiginn með bakið í markið. Hann snýr sér í 180 gráður og á skot sem fer framhjá.
47. mín
Silas fær boltann frá Pétri Bjarna og hann reynir síðan skot sem fer framhjá.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað Fylkismenn byrja með boltann í seinni hálfleik og það er Emil Ásmunds sem sparkar okkur af stað.
45. mín
Hálfleikur
Ég hef alveg séð skemmtilegri fótboltaleiki...
Svei mér þá ef ég leggst ekki bara á bæn núna í hálfleik í þeirri von að seinni hálfleikurinn verði skemmtilegri.
45. mín
+1 í uppbótartíma
45. mín
Þórður Gunnar á fyrirgjöf inn í teiginn á Matthias sem reynir skot en það fer framhjá markinu.
44. mín
Hornspyrnan endar í markspyrnu.
43. mín
Vestri fær hornspyrnu Elmar á fyrirgjöf inn í teiginn sem Birkir reynir að hreinsa. Boltinn endar hins vegar hjá Gunnari sem er við vítateiginn og reynir skot sem fer í varnarmann Fylkis.
39. mín
Guðmundur með fastan bolta fyrir markið sem Óli ver.
38. mín Gult spjald: Emil Ásmundsson (Fylkir)
Þriðja brotið hans í dag.
36. mín
Emil tekur spyrnuna en boltinn fer út fyrir endamörk vallarins, vindurinn að spila inn í.
36. mín
Fylkir fær hornspyrnu Arnór Breki fær sendingu frá Emili inn í teiginn og hann reynir skot sem fer af varnarmanni Vestra og endar í hornspyrnu
31. mín
Silas með fína sendingu inn fyrir vörn Fylkis af hægri kantinum yfir til Benedikts Warén á vinstri kantinum en Benedikt er hins vegar rangstæður.
22. mín
Silas kemst í ágætis hraðaupphlaup eftir mistök í vörn Fylkis en hann nær ekki að nýta sér það almennilega og á skot hátt yfir markið.
21. mín
Afskaplega lítið um færi fyrstu tuttugu mínútur leiksins.
18. mín
Guðmundur tekur spyrnuna sem er hreinsuð úr teig Fylkis.
17. mín
Vestri fær hornspyrnu Elmar reynir fyrirgjöf en Ragnar Bragi kemur í veg fyrir hana.
14. mín
Emil Ásmunds fer seint í Morten og brýtur á honum. Fær smá tiltal frá Ívari.
10. mín
Emil tekur spyrnuna en hún fer út fyrir endamörk vallarins.
10. mín
Fylkir fær hornspyrnu
8. mín
Emil lætur vaða úr aukaspyrnunni en Eskilenen á ekki í miklum vandræðum með það að handsama boltann.
7. mín
Fylkir fær aukaspyrnu á góðum stað Morten brýtur á Matthias á góðum stað fyrir Fylki við vítateig Vestra.
6. mín
Silas með fyrirgjöf af hægri kantinum sem Ásgeir hreinsar.
6. mín
Benedikt Warén tekur spyrnuna en Fylkir nær að hreinsa þetta.
5. mín
Vestri fær hornspyrnu Orri skallar fyrirgjöf í hornspyrnu.
3. mín
Rok Það er rosalega mikill vindur á Ísafirði í dag sem mun eflaust lita leikinn. Fylkir spilar með vindinn í bakið í fyrri hálfleik.
2. mín
Guðmundur tekur spyrnuna en Fylkir nær að hreinsa.
2. mín
Vestri fær hornspyrnu
1. mín
Leikur hafinn
Vestri byrjar með boltann og það er Silas sem sparkar okkur af stað
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völl Vestri í dökkbláum búningum og Fylkir í appelsínugulu.
Fyrir leik
Byrjunarliðin Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, gerir eina breytingu á byrjunarliðinu eftir tapið gegn Val í síðustu umferð. Jeppe Gertsen kemur inn í byrjunarliðið fyrir Gustav Kjeldsen en hann er í leikbanni eftir að hafa litið rauða spjaldið í síðasta leik.

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, gerir sömuleiðis eina breytingu á byrjunarliðinu eftir tapið gegn FH í síðustu umferð. Ásgeir Eyþórsson kemur inn í byrjunarliðið í stað Þórodds Víkingssonar sem tekur sér sæti á bekknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Jóhann Páll spáir í spilin Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður á RÚV spáir í 21. umferð sem fer öll fram í dag.

Vestri 1-1 Fylkir
Það er flennistórt X skrifað á ennið á þessum Kraftgallaleik. Vestramenn komast yfir en skrokkurinn Þóroddur Víkingsson (algjört Íslendingasögunafn) jafnar. Þóroddur er markahæstur í liðinu en bara spilað 29% mínútna. Play him, Rúnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gengi liðanna að undanförnu Í síðustu fimm leikjum hafa bæði lið fengið fimm stig. Vestri vann mikilvægan sigur fyrir botnbaráttuna gegn KR á dögunum og gerði jafntefli við ÍA og Víking. Fylkir vann einnig mikilvægan sigur fyrir botnbaráttuna gegn HK á dögunum og gerði jafntefli við KA og Fram.
Fyrir leik
Dómarateymið í dag Ívar Orri Kristjánsson er með flautuna í dag. Honum til halds og trausts á hliðarlínunum eru þeir Birkir Sigurðarson og Bergur Daði Ágústsson. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson er varadómari og eftirlitsmaður er Þórður Georg Lárusson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fyrri viðureign Liðin mættust í 10. umferð deildarinnar í Árbænum í miklum markaleik. Fylkir vann þann leik 3-2 eftir mörk frá Matthias Præst, Þóroddi Víkingssyni og Ómari Birni Stefánssyni. Mörk Vestra skoruðu Elmar Atli Garðarsson og Jeppe Gertsen.

Fyrir leik
Gustav Kjeldsen í leikbanni Gustav Kjeldsen, varnarmaður Vestra, fékk að líta rautt spjald í síðasta leik gegn Val. Hann er því í leikbanni í dag. Það er hins vegar enginn leikmaður Fylkis í leikbanni.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Sex stiga leikur Það er sannkallaður sex stiga leikur á Ísafirði hér í dag. Fylkir vermir botnsæti deildarinnar með 16 stig en Vestri situr í tíunda sætinu með 17 stig. Fari eitt lið með sigur af hólmi hér í dag gæti það reynst afar dýrmætt í lok tímabils þegar talið er stigin úr hattinum góða.
Fyrir leik
Velkomin! Komið sæl kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu í viðureign Vestra gegn Fylki á Kerecisvellinum í 21. umferð Bestu deild karla.

Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
5. Orri Sveinn Segatta
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
9. Matthias Præst
11. Þórður Gunnar Hafþórsson
16. Emil Ásmundsson ('57)
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson ('81)
24. Sigurbergur Áki Jörundsson
27. Arnór Breki Ásþórsson

Varamenn:
12. Guðmundur Rafn Ingason (m)
4. Stefán Gísli Stefánsson
7. Daði Ólafsson
14. Theodór Ingi Óskarsson
25. Þóroddur Víkingsson ('81)
70. Guðmundur Tyrfingsson
80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson ('57)

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Arnór Gauti Brynjólfsson
Michael John Kingdon
Ágúst Aron Gunnarsson
Smári Hrafnsson
Brynjar Björn Gunnarsson

Gul spjöld:
Emil Ásmundsson ('38)

Rauð spjöld: