SKÝRSLAN: Keflavík færðist en nær falli eftir tap á Króknum
Hvað réði úrslitum?
Þetta var hörku leikur, lítið dæmt og fékk því leikurinn að ganga. Stólarnir voru duglegar að koma boltanum fram á Jordyn, og þaðan komu flestu færinn
Bestu leikmenn
1. Jordyn Rhodes
Það fór mikið í gegnum Jordyn sónalega séð, hún hefði líklegast átt að klára fleiri færi en hún var mjög hættuleg
2. Birgitta Rún Finnbogadóttir
Birgitta var mjög góð í dag, hljóp mikið og fínt spil frá henni og uppiskar hún með stoðsendingu
Atvikið
Atvikið er þegar allt sauð upp úr og Donni lét í sér heyra og fékk fyrir það gullt spjald
Hvað þýða úrslitin?
Með þessum sigri komast Stólarnir 6 stigum fyrir ofan Fylki og Keflavík en Fylkir á leik til góða á móti Stjörnunni
Vondur dagur
Þetta var bara vondur dagur fyrir Keflavíkur liðið í heild sinni í dag, með þessu þurfa þær að vinna báða sína leiki sem eftir eru og treysta á önnur úrslit, næsti leikur gæti hend þeim niður
Dómarinn - 6
það var mikið kvartað yfir dómurunum í dag en ég var ánægður með línuna sem þeir settu, létu leikinn ganga hratt fyrir sig og gott flæði í honum



