Fotbolti.net
Besta deildin
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Fljóðljósaleikur af bestu gerð
Víkingur R.
Víkingur R.
3 - 2
Valur
Valur
Aron Elís Þrándarson (f) 21'0 - 125' Gylfi Þór Sigurðsson0 - 233' Tarik Ibrahimagic (sjm)65' Hólmar Örn EyjólfssonAron Jóhannsson (sjm) 66'1 - 2Tarik Ibrahimagic 73'2 - 2Ari Sigurpálsson 82'3 - 2
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
ENDURKOMAN FULLKOMNUÐ OG VÍKINGAR FARA MEÐ SIGUR!!

Stórkostlegur leikur hérna í Víkinni!

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
96. mín
Þetta er að fara frá Valsmönnum og stórkostleg endurkoma Víkinga að verða fullkomnuð.
95. mín
Valsmenn með tvær hornspyrnur sem kemur ekkert úr.
Víkingur R.
95. mín
InnSveinn Gísli Þorkelsson
ÚtTarik Ibrahimagic
94. mín
Valur fær hornspyrnu.
94. mín
Valsmenn aðeins að færa sig upp völlinn.
92. mín
Fyrirgjöf fyrir markið hjá Val og Gylfi skallar rétt yfir markið.
91. mín
Ari Sigurpáls að komast í gegn, Ömmi langt út úr markinu og Hörður Ingi heldur í við hann. Ari bíður of lengi eftir að skjóta og skotið auk þess hátt yfir.
91. mín
Sex mínútur í uppbót
Víkingur R.
90. mín
InnDaði Berg Jónsson
ÚtValdimar Þór Ingimundarson
Valur
89. mín
InnÓlafur Karl Finsen
ÚtOrri Sigurður Ómarsson
Víkingur R.
89. mín
Gult spjald

Danijel Dejan Djuric

85. mín
Bjarni Mark með skot sem fer af varnarmanni og Valsmenn fá horn.
Víkingur R.
82. mín
VÍKINGAR ERU BÚNIR AÐ SNÚA ÞESSU!

Ari Sigurpálsson (stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson)

Valdimar Þór Ingimundarson er arkitektin af þessu!! Keyrir upp völlinn og heldur vel í boltann og bíður þar til á hárréttu augnarbliki þegar hann rennir honum til hægri þar sem Karl Friðleifur kemur með fastan bolta fyrir markið fyrir Ara Sigurpáls í 'tap in'.

ÞESSI LEIKUR!!
Valur
80. mín
InnLúkas Logi Heimisson
ÚtTryggvi Hrafn Haraldsson
Valur
80. mín
InnGísli Laxdal Unnarsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
Valur
80. mín
InnHörður Ingi Gunnarsson
ÚtJónatan Ingi Jónsson
79. mín
Helgi Guðjóns í hörku tækifæri en hittir ekki boltann þegar hann fellur fyrir hann.
79. mín
Valdimar Þór lyftir boltanum fyrir markið og Valsmenn skalla í horn.
Valur
76. mín
Gult spjald

Orri Sigurður Ómarsson

Rífur Helga Guðjóns niður þegar hann er að fara stigna hann af.
Víkingur R.
73. mín
VÍKINGAR JAFNA!!!

Tarik Ibrahimagic (stoðsending: Danijel Dejan Djuric)

Frábær bolti fyrir markið og Tarik Ibrahimagic kemur úr djúpinu og hendir sér á boltann og skallar hann meistaralega í netið!!

JAHÉRNAHÉR!!
Valur
72. mín
InnAlbin Skoglund
ÚtAron Jóhannsson
Tufa að lesa leikinn vel með að taka Aron Jó af velli.
72. mín
Tarik Ibrahimagic með skot í hliðarnetið.
Valur
70. mín
Gult spjald

Aron Jóhannsson

Aron Jó brýtur á Tarik Ibrahimagic og sparkar svo á eftir honum.. Stálheppinn að liturinn sé ekki annar.
Víkingur R.
66. mín
VÍKINGAR MINNKA MUNINN!

Aron Jóhannsson (sjm)

Aukaspyrna fyrir markið á fjærstöng þar sem Helgi Guðjónsson skallar fyrir markið og boltinn lekur inn!
Aron Jó er það sem á síðustu snertinguna en Víkingar minnka muninn strax eftir að það er jafnt í liðum!
Valur
65. mín
JAFNT Í LIÐUM!!

Hólmar Örn Eyjólfsson

Hólmar Örn missir boltann aðeins frá sér og fer hraustlega í Danijel Dejan Djuric og fær beint rautt!!
63. mín
Bjarni Mark dæmdur brotlegur í baráttu við Danijel Djuric.

Miðað við línu dómara í kvöld er furðulegt að Bjarni Mark sé ekki komin í svörtu bókina en hann hefur verið brotlegur oftar en einusinni í kvöld.
62. mín
Gylfi Þór þræðir Jónatan Inga inn fyrir sem reynir svo að finna Patrick inni á teig en Viktor Örlygur kemst fyrir og bjargar í horn.
Víkingur R.
60. mín
InnHelgi Guðjónsson
ÚtNikolaj Andreas Hansen
59. mín
Bjarni Mark og Tarik Ibrahimagic skella saman í horninu og leikurinn stöðvaður.
58. mín
Tryggvi Hrafn kemur boltanum á Jónatan Inga sem kemur inn á teig en Oliver Ekroth pikkar boltanum í horn.
53. mín
Gylfi að komast í skotfæri en Tarik Ibrahimagic gerir vel að henda sér fyrir.
52. mín
Víkingar með fyrirgjöf fyrir markið og Nikolaj Hansen stekkur upp í boltann og Valdimar Þór stekkur upp í seinni boltann en flaggið á loft.
49. mín
Örlítill vandræðagangur aftast hjá Víkingum en þeir sleppa með það.
46. mín
Gylfi Þór sparkar þessu af stað aftur.
45. mín
Tölfræði fyrri hálfleiks (Stöð 2 Sport)
Með boltann: 54% - 46%
Skot: 7-5
Á mark: 1-1
Hornspyrnur: 5-2
Heppnaðar sendingar: 183-142
Rauð spjöld: 1-0
45. mín
Sigurður Hjörtur flautar til hálfleiks.

Verið líflegur fyrri hálfleikur og nóg um að vera. Tökum okkur stutta pásu og snúum svo aftur.
Víkingur R.
45. mín
Gult spjald

Ingvar Jónsson

Kemur í úthlaup á móti Tryggva Hrafn og tæklar boltann útaf og tekur svo boltann með sér í átt að marki og fær gult fyrir það.
45. mín
Þrem mínútum bætt við.
43. mín
Víkingar eru að pressa Valsmenn mjög vel og ekki að sjá að Víkingar séu einum færri.
41. mín
Víkingar pressa frábærlega ofarlega á vellinum og vinna boltann af Aron Jó og keyra inn á teig en Valsmenn koma þessu í horn.

Víkingar ná hinsvega ekki að gera mikið úr þessu horni.
Valur
40. mín
Gult spjald

Jónatan Ingi Jónsson

Fer hátt upp með fótinn í baráttunni við Valdimar Þór.
39. mín
Það er kraftur í Víkingum þessa stundina og þeir líklegri ef eitthvað er til að setja næsta mark.
Valur
38. mín
Gult spjald

Sigurður Egill Lárusson

Fer aftan í Ara Sigurpáls og fer réttilega í bókina.
Víkingur R.
35. mín
Gult spjald

Nikolaj Andreas Hansen

Fær gult fyrir dýfu í teignum en ég er bara alls ekki viss með þetta.

Leit út fyrir að vera klárt víti en ég skal ekki segja..
Valur
33. mín
Valur tvöfaldar.

Tarik Ibrahimagic (sjm)

Bjarni Mark fer full auðveldlega framhjá Karli Friðleifi og kemur með boltann fyrir markið þar sem Tarik Ibrahimagic setur hann svo í eigið net.

Vont verður verra fyrir heimamenn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
32. mín
Víkingar sleppa!
Valsmenn keyra upp hægri vænginn og koma boltanum fyrir markið þar sem Tryggvi Hrafn kemst í boltann en Ingvar ver og Patrick Pedersen nær ekki að refsa með seinni bolta.
29. mín
Víkingar heppnir
Víkingar stálheppnir að fá ekki dæmt á sig víti eftir hornið þar sem hann virðist fara í hendina á þeim þegar þeir eru að koma boltanum burt.
Víkingur R.
28. mín
Gult spjald

Sölvi Ottesen

Vildi fá aukaspyrnu í aðdragandanum á þessu færi og mótmælti.
27. mín
Víti?
Valsmenn sækja upp vinstri og koma boltanum á Patrick Pedersen sem fer til hliðar og fellur svo við í teignum og Valsemnn vilja fá víti en fá bara horn.
26. mín
Það er hiti
Bjarni Mark brotlegur og Víkingar vilja fá spjald.

Það er hiti í þessu.
Valur
25. mín
VALUR TEKUR FORYSTU!

Gylfi Þór Sigurðsson

Fyrirgjöf frá Aroni Jó fyrir markið þar sem Patrick Pedersen skallar boltann í stöngina og Gylfi Þór Sigurðsson fylgir eftir!

VALUR LEIÐIR!
Víkingur R.
22. mín
Gult spjald

Karl Friðleifur Gunnarsson

Mótmæli.
Víkingur R.
21. mín
VÍKINGAR MANNI FÆRRI!

Aron Elís Þrándarson (f)

Fær seinna gula fyrir hraustlega tæklingu á Bjarna Mark. Furðuleg ákvörðun að láta vaða í þetta á gulu spjaldi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

20. mín
Nálægt!
Valsmenn stinga Patrick Pedersen í gegn og Ingvar kemur út á móti en Patrick fer framhjá Ingvari en missir hann aðeins frá sér og nær ekki að gera sér mat úr þessu.
19. mín
Ari Sigurpáls kemur inn á völlinn og lætur vaða en Ögmundur ekki í teljandi vandræðum með þetta.
17. mín
Patrick Pedersen fær skoppandi bolta og lætur bara vaða af krafti en Ingvar Jónsson varði vel.
15. mín
Hrikalega illa framkvæmt horn hjá Val. Tóku það stutt og og misstu boltann í innkast .
15. mín
Valsmenn að fá sína fyrstu hornspyrnu. Skot frá Aron Jó sem fór af varnarmanni og aftur fyrir.
11. mín
Karl Friðleifur með frábæran bolta fyrir markið í hættusvæðið en Niko Hansen örlítið of seinn og missir af honum.
Víkingur R.
9. mín
Gult spjald

Aron Elís Þrándarson (f)

Heldur seinn í tæklingu og fer í svörtu bókina.
8. mín
Tarik Ibrahimagic með flottan bolta fyrir úr horninu en Nikolaj Hansen nær ekki að stýra boltaum á markið.
7. mín
Víkingar fá fyrsta horn leiksins.
6. mín
Valdimar Þór með flottan bolta fyrir markið og Valsmenn í smá brasi að koma boltanum burt en ná því þó á endanum.
4. mín
Tryggvi Hrafn reynir skot sem fer hátt yfir.
1. mín
Víkingar nálægt því að koma Valdimar Þór í gegn en fyrsta snertingin svíkur.
1. mín
Heimamenn byrja með boltann og sparka þessu af stað.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Víkingur gerir þrjár breytingar á sínu líði frá leiknum ytra gegn Santa Coloma en inn koma Danijel Dejan Djuric, Tarik Ibrahimagic og Aron Elís Þrándarson.

Valur gera þá tvær breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Vestra. Aron Jóhannsson og Orri Sigurður Ómarsson koma inn.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður á RÚV spáir í 21. umferð sem fer öll fram í dag.

Víkingur R. 2-1 Valur
Víkingum er létt eftir að hafa klárað þetta skrímsli sem Santa Coloma vélin er. Eina sem ógnar þeim í þessum leik er að Gylfi Sig verður í Breiðablik úti gírnum. Þessir tveir leikir voru kyrfilega merktir á dagatalinu hans.

Fyrir leik
Boð og bönn
Varnarmennirnir Jón Guðni Fjóluson og Gunnar Vatnhamar verða ekki með Víkingi í leiknum þar sem þeir taka báðir út leikbann vegna uppsafnaðra áminninga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Þá er Arnar Gunnlaugsson þjálfari að fara að afplána annan leik sinn af þremur í leikbanni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Hjá Val er líka stórt nafn í leikbanni; Kristinn Freyr Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Víkingar tryggðu sig inn í sambandsdeildina
Dregið var hvaða andstæðinga Víkingar munu mæta í Sambandsdeildinni í haust á föstudaginn.

Andstæðingar Víkings
LASK (úti)
Djurgården (heima)
Omonia (úti)
Cercle Brugge (heima)
Borac (heima)
Noah (úti)

Fyrir leik
Gylfi Þór Sigurðsson snýr aftur í landsliðið
Gylfi Þór Sigurðsson er mættur aftur í íslenska landsliðshópinn. Hann er í hópnum sem hefur leik í Þjóðadeildinni gegn Svartfjallalandi heima og Tyrklandi ytra.

Fyrir leik
Víkingur R.
Víkingar hafa verið virkilega öflugir í sumar og kórónuðu flott sumar með því að tryggja sig inn í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu á dögunum ofan á það að vera í Bikarúrslitum og í baráttu um titilinn.

Gengið í deildinni hefur aðeins verið hikstandi yfir þessu evrópuævintýri en Víkingar hafa til að mynda ekki unnið síðustu tvo leiki en þeir gerðu jafntefli við Vestra og töpuðu gegn ÍA í síðustu tveim leikjum fram að þessum. Víkingar eru staðráðnir í því að koma tilbaka í kvöld með alvöru 'statement' sigur en þeir eru í hörku baráttu um efsta sætið við Breiðablik.

Víkingar hafa verið flottir fyrir framan markið í sumar og skorað 44 mörk. Þessi mörk hafa raðast niður á:

Helgi Guðjónsson - 8 mörk
Valdimar Þór Ingimundarson - 7 mörk
Danijel Dejan Djuric - 6 mörk
Nikolaj Hanesen - 5 mörk
Ari Sigurpálsson - 5 mörk
Aron Elís Þrándarson - 4 mörk
Erlingur Agnarsson - 3 mörk
*Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Valur
Valur unnu Vestra í síðustu umferð með þremur mörkum gegn einu og ríghalda í vonina um að taka þátt í titilbaráttunni nú þegar það styttist í skiptingu á deildinni. Ef Valur sigrar hér í kvöld má segja að þeir stimpli sig að alvöru aftur inn í pakkan fyrir ofan sig en þá verða þeir aðeins fimm stigum á eftir Víkingum.

Valur hefur aðeins verið að missa flugið í síðustu umferðum en vonandi var sigurinn í síðustu umferð ákveðin vendipunktur fyrir strákana á Hlíðarenda.

Valsmenn hafa verið öflugir fyrir framan markið í sumar og skorað flest mörkin í deildinni til þessa eða 47 talsins.

Mörk Vals hafa skorað:

Patrick Pedersen - 13 mörk
Jónatan Ingi Jónsson - 11 mörk
Gylfi Þór Sigurðsson - 8 mörk
Tryggvi Hrafn Haraldsson - 7 mörk
*Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Sigurður Hjörtur Þrastarson fær það verðuga verkefni að munda flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar verða Egill Guðvarður Guðlaugsson og Andri Vigfússon.
Twana Khalid Ahmed er varadómari og Frosti Viðar Gunnarsson er eftirlitsmaður KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá heimavelli hamingjunnar þar sem Víkingar og Valur mætast í 21.umferð Bestu deild karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.