Fotbolti.net
Besta deildin
@HalldorGauti08Halldór Gauti Tryggvason
Stjarnan
Stjarnan
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Samsungvöllurinn
8°C, skýjað og létt gola
2 - 1
Tindastóll
Tindastóll
0 - 11' Jordyn RhodesHulda Hrund Arnarsdóttir 24'1 - 1Hrefna Jónsdóttir 48'2 - 1
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Myndir: Tryggvi Már Gunnarsson

SKÝRSLAN: Stjarnan lýkur tímabilinu með sigri

Hvað réði úrslitum?

Fjörugur leikur í Garðabænum í dag. Lítið undir í þessum leik þar sem bæði lið voru örugg með áframhaldandi viðveru í Bestu-deildinni. Leikurinn fór af stað með látum en Jordyn Rhodes skoraði gullfallegt mark eftir 35 sekúndna leik. Gestirnir héldu áfram að ógna en Stjarnan vann sig hægt og rólega inn í leikinn. Hulda Hrund jafnaði svo metin á 24. mínútu eftir hornspyrnu. Fyrri hálfleikur var stútfullur af hornum og voru þær orðnar 15 talsins er liðin gengu til búningsherbergja. Seinni hálfleikurinn hófst eins og sá fyrri, með marki. Stjarnan komst yfir á 48. mínútu eftir glæsimark Hrefnu Jónsdóttur. Heilt yfir hressandi og góður fótboltaleikur.

Bestu leikmenn

1. Hrefna Jónsdóttir

Mjög gaman að fylgjast með Hrefnu í dag. Var mikið í boltanum og stafaði mikil hætta af henni. Hrefna skoraði einnig sigurmark leiksins eftir frábæran sprett og góða afgreiðslu!

2. Jordyn Rhodes

Jordyn hefur verið frábær í sumar og var það líka í dag. Skoraði stórkostlegt mark, negla fyrir utan teig, þegar einungis 35 sekúndur voru liðnar af leiknum!

Atvikið

Mark Jordyn Rhodes. Skoraði gullfallegt mark eftir 35 sekúndna leik!

Hvað þýða úrslitin?

Eins og fram hefur komið var ekki mikið undir í leiknum í dag. Stjarnan endar tímabilið í 7. sætinu (efstar í neðri-hlutanum) og Tindasóll í 8. sætinu.

Vondur dagur

Afar erfitt að segja aðe inhver hafi átt slæman dag. Heilt yfir mjög flottur fótboltaleikur!

Dómarinn - 7

Fínt dagsverk hjá Ásmundi og hans teymi. Nokkrir skrýtnir dómar og óþarfa spjöld en heilt yfir vel dæmdur leikur
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.