SKÝRSLAN: Gæðalítið og markalaust í Laugardalnum
Hvað réði úrslitum?
Mikið gæðaleysi hjá báðum liðum í dag. Spurning hvort að tilefnið hafi haft áhrif en það er ekkert undir hjá báðum liðum þessa dagana nema stoltið og oft er það bara ekku nóg til að gíra sig upp í leiki. Eitt er víst að ég fæ þessar 90 mínútur aldrei aftur.
Bestu leikmenn
1. Mollee Swift
Báðir markmennirnir gerðu allt hvað þær gátu til að halda sínum liðum inní leiknum og ég vel þær því bara saman. Mollee varði nokkrum sinnum mjög vel og hélt sínum konum inní leiknum.
2. Harpa Jóhannsdóttir
Eins og Mollee varði Harpa vel oft á tíðum og átti meðal annars stóra vörslu í uppbótartíma frá Melissu sem átti góðan skalla af stuttu færi.
Atvikið
Þróttarar voru nálægt því að stela þessu í uppbótartíma þegar Melissa Alison Garcia fékk frían skalla inn á markteig en Harpa varði stórvel í marki Þór/KA
Hvað þýða úrslitin?
Eins og áður segir eru bæði þessi lið ekki að spila upp á neitt í deildinni. Þór/KA heldur 3. sætinu og Þróttarar halda sömuleiðis 5. sætinu.
Vondur dagur
Þrátt fyrir lítið af opnum færum þá fengu bæði lið sénsa á að klára leikinn en enginn greip gæsina og markalaust jafntefli niðurstaðan.
Dómarinn - 7
Aðalbjörn og Guðni Páll gerðu þetta bara vel í dag, ekkert sérstaklega erfiður leikur að dæma í raun og veru. Spurning hvort að það hafi átt að vera annar litur á eina spjaldi leiksins miðað við það sem ég heyrði frá þeim sem sáu atvikið en undirrituð sá það ekki svo það er erfitt fyrir mig að segja hvort að sú ákvörðun hafi verið rétt eða röng.



