Leik lokið!
Öruggur sigur Blika!
Léttleikandi ungu strákar Blika voru í banastuði undir lok leiks og kláruðu leikinn endanlega. Breiðablik verður í pottinum þegar dregið verður í 16 liða úrslit Mjólkurbikarsins.
89. mín
Viktor Karl séntilmaður með meiru gerir sitt allra besta að skýla boltanum inn í netið með varnarmann Fjölnis í bakinu. Viktor vildi greinilega gefa Ágústi markið.
Blikar með sýningu!
Ágúst Orri Þorsteinsson
Ágúst með frábæra móttöku með hælnum og sleppur í gegn. Hann lyftir boltanum svo huggulega yfir Hauk í marki gestanna. Frábærlega gert!Viktor Karl séntilmaður með meiru gerir sitt allra besta að skýla boltanum inn í netið með varnarmann Fjölnis í bakinu. Viktor vildi greinilega gefa Ágústi markið.
87. mín
Sæmilega markið!
Tumi Fannar Gunnarsson (stoðsending: Viktor Elmar Gautason)
Viktor Elmar gefur fyrir á Tuma sem tekur skotið í fyrsta og boltinn endar í bláhorninu.83. mín
InnAxel Freyr Ívarsson
ÚtDaníel Ingvar Ingvarsson
83. mín
InnÞorkell Kári Jóhannsson
ÚtÁrni Steinn Sigursteinsson
82. mín
Fjölnir í færi!
Boltinn berst á Daníel Ingvar sem hittir boltann illa og skotið vel framhjá.
77. mín
Fyrsta mark Viktors í meistaraflokki.
Viktor Elmar takk fyrir pent!
Viktor Elmar Gautason
Viktor sker inn og spænir sig í gegnum vörn Fjölnis og setur hann huggulega í fjær, þvílíkt mark!Fyrsta mark Viktors í meistaraflokki.
73. mín
InnÓskar Dagur Jónasson
ÚtBjarni Þór Hafstein
73. mín
InnDagur Örn Fjeldsted
ÚtTobias Thomsen
70. mín
Gestirnir bjarga á línu
Boltinn dettur fyrir Viktor Karl í teignum sem gerir sér lítið fyrir og hælar hann í átt að markinu en varnarmaður Fjölnis bjargar á ögurstundu.
69. mín
Óli Valur strax kominn í færi. Skot úr þröngri stöðu sem Haukur Óli ver vel.
67. mín
InnArnór Gauti Jónsson
ÚtHöskuldur Gunnlaugsson
Fjórföld breyting!
67. mín
InnViktor Elmar Gautason
ÚtGabríel Snær Hallsson
67. mín
InnTumi Fannar Gunnarsson
ÚtValgeir Valgeirsson
67. mín
InnÓli Valur Ómarsson
ÚtAron Bjarnason
63. mín
Gult spjald
Brynjar Gauti Guðjónsson
61. mín
En Valgeir fylgir eftir!
Valgeir Valgeirsson
Valgeir fyrstur á boltann og klárar vel úr þröngri stöðu!61. mín
Höskuldur klúðrar!
Höskuldur Gunnlaugsson
Haukur Óli ver vel!60. mín
Breiðablik fær víti!
Fjölnir Sigurjóns fer aftan í Ágúst Orra og Arnar bendir á punktinn!
56. mín
Fjölnismenn að vakna
Árni Steinn fær boltann í teig Blika, reynir skotið en Ásgeir Helgi gerir vel og kemst fyrir. Gestirnir að færa sig upp á skaftið.
48. mín
Daníel Ingvar í góðri stöðu við vítateig og ætlar sér að renna boltanum á Egil Otta en varnarmaður Breiðabliks kemst í sendinguna. Illa farið með góða stöðu.
46. mín
InnMikael Breki Jörgensson
ÚtÁrni Elvar Árnason
Árni þurfti aðhlynningu í fyrri hálfleik og er tekinn af velli í hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Breiðablik byrjar með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Breiðablik leiðir í hálfleik!
Arnar Þór flautar til hálfleiks. Blikar hafa verið allsráðandi í þessum fyrri hálfleik. Mörk Breiðabliks hefðu hæglega getað verið fleiri.
44. mín
Dauðafæri!
Tobias Thomsen með skalla úr markteig en nær ekki að stýra boltanum á rammann!
43. mín
Blikar að fá sína elleftu hornspyrnu
Ekkert kemur úr henni. Staðan 11-1 í hornspyrnum.
38. mín
Fyrsta marktilraun Fjölnis
Egill Otti með skot úr teignum sem fer í varnarmann og þaðan í hornspyrnu. Brynjar Atli, markvörður Blika kýlir hornspyrnuna frá.
33. mín
Daniel Obbekjær með skalla á mark Fjölnis sem Haukur Óli ver vel.
31. mín
Kristinn Steindórsson með þrumuskot rétt yfir mark gestanna, eftir stutta hornspyrnu Blika.
29. mín
Vá þetta hefði verið sprellimark!
Boltinn einhvernveginn fer í Hilmar Elís, varnarmann Fjölnis við vítateig og þaðan í innanverða stöngina! Haukur Óli, markvörður Fjölnis handsamar boltann að lokum.
24. mín
Tobias er búinn að skora í báðum leikjunum í Bestu-deildinni og opnar nú markareikninginn í Mjólkurbikarnum.
Sjóðheitur Tobias Thomsen!
Tobias Thomsen (stoðsending: Höskuldur Gunnlaugsson)
Höskuldur með frábæra fyrirgjöf beint á kollinn á Tobias sem stangar boltann út við innanverða stöngina.Tobias er búinn að skora í báðum leikjunum í Bestu-deildinni og opnar nú markareikninginn í Mjólkurbikarnum.
20. mín
Gult spjald
Gabríel Snær Hallsson
18. mín
Frábær útfærsla Blika!
Aron Bjarna fær boltann stutt eftir hornspyrnu. Hann nær góðum þríhyrning við Gabríel Snæ og galopna vörn Fjölnis. Aron fer svo í skot úr þröngu færi sem Haukur Óli ver vel og boltinn í annað Blikahorn.
18. mín
Árna er hleypt aftur inn á völlinn.
17. mín
Árni Elvar liggur niðri og þarfnast aðhlynningar. Aðeins 10 Fjölnismenn inn á núna.
12. mín
Aron Bjarna með sendingu fyrir markið sem Haukur Óli, markvörður Fjölnis handsamar.
Haukur er fæddur árið 2008 og er að spila sinn þriðja leik fyrir Fjölni í meistaraflokki.
Haukur er fæddur árið 2008 og er að spila sinn þriðja leik fyrir Fjölni í meistaraflokki.
10. mín
Blikar hættulegri eins og við mátti búast.
6. mín
Aron Bjarna með hættulega fyrirgjöf eftir hornspyrnu, en enginn grænklæddur mættur til að stanga boltann inn.
2. mín
Heimamenn fá fyrstu hornspyrnu leiksins. Blikar taka það stutt og halda í boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Gestirnir byrja með boltann og sækja í átt að Fífunni.
Fyrir leik
Liðin trítla inn á völlinn og hnetan í græjunum, allt eins og það á að vera.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi - Sex breytingar hjá Blikum
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks gerir 6 breytingar á liði sínu frá tapinu gegn Fram. Brynjar Atli, Obbekjær, Ásgeir Helgi, Kristinn Steindórs, Ágúst Orri og Gabríel Snær koma allir inn í byrjunarliðið.
Gunnar Már Guðmundsson gerir eina breytingu á sínu liði frá sigrinum gegn RB síðastliðinn mánudag. Axel Freyr víkur úr byrjunarliðinu. Í stað hans kemur uppaldi Fjölnismaðurinn, Fjölnir Sigurjónsson.

Gunnar Már Guðmundsson gerir eina breytingu á sínu liði frá sigrinum gegn RB síðastliðinn mánudag. Axel Freyr víkur úr byrjunarliðinu. Í stað hans kemur uppaldi Fjölnismaðurinn, Fjölnir Sigurjónsson.

Fyrir leik
Bikar Baddi spáir í spilin
Baldvin Már Borgarsson þjálfari Árbæjar umbreyttist þessa vikuna í Bikar Badda og spáir í 32 liða úrslit Mjólkurbikarsins fyrir Fótbolti.net.
Breiðablik 4 - 0 Fjölnir
,,Blikarnir rótera aðeins í liðinu og menn sem fá tækifærið verða hungraðir, Fjölnismenn verða auðveld bráð fyrir íslandsmeistarana, Ásgeir Frank fær líklega rautt enda mikill Víkingur og tekur einhverja Lui takta á Dóra Árna sem kastar sér í tartanið með listrænum tilburðum."

Breiðablik 4 - 0 Fjölnir
,,Blikarnir rótera aðeins í liðinu og menn sem fá tækifærið verða hungraðir, Fjölnismenn verða auðveld bráð fyrir íslandsmeistarana, Ásgeir Frank fær líklega rautt enda mikill Víkingur og tekur einhverja Lui takta á Dóra Árna sem kastar sér í tartanið með listrænum tilburðum."

Fyrir leik
Blikar vilja kvitta fyrir tapið gegn Fram
Fram lagði Breiðablik í 2. umferð Bestu deildarinnar. Lokatölur voru 4-2 en Breiðablik leiddi 0-2 eftir 70 mínútna leik. Rúmum tíu mínútum síðar var staðan orðin 4-2 fyrir heimamenn í Úlfarsárdalnum.
Þetta var fyrsta tap Breiðabliks í deildinni í rúma níu mánuði. Tapið var þá gegn FH þann 28. júní.
Þetta var fyrsta tap Breiðabliks í deildinni í rúma níu mánuði. Tapið var þá gegn FH þann 28. júní.
Fyrir leik
Fjölnir fór örugglega áfram gegn RB
Fjölnir mættu 5. deildarliði RB í 64-liða úrslitum. Fjölnismenn fóru hægt af stað en Árni Steinn Sigursteinsson braut ísinn undir lok fyrri hálfleiks. Þeir gulklæddu gáfu í í síðari hálfleik og urðu lokatölur leiksins 4-0.
RB 0-4 Fjölnir
0-1 Árni Steinn Sigursteinsson, 45'+1
0-2 Hilmar Elís Hilmarsson 59'
0-3 Reynir Haraldsson 73'
0-4 Reynir Haraldsson 90'+1

RB 0-4 Fjölnir
0-1 Árni Steinn Sigursteinsson, 45'+1
0-2 Hilmar Elís Hilmarsson 59'
0-3 Reynir Haraldsson 73'
0-4 Reynir Haraldsson 90'+1

Fyrir leik
Mjólkin rúllar áfram
Heilir og sælir lesendur góðir. Verið velkomin í beina textalýsingu frá Kópavogsvelli þar sem Breiðablik mætir Fjölni í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.






