Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Mjólkurbikar karla
AVIS völlurinn
Sól og vindur. Flottasta veður framundan.
Grótta
Grótta
1 - 4
ÍA
ÍA
0 - 138' Viktor Jónsson0 - 249' Ómar Björn StefánssonCaden Robert McLagan 53'1 - 21 - 355' Ómar Björn Stefánsson1 - 463' Gísli Laxdal Unnarsson
Dómari: Hreinn Magnússon

SKÝRSLAN: ÍA sigraði Gróttu þægilega í Laugardalnum

Hvað réði úrslitum?

ÍA var mikið yfirburðarlið í þessum leik, eins og var búist við. Grótta áttu nokkra fína kafla í lok fyrri og lok seinni hálfleik, en þeir náðu ekki að skapa sér nein hættuleg færi.

Bestu leikmenn

1. Jón Gísli Eyland Gíslason

Jón Gísli var ótrúlega sprækur í þessum leik. Hann skapaði mikla hættu fyrir varnamenn Gróttu og nældi sér í eina stoðsendingu.

2. Ómar Björn Stefánsson

Ómar var flottur í leiknum. Fékk að byrja í dag og skoraði tvö mörk, gaf alveg shout á sig sem framtíðar markaskorari ÍA.

Atvikið

Þetta var ekki rosa spennandi leikur, en það sem var kom mest á óvart í dag var markið hans Caden McLagan til að minnka muninn í 1-2. Hann skoraði glæsilegt mark með alvöru þrumu skoti og átti lang flottasta mark leiksins, og mögulega flottasta mark umferðina í Mjólkurbikarnum.

Hvað þýða úrslitin?

ÍA heldur áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins á meðan Grótta dettur út úr bikarnum.

Vondur dagur

Grótta voru alls ekki mættir í dag gegn stuðmiklum ÍA mönnum. Þetta átti alltaf eftir að vera erfitt fyrir Gróttu og urðu engin óvænt úrslit í Laugardalnum í dag. Framherjarnir náðu ekki að skapa færi og varnamenn Gróttu áttu erfitt með hraða ÍA í leiknum.

Dómarinn - 4

Hreinn var með skrítna línu í þessum leik. Hann byrjaði snemma að gefa mikið af spjöldum, sum mjög dauf brot. Hann dæmdi líka á soft brot þar sem leikurinn hefði alveg getað haldið áfram. Línan lagaðist í seinni hálfleik, en þá var þegar of seint að vera breyta línunnni of mikið. Annars engin mikilvæg atvik sem gerðist í þessum leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.