Fotbolti.net
Bogi Sigurbjörnsson
Stjarnan
Stjarnan
Mjólkurbikar karla
Samsungvöllurinn
5 - 3
Njarðvík
Njarðvík
0 - 12' Oumar DiouckEmil Atlason 25'1 - 1Emil Atlason 36'2 - 12 - 264' Valdimar Jóhannsson2 - 367' Tómas Bjarki JónssonÖrvar Eggertsson 90'3 - 3Sindri Þór Ingimarsson 94'4 - 3Örvar Eggertsson 114'5 - 3
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson

SKÝRSLAN: Stjarnan slapp með skrekkinn á móti Njarðvík

Hvað réði úrslitum?

Fyrri hálfleikur var aðeins lokaðri en sá seinni þrátt fyrir 3 mörk en Emil Atla gerði þar vel að vera alltaf rétti maður á réttum stað. Í seinni hálfleik komu Njarðvíkingar kol vitlausir út og voru mun betri, en það er bara fyrir mistök hjá Aroni Snæ að Stjarnan náði þessu í framlengingu. Í framlengingunni sást að Njarðvíkingar áttu ekki mikið eftir á tanknum og var það að lokum þeim að falli.

Bestu leikmenn

1. Örvar Eggertsson

Örvar byrjaði á bekknum sem reyndist góð ákvörðunn hjá Jökli, þreyttir Njarðvíkingar áttu ekki breik í hann og hann endaði leikinn með 2 mörk og eitt af þeim á lokasekúndum venjulegs leiktíma

2. Tómas Bjarki Jónsson

Tómas Bjarki fyrirliði gestanna var stórkostlegur í dag, hann var á hundrað allan leikinn og stjórnaði sínum mönnum á vellinum vel í dag og uppiskar hann með einu marki.

Atvikið

Atvikið í dag eru klárlega markið á lokasekúndu venjulegs leiktíma sem Örvar skoraði en þetta voru slæm mistök hjá Aroni, en það var samt nóg af skemmtilegum og áhugaverðum atvikum í dag.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Njarðvíkingar detta úr bikarinum og Stjarnan heldur áfram í 16 liða úrslit. Njarðvíkingar eru náttúrulega í deild fyrir neðan Stjörnuna og þeir geta labbað stoltir af borði eftir þessa frammistöðu, þeir eiga fyrsta leik í Lengjudeildinni 2. maí á móti sterku liði Fylkis. Stjarnan heldur næst í Kópavoginn þar sem Garðbæingar fara í hörkuleik á móti ríkjandi Íslandsmeisturum Breiðabliks.

Vondur dagur

Aron Snær Friðriksson, markmaður Njarðvíkur, gerði tvö slæm mistök sem varð hans mönnum að falli, fyrst slær hann boltann aftur fyrir sig og beint á Örvar sem skoraði en gæti verið að sólin hafi verið eithvað að þvælast fyrir honum. Í fyrsta markinu í framlengingunni hefði hann líka átt að gera betur, boltinn kemur óvænt til hans en hann slær boltan laust fram fyrir sig og Sindri Þór skorar. En það er bara upp upp og áfram fyrir Aron.

Dómarinn - 6

Mér fannst hann heilt yfir mjög flottur fyrir utan þetta rauða spjald sem hann gaf Kjartani í vítinu, en annars var línan í leiknum fín og leikurinn fékk að ganga.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.