Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Vestri
Vestri
Mjólkurbikar karla
Kerecisvöllurinn
8 - 7
HK
HK
Eiður Aron Sigurbjörnsson 22'1 - 0Kristoffer Grauberg Lepik 26'2 - 02 - 130' Dagur Orri Garðarsson2 - 257' Tumi ÞorvarssonDaði Berg Jónsson 90'3 - 23 - 390' Jóhann Þór ArnarssonDiego Montiel (víti) 120'4 - 3Vladimir Tufegdzic (víti) 120'5 - 3Daði Berg Jónsson (víti) 120'6 - 3Gustav Kjeldsen (víti) 120'7 - 3Jeppe Pedersen (víti) 120'8 - 38 - 4120' Reynir Leó Egilsson (víti)8 - 5120' Jóhann Þór Arnarsson (víti)8 - 6120' Brynjar Snær Pálsson (víti)8 - 7120' Jóhann Þór Arnarsson (víti)
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Dramatík, víti og skógarhlaup fyrir vestan

Hvað réði úrslitum?

Vestramenn skoruðu úr fyrstu tveimur skotunum sínum á markið og voru þar komnir í góða forystu. HK-ingar unnu hinsvegar hart að því að koma til baka sem þeir gerðu á 57. mínútu og staðan orðin 2-2. Daði Berg Jónsson skoraði svo á 90. mínútu og ég hélt að Vestramenn væru að klára þetta en á lokamínútu uppbótartíma jafnar Jóhann Þór Arnarsson. Framlengingin var svo nokkuð dauf en vítaspyrnukeppnin fór í bráðabana þar sem Schubert markvörður Vestra varði tvisvar og Jeppe Pedersen skoraði úr lokaspyrnunni.

Bestu leikmenn

1. Benjamin Schubert (Vestri)

Hetjan í vítaspyrnukeppninni og hann fær þá þennan heiður. Hann var ekkert stórfenglegur í leiknum sjálfum en þegar skipti máli þá varði hann vítin.

2. Daði Berg Jónsson (Vestri)

Daði kom inná á 62. mínútu og það sem fylgdi því var strax gæði. Hann var að vinna mjög skemmtilega með Kristoffer Grauberg og svo skoraði Daði markið á 90. mínútu sem flestir héldu að væri sigurmarkið.

Atvikið

Arnar Freyr Ólafsson var að reyna að finna sinn innri Manuel Neuer í þessum leik en það gekk frekar illa. Á 76. mínútu fer hann í svakalegt skógarhlaup þar sem hann endar á að taka Silas Songani niður og hefði átt að fá rautt spjald en var heppinn og fékk bara gult. Hann fór svo seinna í leiknum aftur í galið skógarhlaup en það var ekki jafn slæmt og það fyrra.

Hvað þýða úrslitin?

Vestramenn fara áfram í bikarnum en eru búnir að spila langan leik með uppbótartíma. HK er dottið úr leik og þarf ekki að pæla í neinu öðru en Lengjudeildinni sem hefst 2. maí.

Vondur dagur

Arnar Freyr Ólafsson eins og ég skrifaði um í atvikinu var í svaka skrítnum úthlaupum. Honum tókst síðan ekki að verja neitt víti í vítaspyrnukeppninni heldur voru klikkin hjá Vestra í slánna og hitt yfir.

Dómarinn - 5

Mér fannst stórskrýtið að gefa Arnari ekki rautt fyrir það sem ég skrifaði um í atvikinu. Það er svo stórt atvik að Gunnar er dreginn töluvert niður í einkunn. Restin af leiknum var nefnilega ágætlega dæmdur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.