SKÝRSLAN: Blikar í markaskónum og séntilmaðurinn Viktor Karl
Hvað réði úrslitum?
Fjölnismenn lágu lágt niðri og Breiðablik þurftu smá tíma að reyna finna glufur á vörninni. Eftir fyrsta markið var sigur Breiðabliks aldrei í hættu. Fjölnir ógnuðu lítið sem ekkert og þegar Fjölnir stigu aðeins á Blika þá opnaðist svæði fyrir aftan þá. Ungu strákar Breiðabliks héldu þá til sýningar og skoruðu þrjú mörk hvert öðru fallegra.
Bestu leikmenn
1. Ágúst Orri Þorsteinsson
Ágúst sótti víti og skoraði einkar huggulegt mark sjálfur, flottur í dag.
2. Viktor Elmar Gautason
Viktor kom inn á og stal senunni. Skoraði frábært mark og lagði upp á þessum stutta tíma sem hann var inn á.
Atvikið
Viktor Karl er ágætis fótboltamaður en fyrst og fremst er hann frábær manneskja. Það sannaðist svo sannarlega í síðasta marki Breiðabliks í dag. Þar sem Ágúst Orri lyfti boltanum yfir Hauk, markvörð Fjölnis. Viktor Karl gat hæglega stolið markinu, en skýldi boltanum í staðinn með kjafti og klóm. Viktor var með markmann Fjölnis í bakinu sem að lokum hrinti Viktori þegar boltinn lak yfir línuna.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik verður í pottinum þegar dregið verður í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars karla.
Vondur dagur
Það var ekki eins og einhver átti stórleik hjá Fjölni, en það er leiðinlegt að velja allt liðið og ég vil forðast það að vera leiðinlegur. Varnarlína Fjölnis hélt ágætlega framan af. Árni Steinn fékk nokkrar stöður sem fremsti maður og hefði mátt nýta betur. Sömuleiðis varnarlínan slök undir lok leiks þegar liðið steig hærra upp.
Dómarinn - 7
Sá ekki vítaatvikið en Gunnar Már, þjálfari Fjölnis var sannfærður um að það hafi verið rangur dómur. Annars var lítið hægt að setja út á tríóið.



