Fotbolti.net
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Mjólkurbikar karla
Kerecisvöllurinn
Vestri
Vestri
8 - 7
HK
HK
Eiður Aron Sigurbjörnsson 22'1 - 0Kristoffer Grauberg Lepik 26'2 - 02 - 130' Dagur Orri Garðarsson2 - 257' Tumi ÞorvarssonDaði Berg Jónsson 90'3 - 23 - 390' Jóhann Þór Arnarsson120' Dagur Orri Garðarsson (misnotað víti)Diego Montiel (víti) 120'4 - 3120' Jóhann Þór Arnarsson (misnotað víti)Anton Kralj (misnotað víti) 120'4 - 4120' Reynir Leó Egilsson (víti)Eiður Aron Sigurbjörnsson (misnotað víti) 120'4 - 5120' Jóhann Þór Arnarsson (víti)Vladimir Tufegdzic (víti) 120'5 - 55 - 6120' Brynjar Snær Pálsson (víti)Daði Berg Jónsson (víti) 120'6 - 66 - 7120' Jóhann Þór Arnarsson (víti)Gustav Kjeldsen (víti) 120'7 - 7120' Hákon Ingi Jónsson (misnotað víti)Jeppe Pedersen (víti) 120'8 - 7
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Leik lokið!
Þvílík dramatík í þessum leik! Vítaspyrnukeppni sem fer í bráðabana, tvö mörk á lokamínútum í venjulegum leiktíma vá!

Skýrslan kemur inn á vefinn innan skamms.

Vestri
120. mín
VESTRI ER KOMIÐ ÁFRAM Í BIKARNUM

Jeppe Pedersen

Öruggt niður í vinstra hornið á meðan Arnar hreyfir sig ekki.
HK
120. mín
STÖNGIN!!

Hákon Ingi Jónsson

Vestri þarf bara að skora núna og þeir eru komnir áfram
Mynd: Guðjón Elmar

Vestri
120. mín
Mark úr víti!

Gustav Kjeldsen

Kjeldsen öruggur.
HK
120. mín
Mark úr víti!

Jóhann Þór Arnarsson

Eru margir númer 9 hjá HK? Ég er að skrá einhverja vitalasut hér en það verður að hafa það.
Vestri
120. mín
Mark úr víti!

Daði Berg Jónsson

Öruggt. Þá er það bráðabani.
HK
120. mín
Mark úr víti!

Brynjar Snær Pálsson

Besta vítið hingað til. Upp í skeytin.
Vestri
120. mín
Mark úr víti!

Vladimir Tufegdzic

Niður í hægra hornið.
HK
120. mín
Mark úr víti!

Jóhann Þór Arnarsson

ÖRUGGT
Vestri
120. mín
Víti misnotað

Eiður Aron Sigurbjörnsson

SKELFILEGT VÍTI HÁTT YFIR.
HK
120. mín
Mark úr víti!

Reynir Leó Egilsson

Virkilega gott víti, upp í hægra hornið.
Vestri
120. mín
SLÁIN !

Anton Kralj

Skýtur í slánna og svo niður í Arnar
HK
120. mín
Víti misnotað

Jóhann Þór Arnarsson

SCHUBERT VER AFTUR!!
Vestri
120. mín
Mark úr víti!

Diego Montiel

Öruggt, sendir Arnar í vitlaust horn.
HK
120. mín
Víti misnotað

Dagur Orri Garðarsson

Schubert ver fyrstu spyrnuna!!
Mynd: Guðjón Elmar

120. mín
+4 Vítaspyrnukeppni!
Diego Montiel með síðasta sparkið sem er skot fyrir utan teig sem fer yfir.

Við erum á leiðinni í vítaspyrnukeppni!
Mynd: Guðjón Elmar

Mynd: Guðjón Elmar

Mynd: Guðjón Elmar

120. mín
+3
Túfa fær boltan inn í teig. Boltinn er aðeins skoppandi fyrir framan hann og hann nær ekki að hitta hann nógu vel þannig skotið framhjá.
120. mín
+2 SKÓGARHLAUP NR 2
Daði gefur langan bolta fram á Túfa sem er að sleppa í gegn. Arnar kemur langt út úr markinu og er rétt á undan í boltann en hreinsunin hans fer beint á Diego Montiel.

Diego fer alveg skelfilega með þetta, er alltof mikið að flýta sér og skýtur í fyrsta og það hátt yfir.
120. mín
Hiti!
Gunnar Jónas fer aðeins seint í einn HK-inginn og menn fara aðeins að ýta hvor öðru. Þetta endar nú reyndar mjög fljótt, 120 mínútur af fótbolta greinilega of þreytandi til að fara í einhver alvöru slagsmál.
116. mín
Langt innkast hjá HK og Vestramenn ná ekki að hreinsa. Þá nær Haukur Leifur skotinu en það er ekki gott og fer framhjá markinu.
115. mín
Miklar líkur á vítaspyrnukeppni. Þetta hefur verið alveg steindautt í þessum seinni hálfleik framlengingar.
111. mín
Þetta er frekar rólegt, flestir líkast til orðnir mjög þreyttir og menn eru ekki mikið að skapa færi.

Annað update, ég gleymdi að setja klukkuna af stað fyrir seinni hálfleikinn í framlengingu, og þar sem ég sé ekki vallarklukkuna er tíminn á þessu hjá mér bara menntað gisk.
106. mín
Seinni hálfleikur í framlengingu hafinn
Mynd: Guðjón Elmar

105. mín
Fyrri hálfleik lokið
Vestramenn verið öflugri í þessum fyrri hálfleik framlengingar. 15 mínútur eftir, ef hvorugt liðið er komið með sigurmark fyrir það förum við í vítaspyrnukeppni.
105. mín
+2
Jeppe Pedersen kominn í fína stöðu og tekur skotið en boltinn langt framhjá.
102. mín
Arnar er staðinn upp og heldur áfram leik.
100. mín
Einn gegn markmanni!
Góð sending inn fyrir og Túfa er kominn einn gegn Arnari. Arnar kemur langt út úr markinu og ver skotið frá honum vel en boltinn dettur þá beint fyrir annan Vestra mann, ég sá ekki almennilega hver það var, en hann allavega með opið mark fyrir framan sig skýtur hátt yfir.

Arnar meiddi sig svo eitthvað í þessu úthlaupi og þarf aðhlynningu.
HK
98. mín
InnReynir Leó Egilsson
ÚtDagur Ingi Axelsson
Vestri
98. mín
InnVladimir Tufegdzic
ÚtKristoffer Grauberg Lepik
96. mín
Langur bolti fram sem Daði rétt nær að halda inn í leik. Hann reynir svo að leggja boltan á Gunnar Jónas sem er að koma með seinni bylgjunni inn í teig en HK hreinsa.

Vestri fær þá horn en það kemur ekkert úr því.
93. mín
Daði!!!
Vestra menn með flott spil upp vinstri kantinn og þeir gefa svo boltan inn í teiginn. Þar er Daði með pláss og tíma, hann tekur svo skotið en boltinn flýtur rétt framhjá markinu!
91. mín
Fyrsti hálfleikur framlengingar hafinn
90. mín
Framlenging (staðfest)
+7
Venjulegum leiktíma lokið og við förum í framlengingu. Þvílík dramatík sem þessi leikur hefur boðið upp á!
Davíð Smári þjálfari Vestra ræðir við dómarateymið fyrir framlengingu
- Mynd: Guðjón Elmar
HK
90. mín
VIÐ ERUM Á LEIÐINNI Í FRAMLENGINGU!!!!

Jóhann Þór Arnarsson

+4
HK búnir að henda öllum mönnum fram. Þeir fengu aukaspyrnu við miðjuhringinn og settu bara langan bolta inn í teig. Boltinn datta svo fyrir Jóhann inn í teig þar sem hann er dauðafrír og fær tíma til að negla boltanum í netið.
Hermann Hreiðarsson þjálfari HK fagnar markinu. Mynd: Guðjón Elmar

Vestri
90. mín
Gult spjald

Kristoffer Grauberg Lepik

+3
HK
90. mín
InnHákon Ingi Jónsson
ÚtKarl Ágúst Karlsson
+1
Vestri
90. mín
Flautu sigurmark!!!!

Daði Berg Jónsson

Langur bolti fram og Daði tekur stórkostlega á móti boltanum. Með einum léttum snúning er hann búinn að hrista varnarmennina af sér og hann er einn gegn markmanni. Hann klárar svo snyrtilega.

Vestri að vinna þennan leik á lokamínútum?
87. mín
Jóhann Þór heldur um andlitið og Gunnar stöðvar leikinn svo hann geti fengið aðhlynningu. HK-ingar vildu meina að hann hafi verið sleginn en þeir fá ekki neitt frá Gunnari.
Vestri
85. mín
InnDiego Montiel
ÚtSilas Dylan Songani
83. mín
Darraðardans!
Vestri á aukaspyrnu og þeir lyfta boltanum inn í teig. Boltinn dettur dauður í miðjum teignum og í smástund nær enginn til hans. Á endanum nær Eiður Aron að hleypa af skotinu en beint í varnarmann og sóknin rennur svo út í sandinn.
HK
81. mín
InnRúrik Gunnarsson
ÚtÍvar Örn Jónsson
80. mín
Kjeldsen í dauðafæri!
Langur bolti inn á teig sem dettur beint fyrir lappirnar á Gustav Kjeldsen. Hann er bara svona fjórum metrum frá Arnari en hann skýtur boltanum beint í hann.
HK
76. mín
Gult spjald

Arnar Freyr Ólafsson

Arnar kominn leeeeeengst út úr markinu til að reyna að sópa upp lausan bolta. Silas er hinsvegar á undan honum í boltann og Arnar tekur hann niður. Vestra menn eru brjálaðir og vilja rautt á Arnar þar sem þeir vilja meina að hann sé að ræna upplögðu marktækifæri þar sem markið var autt. Það voru hinsvegar nokkrir HK-ingar búnir að koma sér til baka og dómarinn lítur því greinilega á það þannig að það átti töluvert eftir að gerast.

Ég held að þetta hafi verið röng ákvörðun hjá Gunnari dómara leiksins því þrátt fyrir að það voru nokkrir HK-ingar komnir til baka hefði Silas bara geta skotið þaðan sem hann var í opið markið og því greinilega verið að ræna upplögðu marktækifæri.
74. mín
Dauðafæri!!
Vestri vinnur boltann ofarlega á vellinum og þá taka Grauberg og Daði flott þríhyrningaspil sín á milli. Grauberg er þá kominn einn gegn markmanninum og ætlar að lyfta boltanum yfir Arnar. Það tekst hinsvegar ekki alveg og Arnar nær að blaka boltanum frá.
72. mín
Silas með góðan bolta inn fyrir á Daða sem þarf að renna sér á eftir boltanum. Hann nær því og stendur upp með boltann inn í teig. Hann er þá í þröngu færi en nær skoti að marki og Arnar ver frá honum.
HK
66. mín
Gult spjald

Ívar Örn Jónsson

Vestri
62. mín
InnAnton Kralj
ÚtEmmanuel Agyeman Duah
Vestri
62. mín
InnSergine Modou Fall
ÚtGuðmundur Páll Einarsson
Vestri
62. mín
InnDaði Berg Jónsson
ÚtGuðmundur Arnar Svavarsson
HK
58. mín
Gult spjald

Arnþór Ari Atlason

HK
57. mín
Þetta er orðið jafnt!

Tumi Þorvarsson

Góð fyrirgjöf frá vinstri kantinum og Tumi með gott hlaup inn í teiginn. Hann tekur svo skotið í fyrsta og neglir boltanum í netið!
56. mín
Jóhann Þór kominn í fína stöðu en skotið lélegt og beint á Schubert.
54. mín
Kristoffer Grauberg reynir skotið frá miðju. Spiideo vélin sýndi mér ekki hvað gerðist svo með boltann en ég geri ráð fyrir því að Arnar hafi einfaldlega náð að grípa þennan bolta.
51. mín
Aron Kristófer tók spyrnuna og reyndi að negla þessu á markið. Boltinn fer hinsvegar í vegginn og yfir markið.
HK
51. mín
InnTumi Þorvarsson
ÚtBirnir Breki Burknason
49. mín
HK fær aukspyrnu á stórhættulegum stað. Það verður skotið úr þessari spyrnu.
Vestri
46. mín
InnJeppe Pedersen
ÚtFatai Adebowale Gbadamosi
HK
46. mín
InnJóhann Þór Arnarsson
ÚtEiður Atli Rúnarsson
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Vestramenn leiða í hálfleik. Þeir skoruðu úr fyrstu tveimur skotunum sínum en Dagur Orri minnkaði síðan muninn úr góðri aukaspyrnu.

Þetta hefur verið frekar jafn leikur og líkur á spennu fram að síðustu mínútu.
HK
45. mín
Gult spjald

Birnir Breki Burknason

41. mín
Góð varsla!
Ívar Örn reynir skotið af löngu færi en það er bara mjög gott og Schubert þarf að hafa fyrir því að verja þennan.
37. mín
HK fær aukaspyrnu á svipuðum stað og þeir skoruðu markið úr nema bara hinumegin við teiginn. Í þetta skiptið tekur Hauku Leifur spyrnuna en skotið hans fer yfir markið.
HK
30. mín
Beint úr aukaspyrnu!

Dagur Orri Garðarsson

Dagur tekur spyrnuna og spurning hvort boltinn hafi farið aðeins af veggnum því hann ratar í markmannshornið en Schubert var lagður af stað í hitt hornið og missti því af boltanum.

Þetta er aftur orðinn leikur!
29. mín
Vestri fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Fatai tekur skotið úr spyrnunni en skotið frekar slakt og beint á Arnar.
Vestri
26. mín
Og allt í einu 2-0!

Kristoffer Grauberg Lepik (stoðsending: Emmanuel Agyeman Duah)

Emmanuel Duah er með boltan á vinstri kantinum og lyftir háum bolta inn í teiginn. Þar er stóri maðurinn Kristoffer Grauberg sem stekkur hæst og hann tekur góðan skalla í fjærhornið!
Vestri
22. mín
Fyrsta skot Vestra er fyrsta mark leiksins!

Eiður Aron Sigurbjörnsson (stoðsending: Guðmundur Arnar Svavarsson )

Guðmundur Arnar tekur aukaspyrnuna og setur boltann inn í teig. Boltinn fer framhjá öllum þangað til hann kemur á fjærstöngina. Þar lúrir Eiður og potar boltanum í netið.
HK
21. mín
Gult spjald

Eiður Atli Rúnarsson

Vestri fær aukaspyrnu við hægra horn teigsins.
19. mín
HK-ingar taka langt innkast og boltinn fleytist áfram af mönnum þannig að hann endar hjá Birni sem tekur skotið í varnarmann og HK fær horn.

Það kemur svo ekkert úr horninu.
15. mín
Róleg byrjun
Tvö slök skot fyrir utan teig hjá HK í rauninni eina sem hefur gerst hingað til í leiknum.
13. mín
HK-ingar fá horn og Ívar tekur spyrnuna. Boltinn kemur inn í teig og Thibang með skrítna hreinsun en Benjamin Schbert er vel á verði og nær að kasta sér á lausa boltann.
9. mín
Eiður Aron með skelfilega sendingu út úr vörninni sem Birnir Breki kemst inn í. Hann leggur svo boltann á Dag Orra sem fer frekar illa með þessa stöðu en nær að finna Arnþór Ara. Hann tekur svo skotið fyrir utan teig en yfir markið fer boltinn.
5. mín
Ívar Örn fær boltann skoppandi til sín fyrir utan teig og hann reynir skotið. Hann nær hinsvegar ekki að halda boltanum niðri og hann flýgur hátt yfir markið.
1. mín
Leikur hafinn
Gunnar flautar og leikurinn er farinn af stað!
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Vestramenn gera átta breytingar frá deildarleik sínum gegn FH um síðustu helgi. Aðeins Fatai Gbadamosi, Eiður Aron Sigurbjörnsson og Gustav Kjeldsen halda sæti sínu í byrjunarliðinu. Greinilegt að Davíð Smári þjálfari liðsins ætlar að nýta tækifærið til þess að hvíla nokkra menn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK-ingar gera þrjár breytingar frá síðustu umferð í bikarnum þegar þeir unnu 4-0 gegn Hvíta Riddaranum. Arnar Freyr Ólafsson kemur aftur í markið, auk þess sem Birnir Breki Burknason og Brynjar Snær Pálsson koma inn í liðið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leiknum lýst úr fjarska
Fótbolti.net reynir alltaf að senda fréttaritara á völlinn til þess að geta fangað stemninguna fyrir lesendur. Okkar menn á Ísafirði komust því miður ekki á þennan leik og því verður honum lýst í gegnum sjónvarpið og því verða engin viðtöl beint eftir leik.

Það er alltaf vöntun á góðu fólki út á landi og því tilvalið ef þú sem ert að lesa, hefur brennandi áhuga á fótbolta og hefur áhuga á að skrifa fyrir Fótbolti.net. Hafðu þá samband og þú gætir verið partur af skemmtilegasta fréttateymi landsins.
Fyrir leik
Dómarinn
Gunnar Freyr Róbertsson verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Bryngeir Valdimarsson og Daníel Ingi Þórisson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
HK undir nýrri stjórn
HK féll úr Bestu deildinni í fyrra en eftir það tímabil lét þjálfari þeirra Ómar Ingi Guðmundsson af störfum. Hermann Hreiðarsson tók við liðinu en hann var að þjálfa ÍBV í fyrra og kom liðinu upp úr Lengjudeildinni.

HK vann Hvíta Riddarann í síðustu umferð bikarsins 4-0 þar sem Dagur Orri Garðarsson skoraði þrennu áður en að Þorsteinn Aron Antonsson skoraði síðasta markið.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Dagur er á láni hjá HK frá Stjörnunni.
Fyrir leik
Vestri byrjar vel í deildinni
Vestramenn hafa komið skemmtilega á óvart þegar tvær umferðir eru búnar af Bestu deildinni. Vestri gerði 1-1 jafntefli við Valsara á Hlíðarenda, svo fengu þeir FH í heimsókn en þeir unnu þann leik 1-0 eftir mark frá Daða Berg. Vestramenn því með fjögur stig eftir tvo leiki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daði er á láni frá Víkingum
Fyrir leik
Fallbaráttuslagur frá því í fyrra
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Vestra og HK í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Leikurinn hefst klukkan 16:00 og verður spilaður á Kerecisvellinum.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.