Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta-deild karla
Þórsvöllur Vey
ÍBV
ÍBV
0 - 2
Vestri
Vestri
0 - 144' Vladimir Tufegdzic0 - 294' Gunnar Jónas Hauksson
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Leik lokið!
Vestramenn fara með stigin 3 heim vestur
Baráttusigur Vestra gegn litlausu liði ÍBV. Eyjamenn reyndu hvað þeir gátu að sækja gegn Vestramönnum en þeir vörðust frábærlega og áttu sigurinn skilið.
ÍBV
94. mín
Gult spjald

Marcel Zapytowski

Vestri
94. mín
Vestramenn að klára leikinn hérna!!!!

Gunnar Jónas Hauksson (stoðsending: Daði Berg Jónsson)

Markmaður Eyjamenna með skógahlaup sem slær boltann utan teig. Boltinn berst á Daða Berg sem gefur boltann áfram á Gunnar Jónas sem leggur boltann í autt markið. Spruning með rangstöðu á Gunnar jónas.
94. mín
Eyjamenn ná að koma boltanum í netið eftir darraðadans á teig Vestra. Sigurður Arnar nær að pota honum inn en hann er rangstæður.
ÍBV
91. mín
Gult spjald

Mattias Edeland

Fyrir að taka Kristoffer Grauberg niður.
90. mín
Vestri í góðri sókn. Fatai geysist upp hægra megin en sendingin fyrir markið er algjörlega ömurleg!
89. mín
Dauðafæri!!
Víðir með frábæra sendingu inn á teig Vestra en Sigurður Arnar skallar beint á Guy í marki Vestra. Þarna hefðir Sigurður átt að gera betur enda á markteignum!!! Klárlega besta færi Eyjamanna í seinni hálfleik.
88. mín
Oliver enn og aftur að komast upp hægra megin en aftur bjarga Vestramenn í horn.
ÍBV
87. mín
InnSverrir Páll Hjaltested
ÚtOmar Sowe
86. mín
Eyjamenn fá horn
Birgir Ómar geysist upp en Vestramenn bjarga í horn. Þessi horn hjá Eyjamönnum hafa ekki verið að gefa mikið.
Vestri
85. mín
InnKristoffer Grauberg Lepik
ÚtVladimir Tufegdzic
83. mín
Færi hjá Eyjamönnum
Eyjamenn vinna boltann ofarlega á vellinum. Víðir kemur honum á Oliver en hann nær ekki að stýra boltanum á markið.
82. mín
Eyjamenn reyna að sækja mark hérna en Vestramenn eru alveg að halda þeim í skefjum.
80. mín
Eyjamenn fá aukaspyrnu
Bjarki Björn er tekinn niður rétt fyrir utan teig.
78. mín
Vestri fær aukaspyrnu
75. mín
Bjarki Björn með skot fyrir utan teig. Guy Smith á þó ekki í vandræðum með það.
ÍBV
73. mín
InnVíðir Þorvarðarson
ÚtÞorlákur Breki Þ. Baxter
70. mín
Omar Sowe vinnur aukaspyrnu á hættulegum stað. Tóku þetta hratt til hægri og ekkert kom út úr þessu. Spes ákvörðun að drífa sig að taka spyrnuna.
68. mín
Eyjamenn fá horn.
Oliver kemst upp að endamörkum en Vestri bjarga í horn. Skelfileg spyrna beint í hliðarnetið.
ÍBV
67. mín
InnVicente Rafael Valor Martínez
ÚtArnór Ingi Kristinsson
Tvöföld skipting hjá Eyjamönnum
ÍBV
67. mín
InnBirgir Ómar Hlynsson
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
Tvöföld skipting hjá Eyjamönnum
66. mín
Ágætis sókn hjá Vestra sem endar með skalla yfir markið frá Daða Berg.
65. mín
Eyjamenn fá horn.
59. mín
Daði Berg í dauðafæri!!
Tufa geysist upp allan völlinn og fíflar Milan Tomic í liði Eyjamanna. Hann kemur Daða Berg svo í frábært færi en Marcel markvörður Eyjamanna ver frábærlega frá honum!! Daði hefði átt að gera betur þarna.
56. mín
Eyjamenn að sækja í sig veðrið
Felix með flotta takta úti vinstri megin og nær að koma boltanum fyrir en Vestramenn ná að bægja hættunni frá.
55. mín
Omar Sowe með skot fyrir utan teig en boltinn fer framhjá.
54. mín
Eyjamenn reyna að finna smugur á vörn Vestramanna en það gengur erfiðlega.
52. mín
Eyjamenn í færi!!!
Boltinn dettur fyrir Þorlák Breka inn í teig hjá Vestra en skotið er í hliðarnetið. Eyjamenn vildu fá víti í þriðja skipti í leiknum.
49. mín
Alex Freyr með góða sendingu inná teig Vestra. Þorlákur reynir að taka hann með sér en Guy nær að komast í boltann.
Vestri
45. mín
InnGunnar Jónas Hauksson
ÚtDiego Montiel
Tvöföld skipting hjá Vestra í hálfleik
Vestri
45. mín
InnThibang Sindile Theophilius
ÚtSergine Modou Fall
Tvöföld skipting hjá Vestra í hálfleik
45. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur farinn af stað.
45. mín
Hálfleikur
Vestramenn leiða hér með einu marki. Þessi fyrri hálfleikur hefur ekki verið upp á marga fiska og hvorugt liðin náð að skapa sér mikið. Eyjamenn héldu betur í boltann framan af en Vestramenn komu sér betur inn í leikinn og uppskáru með fínu marki.
45. mín
Dauðafæri hjá Vestra
Daði Berg með fínan skalla rétt fram hjá markinu.
Vestri
44. mín
Vestramenn komast yfir!!!

Vladimir Tufegdzic (stoðsending: Morten Ohlsen Hansen)

Morten Ohlsen með frábæra sendingu inn á teig Eyjamenna og Vladimir Tufegdzic klárar virkilega vel með frábærum skalla. Þetta var algjörlega upp úr engu.

Þetta var Epískt!
39. mín
Eyjamenn fá aukaspyrnu
Eiður Aron brýtur á Omar Sowe.
38. mín
Vestramenn eru að halda betur í boltann þessa stundina.
35. mín
Daði Berg nálægt því að sleppa í gegn en Sigurður Arnar er vel á verði.
ÍBV
34. mín
Gult spjald

Oliver Heiðarsson

Fyrir að hlaupa mjög gáleysislega að Guy Smith.
Vestri
34. mín
Gult spjald

Guy Smit

Fyrir að stjaka við Oliver eftir samstuðið.
34. mín
Hætta á ferðum!!
Oliver er næstum sloppinn í gegn en Guy er vel á verði. Oliver og Guy virðist lenda bara í samstuði en það er einhver pirringur þarna á milli sem endar á að bæði Guy og Oliver fá gult spjald.
32. mín
Eyjamenn eru að halda mikið betur í boltann en eru ekki að ná að skapa sér mjög hættuleg færi. Á meðan Vestramenn verjast vel og bíða eftir að geta beitt skyndisóknum.
29. mín
Eyjamenn vilja annað víti!!
Boltinn virðist hafa farið í höndina á Antoni Kralj en Þórður segir bara aftur nei enda fór boltinn bara í magann á honum.
28. mín
Aukaspyrna
Anton Kralj brýtur á Bjarka Birni nálægt hornfánanum. Bjarki Björn tekur spyrnuna en engin hætta á ferð.
25. mín
Eyjamenn ná að hreinsa eftir hornið beint á Oliver sem er næstum sloppinn í gegn. Sergine gerir virkilega vel og nær að setja boltann útaf.
24. mín
Vestramenn spila sig ágætlega upp völlinn og Eyjamenn ná að bjarga í horn.
23. mín
Omar Sowe með fínan sprett upp vinstra megin en nær ekki að koma boltanum fyrir.
20. mín
Eyjamenn fá aukaspyrnu
Felix með góða spyrnu beint á hausinn á Mattias Edelund en skallinn er beint á Guy í marki Vestra.
Vestri
18. mín
Gult spjald

Sergine Modou Fall

Bæði þetta spjald og spjaldið á Felix var fyrir erjur þeirra á milli fyrr í leiknum.
ÍBV
18. mín
Gult spjald

Milan Tomic

Fyrir brot á Daða Berg
ÍBV
18. mín
Gult spjald

Felix Örn Friðriksson

15. mín
Hugsanlegt víti!!
Eyjamenn vilja víti. Omar Sowe virtist tekinn niður inní teig en dómarinn segir nei.
14. mín
Eyjamenn eru að reyna að sækja en Vestramenn eru að verjast virkilega vel.
9. mín
Ágætis sókn hjá Eyjamönnum en Vestramenn bjarga í horn.
4. mín
Fyrsta horn leiksins
Vestri með fyrsta hornið. Léleg spyrna sem drífur ekki yfir fyrsta mann en þeir fá annað horn.
3. mín
Ágætis færi eftir aukaspyrnuna. Vladimar Tufegdzic með skalla yfir markið
2. mín
Vestri fær aukaspyrnu
Daði Berg kemur á hlaupinu og það var togið í treyjuna hans.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið í gang. Það eru heimamenn sem byrja með boltann.
Fyrir leik
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá Þórsvelli í Vestmannaeyjum. Framundan er slagur ÍBV og Gróttu í annarri umferð Lengjudeildar kvenna en flautað verður til leiks á Þórsvelli klukkan 19:00.
Fyrir leik
Epic eru að bjóða Early Win á Vestra @ 3.20, hlýtur að vera eitthvað sem menn horfa í. En það þýðir að ef Vestra menn komast 1 marki yfir fá menn það greitt út strax. ÍBV þó verið á skriði og eftir 2 sigurleiki í röð mæta þeir væntanlega fullir sjálfstrausts.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Þorlákur Árnason, þjálfari Eyjamanna, gerir tvær breytingar frá 3-2 sigrinum á Stjörnunni. Milan Tomic og Þorlákur Breki Baxter koma inn í stað Vicente Valor og Arnars Breka Gunnarssonar.

Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, heldur á meðan í sama lið og tapaði fyrir Breiðabliki, 1-0, í síðustu umferð.
Fyrir leik
Láki um mótherja dagsins:
„Þeir eru með gríðarlega vel mannað lið. Það er engin tilviljun að Vestri hefur safnað sjö stigum," segir Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Eyjamenn að koma mörgum á óvart
„Bjarki Björn var besti maður vallarins í dag. Hann er í hlutverki sem hentar honum gríðarlega vel og er bara frábær leikmaður," sagði Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV, eftir 3-2 útisigur Eyjamanna gegn Stjörnunni í Garðabænum í síðustu umferð.

Bjarki Björn Gunnarsson var valinn Sterkasti leikmaður umferðarinnar í boði Steypustöðvarinnar en hann skoraði glæsilegt mark í leiknum og var sífellt að búa til vandræði fyrir Stjörnumenn.

ÍBV hefur unnið þrjá síðustu leiki sína (með bikarsigri gegn Víkingi) og er í fjórða sæti deildarinnar með sjö stig, jafnmörg stig og Vestri.

   29.04.2025 10:15
Sterkastur í 4. umferð - Lék listir sínar í Garðabænum
Fyrir leik
Öflugir Djúpmenn
Vestri er í þriðja sæti Bestu deildarinnar eins og staðan er, hefur hlotið sjö stig. Liðið tapaði gegn Breiðabliki í síðustu umferð en áður hafði liðið unnið ÍA og FH auk þess að gera jafntefli við Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Smári Lamude er að gera áhugaverða hluti með Vestraliðið.
Fyrir leik
Vestri fékk tvo á Gluggadeginum
Félagaskiptaglugganum var lokað í síðustu viku. Vestramenn fengu til sín tvo leikmenn á Gluggadeginum sjálfum.

   29.04.2025 22:11
Arnór Borg og senegalskur miðjumaður í Vestra (Staðfest)

Arnór Borg Guðjohnsen gekk í raðir Vestra á lokadegi félagaskiptagluggans. Sóknarmaðurinn kemur á láni frá FH og er Vestri með forkaupsrétt.

Hann er 24 ára og hefur verið hjá FH síðan í sumarglugganum 2023. Hann kom við sögu í 23 leikjum með FH á síðasta tímabili og skoraði tvö mörk og hafði komið við sögu í öllum fimm leikjunum á þessu tímabili áður en hann var lánaður. Hann ræddi við Fótbolta.net um skiptin.

„Ég er bara mjög ánægður að vera kominn í Vestra og þakklátur fyrir þetta tækifæri. Það var eitthvað fleira í gangi en ég taldi þetta rétta skrefið."

„Vestri eru með flott verkefni í gangi og flott teymi í kringum liðið,"
segir Arnór aðspurður um hvað heilli mest við Vestra. Viðtalið má lesa í heild sinni í gegnum þennan tengil:

   02.05.2025 16:00
Arnór Borg: Á spennandi stað á mínum ferli og vil sýna hvað í mér býr
Fyrir leik
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÞÞÞ heldur á flautunni í dag. Guðmundur Ingi Bjarnason og Þórður Arnar Árnason eru aðstoðardómarar. Fjórði dómari er Arnar Þór Stefánsson.
Fyrir leik
5. umferð Bestu deildarinnar
Mynd: Fótbolti.net - DGM

Hér verður bein textalýsing frá leik ÍBV og Vestra í þriðju umferð Bestu deildar karla. Leikurinn fer fram á Þórsvelli í Eyjum, sem er varavöllur ÍBV, en enn standa yfir framkvæmdir á Hásteinsvelli þar sem verið er að leggja gervigras.

Svona lítur annars umferðin út:

sunnudagur 4. maí
14:00 ÍBV-Vestri (Þórsvöllur Vey)
17:00 ÍA-KA (ELKEM völlurinn)
19:15 FH-Valur (Kaplakrikavöllur)

mánudagur 5. maí
19:15 Afturelding-Stjarnan (Malbikstöðin að Varmá)
19:15 Breiðablik-KR (Kópavogsvöllur)
19:15 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.