Man Utd ætlar að hreinsa til í leikmannahópnum - Vardy orðaður við Valencia
Besta-deild karla
KR
LL 2
3
Fram
Lengjudeild karla
HK
LL 1
3
Njarðvík
Lengjudeild karla
Keflavík
LL 6
0
Leiknir R.
Lengjudeild karla
ÍR
LL 2
0
Selfoss
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 1
2
Þróttur R.
Besta-deild kvenna
Valur
LL 1
1
Víkingur R.
Besta-deild kvenna
FH
LL 2
1
Breiðablik
Besta-deild kvenna
Fram
LL 1
0
Tindastóll
Keflavík
6
0
Leiknir R.
Gabríel Aron Sævarsson '10 1-0
Kári Sigfússon '18 2-0
Ernir Bjarnason '52 3-0
Kári Sigfússon '61 4-0
Kári Sigfússon '80 5-0
Ari Steinn Guðmundsson '94 6-0
23.05.2025  -  19:15
HS Orku völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Gætu verið verri veðurfarslega, völlurinn fínn.
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Byrjunarlið:
21. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
4. Nacho Heras
6. Sindri Snær Magnússon (f)
7. Gabríel Aron Sævarsson ('76)
11. Muhamed Alghoul ('68)
18. Ernir Bjarnason ('68)
20. Marin Brigic
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson ('68)
92. Kári Sigfússon ('81)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Rúnar Gissurarson (m)
5. Stefán Jón Friðriksson ('68)
8. Ari Steinn Guðmundsson ('81)
9. Valur Þór Hákonarson ('68)
10. Stefan Ljubicic ('76)
14. Marin Mudrazija ('68)
16. Guðjón Pétur Stefánsson
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ)
Ómar Jóhannsson
Hólmar Örn Rúnarsson
Luka Jagacic
Guðmundur Árni Þórðarson
Óskar Ingi Víglundsson

Gul spjöld:
Ernir Bjarnason ('28)

Rauð spjöld:
Leik lokið!

Leik lokið hér með stórsigri Keflavíkur,

Heimamenn vissulega betri en 6-0 mögulega full vel í lagt heilt yfir. Boltinn lýgur þó aldrei.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
94. mín MARK!
Ari Steinn Guðmundsson (Keflavík)

Keflvíkingar vinna boltann hátt á vellinum. Virðast vera að missa hann en boltinn hrekkur fyrir Ara sem kemst einn gegn Ólafi og klárar vel framhjá honum einn gegn einum.
92. mín
Róbert Quental enn í færi en setur boltann yfir markið
90. mín
Fjórar mínútur í uppbót
88. mín
Kári Steinn með skot fyrir gestina. Rennur á vellinum og skotið eftir því, himinhátt yfir.
85. mín
Óli Íshólm hleður í alvöru vörslu
Nacho Heras af öllum mönnum spænir sig upp hægri kantinn. Á frábæra fyrirgjöf sem Mudrazija mætir með enn betri flugskalla. En Óli með alvöru viðbrögð og ver glæsilega. Hefði orðið stórkostleg mark en Óli sagði NEI!
81. mín
Inn:Ari Steinn Guðmundsson (Keflavík) Út:Kári Sigfússon (Keflavík)

Svokölluð heiðurskipting.
80. mín MARK!
Kári Sigfússon (Keflavík)
Robben mark hjá Kára
Sker inn á völlinn af vængnum og klárar í netið með frábæru skoti og þrenna í húsi!

Kunnulegar tölur fyrir gestina.
76. mín
Inn:Stefan Ljubicic (Keflavík) Út:Gabríel Aron Sævarsson (Keflavík)
Hans fyrsti leikur í Lengjudeildinni. Ótrúlegt en satt.
75. mín
Aftur Róbert en Sindri vel á verði og handsamar boltann.
74. mín
Róbert Quental með lúmska tilraun úr teignum vinstra megin en Keflvíkingar koma boltanum í horn.
68. mín
Inn:Marin Mudrazija (Keflavík) Út:Muhamed Alghoul (Keflavík)
68. mín
Inn:Valur Þór Hákonarson (Keflavík) Út:Ernir Bjarnason (Keflavík)
68. mín
Inn:Stefán Jón Friðriksson (Keflavík) Út:Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík)
62. mín
Inn:Kári Steinn Hlífarsson (Leiknir R.) Út:Aron Einarsson (Leiknir R.)
61. mín MARK!
Kári Sigfússon (Keflavík)
Stoðsending: Muhamed Alghoul
Fáum við sömu tölur og í fyrra?
Leiknismenn tapa boltanum á miðjunni. Boltinn fellur fyrir Muhamad sem snýr í átt að marki og finnur Kára í hlaupinu. Kári einn gegn Óla og klárar snyrtilega í hornið nær hægra megin úr teignum,

Bara spurning um hve stór sigurinn verður úr þessu.
58. mín
Óli Íshólm í sirkus!
Mætir í alvöru skógarhlaup, vinnur fyrsta boltann og heldur áfram. Tapar boltanum svona 7-10 metrum frá miðlínu vallar. (Já þú last rétt hann var mættur á miðjuna) Eiður Orri hirðir af honum boltann en af einhverjum óskiljanlegum ástæðum velur hann að reyna að finna samherja frekar en að skjóta á tómt markið og Leiknismenn bjarga!
53. mín
Inn:Axel Freyr Harðarson (Leiknir R.) Út:Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Leiknir R.)
52. mín MARK!
Ernir Bjarnason (Keflavík)
Stoðsending: Sindri Snær Magnússon
VÁ! 98 mótsleikir fyrir Leikni og hleður í bombu gegn þeim Sindri Snær leggur boltann á Erni sem stendur fyrir miðju marki á um 20 metrum. Hann hikar ekkert og lætur vaða með vinstri fæti á markið og boltinn syngur í samskeytunum óverjandi fyrir Ólaf í marki Leiknis.

Stórkostlegt mark.
51. mín
Eiður Orri með fína tilraun.

Skot af vítateig sem Óli Íshólm slær í horn með tilþrifum

Ekkert kemur upp úr horninu.
48. mín
Gísli Alexander með góða tilraun fyrir gestina. Skot fyrir miðju marki af um 20 metrum sem fer rétt framhjá markinu.
46. mín
Róbert Quental með hörkuskot úr teignum eftir fína sókn Leiknis.

Boltinn af varnarmanni í hliðarnetið og Leiknir á horn.

Ekkert kemur upp úr horninu.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Gestirnir sparka okkur af stað á ný.
46. mín
Inn:Bogdan Bogdanovic (Leiknir R.) Út:Jón Arnar Sigurðsson (Leiknir R.)
Skiljanleg breyting á gulu spjaldi
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks hér í Keflavik.

Staðan nokkuð sanngjörn heilt yfir en gestirnir verið vaxandi eftir því sem liðið hefur á háflleikinn.

Korterspása og við mætum með síðari hálfleik.
41. mín Gult spjald: Jón Arnar Sigurðsson (Leiknir R.)

Stöðvar skyndisókn.

Jón Arnar sem fæddur er 2007 verið ljósi punkturinn í leik Leiknis til þessa fyrir mig.
40. mín
Leiknismenn ógna
Boltinn fyrir markið frá vinstri. Róbert Quental í baráttunni á markteig en Keflvíkingar koma boltanum í horn.

Ekkert kemur upp úr horninu.
39. mín
Leikurinn heilt yfir fundið ákveðið jafnvægi síðustu mínútur.
Leiknismenn unnið sig betur inn í hann en heimamenn í Keflavík samt sem áður verið skrefinu framar í flestu á vellinum til þessa.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
36. mín
Keflvíkingar sækja hratt. Muhamed með boltann úti til vinstri finnur Ásgeir Pál í overlappinu en Ásgeir ætlar sér að rífa netið með skoti sínu og neglir boltanum langt framhjá.
28. mín Gult spjald: Ernir Bjarnason (Keflavík)
Gunnar Oddur lyftir fyrsta spjaldi leiksins á fyrrum leikmann Leiknis.

Hann átti það alveg skilið, Missir boltann og tekur manninn niður til að stoppa skyndisókn.
26. mín
Sindri Snær með skot eftir ágæta sókn en boltinn vel yfir markið.
24. mín
Keflvíkingar að sleppa í gegn.
Gabríel ber boltann upp en á hörmulega sendingu sem Leiknismenn komast inn í.
18. mín MARK!
Kári Sigfússon (Keflavík)
Keflvíkingar tvöfalda!
Boltinn út til vinstri á Kára sem fær að labba með boltann inn á miðjan D-boga því sem næst þar sem hann lætur skotið ríða af. Skotið gott og endar niðrí í hægra horninu.

Ég set rosalega stórt spurningarmerki við varnarleik Leiknis í þessu marki. Engin árás á boltann og Kári óáreittur að finna færið.
14. mín
Leiknismenn i hörkufæri
Rangstöðutaktík Keflvíkur klikkar illilega. Boltinn innfyrir á Dag Hammer sem er einn gegn Sindra en nær ekki að leggja boltann almennilega fyrir sig. Skotið eftir því og beint á Sindra.
13. mín
Keflvíkingar miklu skarpari.
Keyra hratt upp völlinn. Boltinn á Axel Inga sem á skot af vítateigslínu sem Ólafur í marki Leiknis ver.
12. mín
Leiknismenn fá horn
Boltinn frá hægri yfir á fjærstöng þar sem skallinn að marki næst en Sindri gripur boltann auðveldlega.
10. mín MARK!
Gabríel Aron Sævarsson (Keflavík)
Stoðsending: Sindri Snær Magnússon
Hann hættir ekki að skora!
Góð sókn Keflavíkur skilar marki!

Boltinn fyrir markið frá hægri fer í gegnum teiginn. Sindri Snær mættur að hirða boltann úti til vinstri og leggur hann út í teigin á Gabríel sem að skorar með lúmsku skoti í nærhornið úr teignum vinstra megin.
9. mín
Skemmtileg útfærsla á horninu endar með skoti frá Muhamad sem fer í varnarmann. Leiknismenn bruna upp í skyndisókn. Róbert Quental tekur 97 skæri og missir svo boltann
8. mín
Heimamenn vinna hornspyrnu.
6. mín
Dauðafæri Keflavíkur
Færa boltann vel frá vinstri yfir á h?gri vænginn. Boltinn fyrir markið þar sem hann endar í fótum Muhamed sem á skot úr teignum sem Ólafur Íshólm gerir vel í að verja.
4. mín
Einn mesti Leiknismaður landsins Elvar Geir Magnússon á ekki heimagengt hingað til Keflavíkur að fylgjast með sínum mönnum. Hann er gestur á herrakvöldi ÍBV sem fram fer í Safamýri þess í stað. Við sendum okkar bestu kveðjur þangað.

Valur Gunnarsson sem ekki er minni Leiknismaður en Elvar fékk einnig boð um að mæta í Safamýrina en hann er hér á HS Orkuvellinum að styðja sína menn í Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

2. mín
Heimamenn byrja sterkt og þrýsta liði Leiknis djúpt niður að eigin teig.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað. Heimamenn hefja hér leik.
Fyrir leik
Liðin mætt í hús Hjá Keflavík snýr Nacho Heras aftur eftir leikbann. Þá kemur Ernir Bjarnason einnig inn í byrjunarliðið en þeir Gunnlaugur Fannar Guðmundsson og Frans Elvarsson fara úr byrjunarliðinu í þeirra stað og eru báðir utan hóps.

Hjá gestunum úr Breiðholti eru tvær breytingar. Shkelzen Veseli fer á bekkinn frá tapinu gegn HK. Kári Steinn Hlífarsson fer einnig á varamannabekkinn. Sindri Björnsson hefur afplánað leikbann og kemur aftur inn í byrjunarlið Leikni og inn með honum kemur Gísli Alexander Ágústsson.


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Fótbolti.net og Livey er gott combo Leikir dagsins í Lengjudeild karla eru í beinni útsendingu á Fótbolti.net í samstarfi við Livey.

Hægt er að skrá sig í áskrift hér að neðan en lesendur Fótbolta.net geta nýtt sér kynningartilboð sem tryggir 30% afslátt af fyrstu þremur mánuðunum með kóðanum "Fotbolti.net" (án gæsalappa).

Smelltu hér til að kaupa áskrift.


Fyrir leik
Dómarinn Gunnar Oddur Hafliðason dæmir leik kvöldsins í Keflavík. Honum til aðstoðar eru þeir Arnþór Helgi Gíslason og Breki Sigurðsson. Jón Sigurjónsson situr svo í stúkunni og tekur út störf dómara og framkvæmd leiks sem eftirlitsmaður KSÍ.

Gunnar Oddur var öflugur í rauðu spjöldunum í síðustu umferð og lyfti tveimur rauðum spjöldum á leikmenn Grindavíkur er hann dæmdi leik Þróttar og Grindavíkur. Það skal þó tekið fram til að gæta sanngirni að í báðum tilfellum var um hárrétta ákvörðun að ræða.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Keli spáir Hrafnkell Freyr Ágústsson, sérfræðingur í hlaðvarpinu Dr Football spáir í leikina sem eru framundan í fjórðu umferð. Hún verður að mestu leikin í kvöld en það er einnig spilað á morgun.



Keflavík 4 - 1 Leiknir R.
Það er allt í rugli upp í efra Breiðholti. Annað hvort eru það rauð spjöld eða það að þeir leka inn mörkum. Eru líka í vandræðum með að skora. Keflvíkingar eru á góðu róli. Gabríel Aron Sævarsson gerir aðra þrennu.
Fyrir leik
Sonur sérfræðingsins hefur heillað Gabríel Aron Sævarsson hefur farið vel af stað í mótinu til þessa og er komin með þrjú mörk nú þegar. Gabríel sem fengið hefur tækifæri í framlínu Keflavíkur í fjarveru Stefans Ljubicic er sonur Sævars Sævarssonar sem lék um árabil með körfuboltaliði Keflavíkur og hefur getið af sér gott orð sem sérfræðingur Stöð 2 Sport í Bónus Körfuboltakvöldi undanfarin ár.

Gabríel var í skemmtilegu viðtali við Víkurfréttir á dögunum en viðtalið má sjá með því að smella hér


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Keflavík Keflavík situr á toppi deildarinnar eftir fyrstu þrjár umferðir mótsins. Tveir öflugir sigurleikir gegn Fjölni og Þór hafa skilað liðunum sex stigum í hús. Þess á milli mátti liðið þola 1-0 tap gegn Þrótti í leik sem helst verður minnst fyrir veður á meðan á leik stóð sem og tungumálaörðugleika Nacho Heras og Þórðar Þorsteins Þórðarsonar sem dæmdi leikinn.

Það má því segja að vegferð Keflavíkur sem stefnir á Bestu deildina að ári hefjist með ágætum. Enn er þó mjög mjög langt í land og margt á eftir að gerast.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.



Fyrir leik
Leiknir Brösótt er orðið sem passar einna helst við byrjun Leiknis á mótinu þetta árið. Eitt stig er komið í hús eftir fyrstu þrjár umferðirnar en það kom i fyrstu umferð er liðið gerði 1-1 jafntefli við Þrótt. Því hefur Leiknir fylgt eftir með tveimur tapleikjum á heimavelli. Fyrst sannfærandi 4-1 tap gegn Þór og svo nokkuð dramatísku 1-0 tapi gegn HK þar sem gestirnir úr Kópavogi skoruðu skömmu fyrir leikslok.

Gestirnir úr Breiðholti eiga engar sérstakar minningar úr Keflavík frá tímabilinu í fyrra. Liðin mættust á HS Orku vellinum í sjöttu umferð mótsins á rigningarkvöldi í byrjun júní. Það rigndi þó öllu meira á annað liðið í leiknum því auk þess að þurfa að takast á við þá úr skýjunum rigndi einnig mörkum á Leiknismenn. Lokatölur 5-0 fyrir Keflavík og urðu úrslitin til þess að Vigfús Arnar Jósepsson þá þjálfari Leiknis hætti störfum sem þjálfari.

Leiknismenn þurfa þó ekki að örvænta strax enda stutt liðið á mótið og nóg af stigum eftir í pottinum. Verkefni kvöldsins er þó nokkuð erfitt er liðið heimsækir topplið deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Lengjudeildin er föstudags!
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og Leiknis í fjórðu umferð Lengjudeildar karla. Flautað verður til leiks á HS Orku vellinum í Keflavík klukkan 19:15

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
6. Jón Arnar Sigurðsson ('46)
7. Róbert Quental Árnason
8. Sindri Björnsson
11. Gísli Alexander Ágústsson
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('53)
25. Dusan Brkovic
44. Aron Einarsson ('62)
45. Djorde Vladisavljevic
55. Anton Fannar Kjartansson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Hilmar Örn Pétursson (m)
3. Bogdan Bogdanovic ('46)
9. Jóhann Kanfory Tjörvason
10. Shkelzen Veseli
14. Davíð Júlían Jónsson
19. Axel Freyr Harðarson ('53)
43. Kári Steinn Hlífarsson ('62)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Ólafur Hrannar Kristjánsson (Þ)
Ósvald Jarl Traustason
Hlynur Helgi Arngrímsson
Nemanja Pjevic
Ari Þór Kristinsson

Gul spjöld:
Jón Arnar Sigurðsson ('41)

Rauð spjöld: