Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
Mjólkurbikar karla
Afturelding
LL 0
1
Fram
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 1
4
Fjölnir
Mjólkurbikar karla
ÍBV
LL 0
1
Valur
Lengjudeild kvenna
Haukar
LL 2
3
KR
ÍBV
0
1
Valur
0-1 Hólmar Örn Eyjólfsson '16
19.06.2025  -  17:30
Þórsvöllur Vey
Mjólkurbikar karla
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Byrjunarlið:
31. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon
5. Mattias Edeland
6. Milan Tomic ('86)
10. Sverrir Páll Hjaltested
21. Birgir Ómar Hlynsson ('74)
24. Hermann Þór Ragnarsson ('74)
25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
26. Felix Örn Friðriksson
30. Vicente Valor ('86)
45. Þorlákur Breki Þ. Baxter ('61)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Marcel Zapytowski (m)
3. Einar Bent Bjarnason
4. Nökkvi Már Nökkvason ('86)
8. Bjarki Björn Gunnarsson ('74)
11. Víðir Þorvarðarson ('61)
23. Arnór Ingi Kristinsson ('74)
28. Pétur Dan Gunnarsson
44. Jovan Mitrovic ('86)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Þorlákur Már Árnason (Þ)
Óskar Elías Zoega Óskarsson
Elías J Friðriksson
Elías Árni Jónsson
Guðrún Ágústa Möller
Kristian Barbuscak
Maksymilian Antoni Bulga

Gul spjöld:
Alex Freyr Hilmarsson ('23)
Sigurður Arnar Magnússon ('32)
Milan Tomic ('48)
Bjarki Björn Gunnarsson ('81)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valur er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir 0-1 sigur á Þórsvelli. Markið kom upp úr hornspyrnu en leikurinn var frekar jafn allan leikinn og hefði getað dottið hvorum megin.

94. mín
Felix með skot yfir markið.
92. mín
Inn:Jakob Franz Pálsson (Valur) Út:Patrick Pedersen (Valur)
91. mín
Sverrir Páll reynir fyrirgjöf á Sigurð Arnar en hann brýtur af sér.
89. mín
Valsmenn fá aukaspyrnu. Patrik tekinn niður.
86. mín
Inn:Jovan Mitrovic (ÍBV) Út:Vicente Valor (ÍBV)
86. mín
Inn:Nökkvi Már Nökkvason (ÍBV) Út:Milan Tomic (ÍBV)
85. mín
PATRIK Í FÆRI!! Bjarki Björn missir boltann og hann berst á Patrik sem tekur skotið inn á teignum en frábæralega varið hjá Hjörvari og Valsmenn fá horn.
84. mín
Valsmenn fá aukaspyrnu. Alex Frey tekur Kristinn Frey niður.
82. mín
Eyjamenn fá aukaspyrnu.
81. mín Gult spjald: Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
81. mín
Víðir með fyrirgjöf en hann kixar boltann yfir markið. Frekar illa farið með ágætis stöðu.
78. mín
Valur í færi Bjarki Björn missir boltann klaufalega fyrir Patrik sem kemur boltanum á Sigurð Egil. Hann rennir boltanum á Kristinn Frey en skot hans yfir markið.
77. mín
Adam Ægir reynir sendingu í gegn á Sigurð Egil en Mattihas kemur boltanum í burtu.
74. mín
Inn:Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV) Út:Birgir Ómar Hlynsson (ÍBV)
74. mín
Inn:Arnór Ingi Kristinsson (ÍBV) Út:Hermann Þór Ragnarsson (ÍBV)
74. mín
Inn:Adam Ægir Pálsson (Valur) Út:Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
74. mín
Inn:Sigurður Egill Lárusson (Valur) Út:Jónatan Ingi Jónsson (Valur)
73. mín Gult spjald: Tómas Bent Magnússon (Valur)
Togar í treyjuna á Hermanni Þór.
72. mín
Milan Tomic kom boltanum út á Víði vinstra megin. Hann köttar inn og kemur með skotið, virtist vera beint á Frederick en hann á í erfiðleikum með það og ver í horn.
70. mín
Eyjamenn í séns Víðir með frábæra sendingu inn á teig Valmanna. Virtist hafa farið í hendina á Bjarna Mark en Twana dæmis ekki neitt. Boltinn barst svo til Vicente en skot hans er yfir markið.
69. mín
Víðir fær aukaspyrnu fyrir ÍBV. Valsmenn ná að koma boltanum í burtu.
66. mín
Valsmenn nánst sloppnir í gegn. Virtust reyndar vera þrír rangstæðir en Felix kemur með frábæra tæklingu og kemur boltanum burt.
65. mín
Inn:Lúkas Logi Heimisson (Valur) Út:Albin Skoglund (Valur)
64. mín
ÍBV aftur í færi Núna var það Sverrir Páll sem á skot inn í teig en það er beint á Frederick í marki Vals.
63. mín
VICENTE VALOR!! Eyjamenn fengu innkast hátt upp á vellinum. Boltinn barst út á Vicente sem reyndi að spila boltanum á Alex Frey og einhvernveginn berst boltinn á hann. Hann kemur sér í dauðafæri en skotið fer í varnarmann Vals og í horn.
61. mín
Inn:Víðir Þorvarðarson (ÍBV) Út:Þorlákur Breki Þ. Baxter (ÍBV)
60. mín
Tómas Bent með skot langt fram hjá.
59. mín
Tryggvi Hrafn með fyrirgjöf en Felix hreinsar í burtu.
58. mín
Valsmenn fá aukaspyrnu.
54. mín
ÍBV fær aukaspyrnu. Milan Tomic tekinn niður.
52. mín
Patrik með sendingu í gegn á Jónatan Inga sem reynir svo að senda Tryggva í gegn en Tryggvi er rangstæður.
49. mín
Myndir af marki Hólmars
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elvar Geir Magnússon
48. mín Gult spjald: Milan Tomic (ÍBV)
Fer mjög harkalega í Jónatan Inga. Valsmenn fá aukaspyrnu.
46. mín
ÍBV vinnur horn.
45. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað aftur.
45. mín
Hálfleikur
Twana er búinn að flauta til hálfsleiks. Valsmenn leiða eftir mark úr horni. Leikurinn hefur verið nokkuð jafn og ekki mikið um dauðafæri.
43. mín
Tryggvi Hrafn með fyrirgjöf sem Sigurður Arnar náði að hreinsa í burtu.
41. mín
Þrolákur Breki reyndi að lauma boltanum inn á Alex Frey eftir góða sókn Eyjamenn en sendingin lélég.
39. mín
Lítið að gerast þessa stundina.
35. mín
Sverri Páll fær aukaspyrnu fyrir ÍBV.
34. mín
Flott sending frá Tryggva Hrafni úr aukaspyrnunni en Valsmenn flaggaðir ranstæðir.
32. mín Gult spjald: Sigurður Arnar Magnússon (ÍBV)
32. mín
Valsmenn fá aukaspyrnu. Sigurður Arnar fer beint í Albin Skoglund.
31. mín
Vicente fær hann út á hægri frá Þorláki Breka. Hann reynir skotið úr mjög þröngu færi, beint á Frederick. Hefði líklega getað reynt gefa fyrir þarna.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Matthias Edeland vinnur aukaspyrnu fyrir ÍBV.
28. mín
Eyjamenn fá horn.
27. mín
Eyjamenn í færi Matthias með sendingu í gegn á Sverri. Hann nær skotinu en það er ekki krafmikið og Frederick á ekki í vandræðum með það.
23. mín Gult spjald: Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV)
23. mín
Valsmenn fá aukaspyrnu. Alex Freyr var langt frá því að ná í boltann og fór beint í Hólmar.
21. mín
ÍBV fæ aukaspyrnu. Þorlákur Breki sparkaður niður. Tóku spyrnuna stutt og náðu ekki að gera sér neitt færi.
16. mín MARK!
Hólmar Örn Eyjólfsson (Valur)
Stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson
Valsmenn komnir yfir! Valsmenn skora upp úr horninu. Mjög einfalt, Tryggvi kom með góðan bolta á nær og Hólmar Örn klárar af öryggi með góðum skalla.
16. mín
Valsmenn fá horn.
14. mín
ÍBV fær aukaspyrnu. Brotið á Felix.
12. mín
Eyjamenn ná upp góðu spili. Felix fær svo boltann úti vinstra megin, kemur með fyrirgjöf beint á Sverri Pál en hann rennur því miður og færið út í sandinn.
10. mín
Patrik með góða sendingu í gegn á Tryggva Hrafn sem er næstum sloppinn í gegn en Sigurður Arnar gerir vel í að loka á að hann nái skoti á markið.
8. mín
Vicente með frábæra takta, sólar nokkra Valsmenn upp úr skónum en missir svo boltann út af.
7. mín
Jónatan Ingi með fyrirgjöf en Hjörvar grípur örugglega.
4. mín
Færi hjá ÍBV Felix með frábæra fyrirgjöf á Sverri Pál en skallinn hans fer yfir markið.
2. mín
Valsmenn fá horn Patrik nær að koma boltanum á Tryggva Hrafn sem kom með fyrirgjöf en Eyjamenn hreinsa í horn.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið í gang. Gestirnir eiga upphafsspyrnuna.
Fyrir leik
Patrik Pedersen er á sínum stað í framlínu Valsara og hefur verið sjóðandi heitur á leiktíðinni. Það verður því að viðurkennast að 2.20 í stuðul á mark frá dananum er afar freistandi
Mate Dalmay
Fyrir leik
Láki gerir fimm breytingar - Eyjamaðurinn byrjar hjá Val Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV, gerir fimm breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Breiðablki. Hjörvar Daði, Mattias Edeland, Milan Tomic, Birgir Ómar og Hermann Þór koma inn. Marcel Zapytowski, Nökkvi Már Nökkvason, Arnór Ingi Kristinsson og Jovan Mitrovic taka sér sæti á bekknum en Arnar Breki Gunnarsson er ekki í hópnum.

Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, gerir tvær breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Stjörnunni. Albin Skoglund og Tómas Bent Magnússon koma inn í liðið fyrir þá Orra Hrafn Kjartansson og Lúkas Loga Heimisson sem taka sér sæti á bekknum. Tómas Bent kom til Vals frá ÍBV í vetur og er að byrja sinn fyrsta leik með liðinu eftir meiðsli.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Tómas Bent vann Lengjudeildina með ÍBV í fyrra
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Láki: Gríðarleg pressa svífur yfir leikmönnum og þjálfurum Vals
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við erum mjög vel stemmdir, það eru fá lið eftir í keppninni og við erum búnir að vera sterkt bikarlið, slegið út bæði KR og Víking. Okkur finnst gott að mæla okkur við bestu liðin. Breiðablik, sem við mættum á sunnudag, er með sterka einstaklinga í sínu liðið og það var gaman að spila við þá. Við erum með ungan hóp af leikmönnum sem mér finnst vera að bæta sig mikið og þá langar að spila við bestu leikmennina," segir Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV.

„Valur er með marga góða leikmenn, misstigu sig náttúrulega á laugardaginn, og fyrir vikið er eflaust töluverð pressa á þeim í þessum leik. Maður sér að það svífur yfir gríðarleg pressa á leikmönnum og þjálfurum liðsins. Við búumst bara við svipuðum leik og gegn Breiðabliki, teljum að Valur muni líka fara í að beita löngum sendingum fram völlinn og reyna vinna seinni boltann. Ég held að liðin séu að lesa þetta þannig að liðin þurfi að breyta leik sínum þegar þau spila á grasi."

„Valur er með marga mjög góða fótboltamenn, en okkar reynsla er - út frá Breiðabliki sem er málsvari stuttra sendinga og leikstílsins að ná yfirmönnun á miðjunni - þegar þannig lið er farið að beita þessum leikstíl þá teljum við að liðin séu að lesa þetta þannig að þau þurfi að gera það á þessum velli. Við þurfum að vera viðbúnir því."

„Að því sögðu er Valur með marga hrikalega góða leikmenn. Það getur verið að þeir treysti sér í að spila eins og þeir myndu gera á gervigrasi."


Hjörvar Daði Arnarsson hefur spilað bikarleikina til þessa en Marcel Zapytowski hefur verið í markinu í deildinni. Ertu búinn að taka ákvörðun hvort Marcel eða Hjörvar Daði verði í markinu?

„Nei, við erum að skoða núna hverjir eru klárir í að spila, eru leikhæfir. Það er endurheimt í dag (mánudag) og svo tökum við ákvörðun um markmannsstöðuna og aðrar stöður á miðvikudaginn," sagði Láki í viðtali í vikunni.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Leið liðanna í 8-liða úrslit 32-liða úrslit:
ÍBV 3-0 Víkingur
Grindavík 1-3 Valur

16-liða úrslit:
KR 2-4 ÍBV
Valur 2-1 Þróttur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Bikar Baddi spáir fjöri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net í bikarnum og hann spáir í leikina.

ÍBV 2 - 3 Valur
Bikar-Láki er að gera magnaða hluti þarna í Eyjum og er farinn að sjá fyrir sér titil, því miður lenda Eyjamenn bara í Bjarna Mark hakkavélinni sem fær ekki rautt í þetta skiptið heldur skorar, leggur upp og bjargar á línu, þetta verður leikur umferðarinnar og mikil skemmtun fyrir alla áhorfendur, Sverrir Hjaltested setur einn rýting í gömlu félagana en Patrick Pedersen skorar í leiknum og fagnar með því að benda á TG9 í textalýsingarboxinu.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Kúrdíski pylsusalinn dæmir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Twana Khalid Ahmed dæmir leikinn. Guðmundur Ingi Bjarnason og Þórður Arnar Árnason eru aðstoðardómarar og Gunnar Oddur Hafliðason er fjórði dómari.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
8-liða úrslit Mjólkurbikarsins halda áfram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Velkomin með okkur til Vestmannaeyja þar sem ÍBV og Valur keppast um að komast í undanúrslit bikarsins.

fimmtudagur 19. júní
17:30 ÍBV-Valur (Þórsvöllur Vey)
20:00 Afturelding-Fram (Malbikstöðin að Varmá)
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
18. Frederik Schram (m)
2. Tómas Bent Magnússon
4. Markus Lund Nakkim
6. Bjarni Mark Duffield
8. Jónatan Ingi Jónsson ('74)
9. Patrick Pedersen ('92)
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson ('74)
14. Albin Skoglund ('65)
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
20. Orri Sigurður Ómarsson
- Meðalaldur 30 ár

Varamenn:
25. Stefán Þór Ágústsson (m)
11. Sigurður Egill Lárusson ('74)
13. Kristján Oddur Kristjánsson
16. Stefán Gísli Stefánsson
17. Lúkas Logi Heimisson ('65)
19. Orri Hrafn Kjartansson
21. Jakob Franz Pálsson ('92)
23. Adam Ægir Pálsson ('74)
33. Andi Hoti
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Srdjan Tufegdzic (Þ)
Haukur Páll Sigurðsson
Kjartan Sturluson
Halldór Eyþórsson
Einar Óli Þorvarðarson
Jóhann Emil Elíasson
Örn Erlingsson
Baldvin Orri Friðriksson

Gul spjöld:
Tómas Bent Magnússon ('73)

Rauð spjöld: