Besta-deild karla
Stjarnan

LL
1
4
4

Lengjudeild karla
Selfoss

LL
2
2
2

Lengjudeild karla
ÍR

LL
6
1
1

Lengjudeild karla
Þróttur R.

LL
2
2
2

Besta-deild karla
KA

LL
2
5
5

Lengjudeild karla
Fjölnir

LL
0
5
5

Vináttulandsleikur
Serbía

LL
1
3
3

Stjarnan
1
4
Breiðablik

Benedikt V. Warén
'8
1-0
1-1
Kristófer Ingi Kristinsson
'70
1-2
Kristófer Ingi Kristinsson
'76
1-3
Kristófer Ingi Kristinsson
'84
1-4
Aron Bjarnason
'94
27.06.2025 - 19:15
Samsungvöllurinn
Besta-deild karla
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Samsungvöllurinn
Besta-deild karla
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
4. Þorri Mar Þórisson
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson

8. Jóhann Árni Gunnarsson
('88)

10. Samúel Kári Friðjónsson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
23. Benedikt V. Warén
('86)

29. Alex Þór Hauksson
('72)

32. Örvar Logi Örvarsson

99. Andri Rúnar Bjarnason
('72)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
5. Guðmundur Kristjánsson
('88)

11. Adolf Daði Birgisson
('86)

22. Emil Atlason
('72)
('86)

24. Sigurður Gunnar Jónsson
28. Baldur Logi Guðlaugsson
30. Kjartan Már Kjartansson
('86)

37. Haukur Örn Brink
('72)

41. Alexander Máni Guðjónsson
- Meðalaldur 24 ár
Liðsstjórn:
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Rajko Stanisic
Þór Sigurðsson
Hákon Ernir Haraldsson
Garpur I Elísabetarson
Aleksandar Cvetic
Steven Roy Caulker
Gul spjöld:
Örvar Eggertsson ('30)
Örvar Logi Örvarsson ('42)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þvílíkur leikur í Garðabænum
Sigurður Hjörtur flautar til leiksloka. Kristófer Ingi og Aron Bjarna komu inn á þegar 25.mínútur voru eftir og snéri leiknum við fyrir Blika.
Takk fyrir mig í kvöld.
Takk fyrir mig í kvöld.
94. mín
MARK!

Aron Bjarnason (Breiðablik)
ALVÖRU SÍÐARI HÁLFLEIKUR HJÁ BLIKUM!!
Þessar skiptingar heppnuðust svo sannarlega hjá Dóra.
Aron Bjarna fær boltann inn fyrir og klárar vel framhjá Árna Snæ.
Aron Bjarna fær boltann inn fyrir og klárar vel framhjá Árna Snæ.
86. mín

Inn:Adolf Daði Birgisson (Stjarnan)
Út:Emil Atlason (Stjarnan)
Inn og strax út.
Vonandi ekki alvarlegt fyrir Stjörnuna.
Vonandi ekki alvarlegt fyrir Stjörnuna.
84. mín
MARK!

Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson
Stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson
ÓTRÚLEGT MARK ÞETTA ER BARA ÞVÆLA!!
Er þetta ekki bara innkoma ársins?
Anton Logi finnur Ágúst Orra sem leggur boltann út á Kristófer Inga. Kristófer tekur boltann með sér inn á völlinn og neglir boltanum í slánna og inn.
Ég á ekki til orð. Kristó skorar mörk syngja Glacier og félagar. Það er mikið til í því.

76. mín
MARK!

Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Stoðsending: Viktor Karl Einarsson
Stoðsending: Viktor Karl Einarsson
BREIÐABLIK KEMUR TIL BAKAA!!!
Viktor Karl fær boltann og skiptir boltanum yfir á Kristófer Inga sem fær boltann. Kristófer Ingi tekur boltann með sér inn á völlinn og á frábært skot sem syngur í fjærhorninu.
Kristófer Ingi að snúa leiknum við fyrir Blikana.
Kristófer Ingi að snúa leiknum við fyrir Blikana.
70. mín
MARK!

Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Stoðsending: Viktor Karl Einarsson
Stoðsending: Viktor Karl Einarsson
BLIKARNIR JAFNA!!!!
Viktor Karl fær boltann og á gott skot sem Árni Snær ver boltann til hliðar. Kristófer Ingi rennir sér á boltann og skorar úr þröngu færi á fjærstönginni.
Masterclass skipting hjá Dóra.
Masterclass skipting hjá Dóra.
68. mín
Kristófer Ingi stimplar sig strax inn!
Fær boltann fyrir utan teig og á skot sem er laust beint á Árna.
Fær boltann fyrir utan teig og á skot sem er laust beint á Árna.
66. mín

Inn:Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Út:Kristinn Steindórsson (Breiðablik)
66. mín
Samúel Kári fær boltann við vítateighornið hægramegin og lætur vaða en boltinn framhjá.
65. mín
Stúkuvaktin góða
Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar er mættur í stúkuna á Samsungvellinum en Afturelding fær Breiðablik í heimsókn í næstu umferð.

62. mín
Blikum er ekki ætlað að setja boltinn í netið í kvöld
Kristinn Steindórs fær boltann inn á teignum og rennur, nær samt að halda boltanum en nær ekki að komast í skotið og leggur boltann út á Anton Loga sem á skot sem fer í varnarmann.
60. mín
Gult spjald: Valgeir Valgeirsson (Breiðablik)

Braut af sér. Sigurður beitti hagnaði og spjaldið svo þegar Viktor Karl tók Örvar niður
53. mín
JÓHANN ÁRNI ÚFFFF VÁAÁA
Fær boltann fyrir utan teig og á frábært skot sem fer í slánna.
Aðeins neðar og þessi hefði sungið í netinu. Það eru fleiri mörk í þessu hér í kvöld.
Aðeins neðar og þessi hefði sungið í netinu. Það eru fleiri mörk í þessu hér í kvöld.
52. mín
Árni Snær verið öruggur í teignum í kvöld
Valgeir með aukaspyrnu frá vinstri inn á teiginn. Árni kemur út og grípur boltann.
50. mín
Stjörnumenn eru svo góðir í að breika hratt
Anton Logi á skot sem fer í varnarmann Stjörnunnar. Stjarnan setur boltann upp á Benedikt Warén sem tekur boltann með sér inn á völlinn og á skot sem fer beint á Anton Ara.
47. mín
Arnór Gauti með langt innkast inn á teiginn og Blikar ná flikkinu en boltinn í hendurnar á Árna Snæ.
45. mín
Hálfleikur
Það er komin hálfleikur
Sigurður Hjörtur flautar til hálfleiks. Fyrri hálfleikurinn hefur í raun verið í eign gestanna úr Smáranum en Stjarnan er yfir eftir frábært mark frá Benedikt Warén sem kom eftir skyndisókn.
Tökum okkur korter.
Tökum okkur korter.
45. mín
Stjarnan fær hornspyrnu
Jóhann Árni tekur hana og boltinn inn á teiginn en Anton Ari kýlir boltann í burtu og síðan er dæmt brot á Stjörnumenn fyrir að taka Viktor Karl niður.
45. mín
Þremur mínútum bætt við
Uppbótartími fyrri hálfleiks er að lágmarki þrjár mínútur.
43. mín
Ágúst Orri með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn, boltinn endar hjá Andra Yeoman sem leggur boltann á Kidda sem á skot en Alex Þór kastar sér fyrir boltann.
42. mín
Gult spjald: Örvar Logi Örvarsson (Stjarnan)

Tekur Águst Orra niður á miðjum velli.
39. mín
Benedikt Warén með hættulegan bolta fyrir en enginn Stjörnumaður klár inn á teignum. Stjörnumenn halda þó boltanum.
36. mín
Örvar Eggertsson að leika sér að eldinum
Er á gulu spjaldi og tekur Anton Loga niður og Blikar fá aukaspyrnu.
Verður Örvar tekinn útaf í hálfleik?
Verður Örvar tekinn útaf í hálfleik?

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
28. mín
Örvar Logi með fyrirgjöf frá vinstri inn á Örvar Eggertsson sem nær skallanum en boltinn beint í hendur Anton Ara.
27. mín
Gult spjald: Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)

Stöðvar Örvar Eggerts sem var á leið upp völlinn.
25. mín
Leikurinn hefur farið fram á vallarhelmingi Stjörnunar
Breiðablik hefur sótt og sótt en Stjarnan hefur ekki skapað sér eitt einasta færi fyrir utan þetta skyndisóknar mark.
Talandi um lið sem kunna að refsa!
Talandi um lið sem kunna að refsa!
21. mín
ÁRNI SNÆR MEÐ ROSALEGA MARKVÖRSLU!
Blikar lyfta boltanum inn á teiginn. Sindri Snær nær ekki að skalla boltann nógu vel í burtu, boltinn berst á Viktor Karl sem lætur hann skoppa einusinni áður en hann lætur vaða en Árni Snær með frábæra markvörslu
Þarna var tækifæri fyrir Blika til að jafna leikinn.
Þarna var tækifæri fyrir Blika til að jafna leikinn.
18. mín
Kristinn Steindórsson fær boltann og reynir að finna sendingu inn í hlaupaleið Ágúst Orra en boltinn aðeins of fastur og rúllar afturfyrir.
Þetta hefur róast örlítið en það á eftir að kveikna í þessu aftur.
Þetta hefur róast örlítið en það á eftir að kveikna í þessu aftur.
13. mín
BLIKAR NÁLÆGT ÞVÍ AÐ JAFNA
Ágúst Orri fær boltann við endamörkin, leggur boltann út á Viktor Karl sem feikar skot yfir á hægri fótinn og á skot sem Stjörnumenn kasta sér fyrir.
8. mín
MARK!

Benedikt V. Warén (Stjarnan)
VÁÁÁ TAKE A BOW BENEDIKT WARÉÉN!!!
Þetta gerðist ekkert eðlilega hratt maður lifandi!!
Eftir þungasókn Breiðablik þar sem ég skil ekki hvernig Kiddi Steindórs náði ekki að skora þá keyra Stjörnumenn upp völlinn. Benedikt Warén fær boltann út til vinstri tekur boltann með sér, sker inn á völlinn og hamrar boltanum í fjærhornið, þvílíkt slútt!!
Gjörsamlega óverjandi fyrir Anton Ara.

5. mín
Ágúst Orri með flottan sprett upp hægramegin og á fyrirgjöf sem endar á fjær. Andri Rafn fær boltann, finnur Viktor Karl inn á teignum sem leggur boltann aftur á Andra sem á slaka fyrirgjöf sem fer afturfyrir.
3. mín
Vel mætt á Samsungvöllinn
Það er sitið þétt í stúkunni hér í kvöld og það er eitthvað sem kemur mér ekkert á óvart enda um stórleik að ræða.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað á Samsung
Sigurður Hjörtur flautar til leiks. Breiðablik byrjar með boltann.
Góða skemmtun.
Góða skemmtun.
Fyrir leik
10 mínútur í upphafsflautið
Áhorfendur eru farnir að koma sér fyrir í stúkuna og liðin halda til búninsherbegja að leggja lokahönd á undirbúning fyrir leik.
Þetta verður einhver veislu leikur, ég trúi ekki öðru.
Þetta verður einhver veislu leikur, ég trúi ekki öðru.
Fyrir leik
Epic Early win alert á Stjörnuna! 2.40 í stuðul sem dettur ef Stjarnan kemst yfir í leiknum á einhverjum tímapunkti.
Er ekki skrifað í skýin að Óli Valur skori gegn sínum gömlu félögum, stuðull 4.00 á Epic.
Er ekki skrifað í skýin að Óli Valur skori gegn sínum gömlu félögum, stuðull 4.00 á Epic.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár
Jökull Elísarbetarson þjálfari Stjörnunnar gerir eina breytingu á sigurleiknum gegn ÍA. Örvar Logi Örvarsson kemur inn í liðið og fyrirliðinn Guðmundur Kristjánsson fær sér sæti á bekknum
Halldór Árnason þjálfari Breiðablik gerir tvær breytingar frá jafnteflinu gegn Fram. Ásgeir Helgi Orrason og Kristinn Steindórsson koma inn í liðið fyrir Höskuld Gunnlaugsson og Tobias Thomsen sem eru báðir í leikbanni í kvöld.

Fleiri fréttir í kringum stórleikinn í kvöld
Fyrir leik
Líklegt byrjunarlið Breiðablik
Svona spáum við að Breiðablik stilli liði sínu upp í kvöld.

Fyrir leik
Líklegt byrjunarlið Stjörnunnar
Svona spáum við að Stjarnan stilli liði sínu upp í kvöld.

Fyrir leik
Spámaðurinn
Ásmundur Haraldsson, aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins, fékk það verkefni að spá í leikina sem framundan eru. Ási hefur verið aðstoðarþjálfari landsliðsins í yfir 100 leiki og er á leið á sitt þriðja stórmót með liðinu. Í kvöld spilar kvennalandsliðið æfingaleik gegn Serbíu, en það er síðasti leikur liðsins fyrir EM í Sviss.
Stjarnan 2 - 2 Breiðablik (19:15 í kvöld)
Þetta verður hressasti leikur umferðarinnar. Hlakka til að sjá viðtöl eftir leik. Stjarnan kemst í 2-0 en Blikar jafna um miðjan seinni hálfleik af miklu harðfylgi.

Stjörnufréttir
Það hefur verið nóg að gera á skrifstofunni hjá Stjörnunni undnafarnadaga. Einn lykilmaður hefur framlengt og Steven Caulker, fyrrum leikmaður Liverpool og Tottenham er genginn í raðir Stjörnunnar. Það er ljóst að þetta eru ein stærstu félagaskipti í sögu íslensks fótbolta. Caulker á að baki 123 leiki í ensku úrvalsdeildinni á sínum ferli.

Fyrir leik
Alltaf gaman að mæta Stjörnunni
Sæbjörn Steinke ræddi einnig við Halldór Árnason þjálfara Breiðablik í aðdraganda leiksins í kvöld.
„Þessi leikur leggst virkilega vel í mig, síðustu daga hef ég horft á síðasta leik við þá, það var hrikalega skemmtilegur leikur, einn af skemmtilegri leikjum sumarsins. Það er alltaf gaman að mæta Stjörnunni, þeir vilja pressa og geta bæði verið beinskeyttir og spilað boltanum. Þetta eru yfirleitt mjög fjörugir leikir og ég er mjög spenntur,"
Hvernig metur Dóri stöðuna á sínu liði fyrir leikinn?
„Við erum vonsviknir að hafa gert klaufalegt jafntefli á heimavelli í síðasta leik, en þar á undan voru tveir virkilega sterkir sigrar og frábær frammistaða. Við erum fullir sjálfstraust líka og ætlum okkur ekkert annað en sigur í Garðabæ. Við erum spenntir og kokhraustir. Við ætlum okkur að spila góðan leik og gera allt sem við getum til að ná í góð úrslit."

Jökull er spenntur fyrir leiknum í kvöld
Sæbjörn Steinke ræddi við Jökul Elísarbetarson þjálfara Stjörnunnar í aðdraganda leiksins í kvöld.
„Leikurinn leggst mjög vel í mig, ég er mjög spenntur fyrir þessum leik, takturinn í liðinu og stemningin er góð. Við erum að fara mæta mjög öflugu liði og ég held að þetta verði mjög skemmtilegur leikur," segir Jökull Elísabetarson
Stjarnan hafa verið á goðu skriði í síðustu leikjum eftir frekar slæma byrjun í deildinni. Breytti Jökull einhverju?
„Já og nei eiginlega, ég ætla ekki að taka það einn því við sem hópur erum búnir að gera allskonar, búnir að spjalla og fara yfir allskonar hluti og vinna okkur í rétta átt. Ég myndi segja að allur hópurinn á hrós skilið fyrir hvernig við höfum komið okkur upp úr því sem við vorum í og á réttan stað sem ég tel okkur vera á núna. Við getum gert betur, og munum reyna að gera betur en við höfum verið að gera, en ég tel okkur vera komna á rétta leið."

Tveir lykilmenn Breiðablik ekki með í kvöld
Höskuldur Gunnlaugsson og Tobias Thomsen eru báðir í leikbanni og geta ekki tekið þátt í leiknum hér í kvöld.
Blóðtaka fyrir Blika!
Blóðtaka fyrir Blika!

Fyrir leik
Staðan??
Stjarnan fyrir leik kvöldsins situr í fjórða sæti deildarinnar með 20.stig og hefur liðið verið eitt heitasta lið deildarinnar ef horft er á síðustu fjórar umferðir. Stjarnan fór upp á Skaga í síðustu umferð og slátraði vængbrotnum Skagamönnum 3-0.
Breiðablik situr fyrir leik kvöldsins í öðru sæti deildarinnar með 23.stig. Breiðablik fékk Fram í heimsókn í leik sem endaði 1-1 eftir mikla dramatík á síðustu mínútum leiksins.
Höskuldur tryggði Breiðablik stig og fékk svo að líta rautt spjald í kjölfarið.

Dómarararnir koma frá Akureyri
Sigurður Hjörtur Þrastarson sér um allt fari vel fram á Samsungvellinum í kvöld. Honum til aðstoðar verða þeir Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Eðvarðsson. Fjórði dómari er svo Hreinn Magnússon.

Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
('88)

6. Arnór Gauti Jónsson
('66)

8. Viktor Karl Einarsson (f)
9. Óli Valur Ómarsson
('92)

10. Kristinn Steindórsson
('66)

13. Anton Logi Lúðvíksson

15. Ágúst Orri Þorsteinsson
17. Valgeir Valgeirsson
('66)

21. Viktor Örn Margeirsson
30. Andri Rafn Yeoman
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
11. Aron Bjarnason
('66)

19. Kristinn Jónsson
('66)

23. Kristófer Ingi Kristinsson
('66)

24. Viktor Elmar Gautason
('88)

28. Birkir Þorsteinsson
29. Gabríel Snær Hallsson
('92)

33. Gylfi Berg Snæhólm
39. Breki Freyr Ágústsson
- Meðalaldur 23 ár
Liðsstjórn:
Halldór Árnason (Þ)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Særún Jónsdóttir
Haraldur Björnsson
Eiður Benedikt Eiríksson
Helgi Jónas Guðfinnsson
Brynjar Dagur Sighvatsson
Dagur Elís Gíslason
Gul spjöld:
Anton Logi Lúðvíksson ('27)
Valgeir Valgeirsson ('60)
Rauð spjöld: