Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Þróttur R.
Þróttur R.
Lengjudeild karla
AVIS völlurinn
Skýjað 12° létt gola og vel vökvað gervigras. Gerist ekki betra
2 - 2
HK
HK
Aron Snær Ingason 10'1 - 01 - 115' Eiður Atli Rúnarsson1 - 238' Birnir Breki BurknasonLiam Daði Jeffs 70'2 - 2
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Þróttarar betri en fá bara eitt stig

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var frekar jafn í fyrri hálfleik, en HK náði að skora tvö eftir góðar aukaspyrnur. Seinni hálfleikurinn var svo eiginlega eign Þróttara sem voru með boltann á vallarhelmingi HK í næstum 45 mínútur. Þeim tókst hinsvegar bara að skora eitt mark á þessum tíma og enda bara með stig. Þeir geta talið sig ágætlega heppna líka að HK hafi ekki stolið sigrinum, sem þeir fengu tækifæri á að gera í lok leiks.

Bestu leikmenn

1. Aron Snær Ingason (Þróttur)

Aron var hættulegasti sóknarmaður vallarins í kvöld. Hann skoraði mjög gott mark í fyrri hálfleik eftir gott hlaup, og hefði getað skorað fleiri ef heppnin hefði verið með honum.

2. Jóhann Þór Arnarsson (HK)

Jóhann hljóp, og hljóp í kvöld. Hann hefði getað gert betur með sum færin sem hann fékk, en hann var gríðarlega öflugur þrátt fyrir það.

Atvikið

HK vill fá vítaspyrnu á 89. mínútu þegar Eiður Atli fellur við í teignum. Hann fær klárlega hönd á bakið, en mér fannst við fyrstu sýn lítið í þessu. Gunnar Freyr dómari leiksins dæmdi ekkert á þetta sem ég held að sé rétt niðurstaða.

Hvað þýða úrslitin?

HK er með 18 stig og halda sér í 3. sæti deildarinnar. Þeir eru hinsvegar núna fjórum stigum á eftir ÍR sem er í toppsætinu. Þróttarar halda líka sínu sæti, eru í 5. sæti með 15 stig.

Vondur dagur

Enginn sem á einhvern hauskúpuleik í kvöld. HK hefði viljað gera betur í að halda í boltann og byggja upp einhverjar sóknir. Þeir áttu samt einhver færi þannig ekki hægt að segja að þetta hafi verið hræðilegt hjá þeim.

Dómarinn - 8

Gunnar Freyr og teymi dæmdi þetta vel í dag af mínu mati. Lítið hægt að kvarta, það voru mörg gul spjöld en ég held þau hafi bara öll átt rétt á sér.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.