
Serbía
1
3
Ísland

0-1
Sandra María Jessen
'3
0-2
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
'5
0-3
Sveindís Jane Jónsdóttir
'58
Miljana Ivanovic
'66
1-3
27.06.2025 - 17:00
Sport Center FA of Serbia
Vináttulandsleikur
Aðstæður: Það verður mjög heitt
Dómari: Zoe Stavrou (Kýpur)
Sport Center FA of Serbia
Vináttulandsleikur
Aðstæður: Það verður mjög heitt
Dómari: Zoe Stavrou (Kýpur)
Byrjunarlið:
1. Milica Kostic (m)
('59)

2. Anastasija Ciric

3. Milica Saric
('59)

5. Violeta Slovic
6. Nevena Damjanovic
8. Dina Blagojevic
10. Jelena Cankovic
16. Mina Cavic
('45)

18. Emilija Petrovic
20. Tijana Filipovic
21. Zivana Stupar
('59)

Varamenn:
12. Jefimija Skandro (m)
23. Ema Aleksic (m)
('59)

4. Aleksandra Gajic
11. Miljana Ivanovic
('45)


14. Milica Gakovic
('59)

15. Sofija Sremcevic
17. Sara Pavlovic
19. Mina Matijevic
22. Dejana Stefanovic
('59)

Liðsstjórn:
Lidija Stojkanovic (Þ)
Gul spjöld:
Anastasija Ciric ('31)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Stavrou flautar þennan leik af, Ísland vinnur örugglega 1-3, gott að fara til Sviss með sigur í fararteskinu!
91. mín
Sveindís með sendingu upp í hornið á Diljá hún reynir sendinguna á Berglindi en boltinn í varnamann og hornspyrna dæmd, darraðardans í teignum sem endar með hörkuskoti hjá Öglu Maríu en rétt framhjá
87. mín
Gult spjald: Diljá Ýr Zomers (Ísland)

Diljá með peysutog, stoppar hér skyndisókn, gott brot
87. mín
Miklu meira líf í stelpunum og sóknarleiknum, Amanda með hornspyrnuna inn í, Dagný í baráttunni en Serbarnir koma þessu frá
83. mín
Stefanovic með góða vörn, Amanda ætlar að keyra upp með boltan en Stefanovic stöðvar hana og nær til boltans. Boltinn berst síðan til Aleksic sem tekur hann með höndum stelpurnar mótmæla hér, hvort þetta hafi verið sending eða hvað en dómarinn gerir enga athugasemd
81. mín
Dagný með fyrirgjöf Amanda nær ekki til hans en Sveindís er hins vegar mætt en varið. Stelpurnar eru að vakna til lífsins aftur
79. mín
Rangstaða
Rangstæða dæmd á Cankovic, fékk góða stungu inn fyrir vörnina og var komin í dauðafæri en flaggið réttilega á loft
78. mín
Sveindís með innkast, tekur það hins vegar stutt, fær hann síðan aftur og á laglega fyrirgjöf en engin nær til boltans
77. mín
Diljá liggur eftir, fær hér annað höggið á stuttum tíma en hún harkar þetta af sér og heldur áfram
73. mín
Karólína með aukspyrnu, setur hann inn á fjær þar er Glódís sem skallar hann aftur inn í en enginn nær honum þarna og boltinn afturfyrir
72. mín
Karólína með stungu upp á Sveindísi, hún er svo fljót, nær boltanum leitar aftur af Karólínu en serbarnir ná þessum
69. mín
Vatnspása seinni hálfleiks!
Fínt að fá aðra vatnspásu hér, stelpurnar þurfa aðeins að stilla saman strengi! Það þarf aðeins meiri ákefð og hækka tempóið á þessum leik
66. mín
MARK!

Miljana Ivanovic (Serbía)
Þetta var algjör óþarfi! En Ivanovic gerir þetta ótrúlega vel, Leikur á Glódísi og á svo lúmst skot á markið sem Cecilía ver inn
62. mín
Vallarþulurinn í Stara Pazova í miklu veseni með að bera fram nöfn íslensku leikmannna sem eru að koma inn á. Fær lófaklapp þegar hún klárar þetta.
58. mín
MARK!

Sveindís Jane Jónsdóttir (Ísland)
VÁ! SVEINDÍS
Með geggjað einstaklingsframtak! Keyrir upp völlin og á svo vel hnitmiðað skot! VÁ!
Sveindís Jane með gjörsamlega truflað mark ????
— Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson (@gummi_aa) June 27, 2025
Hún er tilbúin í EM ???? pic.twitter.com/kMKPP0EQPn
58. mín
Ivanovic að koma vel inn hérna, búin að vera hættuleg á hægri kanntinum á góða fyrirgjöf en Cecilía grípur inn
56. mín
Íslenska liðið er að leyfa Serbunum að komast full mikið inn í leikinn fyrir minn smekk, hafa verið meira hér með boltann í upphafi seinni hálfleiks en Íslenska liðið og hafa náð hér nokkrum skotum að marki ólíkt fyrri hálfleik...
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks í Stara Pazova. Forystan er góð en frammistaðan mætti alveg vera aðeins betri. Höfum lítið gert sóknarlega eftir að við komumst 0-2 yfir. Ég vil aðeins meira!

44. mín
Glódís Perla fer yfir stöðuna með liðsfélögunum á meðan leikmaður Serbíu fær aðhlynningu.
44. mín
Þessi dómari...
Leikmaður Serbíu fær högg á andlitið. Dómarinn er að horfa eitthvað annað. Heyrir svo í leikmanni Serbíu væla og flautar brot. Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja um þetta...
42. mín
Búið að vera mjög rólegt yfir þessu eftir hraða byrjun. Förum að detta í leikhlé.
38. mín
Cessa var búin að halda á boltanum í meira en tíu sekúndur áður en hún setti boltann niður.
37. mín
Átta sekúndna reglan dæmd á Cessu
Held að þetta hafi bara verið réttur dómur þó íslensku leikmennirnir hafi verið ósáttir. Serbar fengu hornspyrnu en gerðu ekkert við hana.

35. mín
Hlín með fullt af plássi upp hægri kantinn en missir boltann út af. Hefur ekki alveg fundið sig.
33. mín
Heimakonur reyna að spila aftur fyrir vörn Íslands en Ingibjörg leysir úr þessu. Gerir það vel.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
26. mín
Gult spjald: Glódís Perla Viggósdóttir (Ísland)

Glódís lendir fyrir aftan og brýtur af sér. Ég sá ekki gula spjaldið en serbneskur kollegi minn bendir mér á það.
24. mín
Sveindís finnur Hildi við teiginn og hún reynir skot en það er enginn kraftur í því.
23. mín
Íslenska liðið að slaka aðeins of mikið á fyrir minn smekk. Síðustu mínútur ekki góðar. Kannski er það hitinn.
22. mín
Tijana Filipovic fær fullt af tíma og reynir skot en það fer í varnarmann Íslands. Svo er stigið ofan á Karólínu og aukaspyrna dæmd.
Virðist vera að virka vel að KSÍ neitaði stórleik við ???????????????????????????? á Wembley fyrir EM og tóku frekar mótiverandi leik gegn Serbíu í 28 gráðum, því þær geta ekkert. Úff.
— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) June 27, 2025
Gott fyrir stelpunar hinsvegar að mæta inn á EM með góð úrslit.
Sandra Jessen á alltaf að byrja upp á topp - alltaf. pic.twitter.com/iYWkM3DL1s
20. mín
Serbar við það að komast í ágætis færi en Glódís nær að bjarga. Serbarnir aðeins betri á boltanum. Eiga svo skot sem fer töluvert fram hjá markinu.
20. mín
Ég velti fyrir mér hvað það hefðu margir mætt ef þessi leikur hefði verið á Laugardalsvelli. Það eru svona 40 í stúkunni núna.
16. mín
Það er einhver æfing á velli hér við. Þar er þjálfari að flauta svolítið mikið og það er trufla þennan leik hér.
13. mín
SANDRA MARÍA!
Karólína þræðir Sveindísi í gegn vinstra megin og hún á fyrirgjöf sem finnur Söndru Maríu í teignum. Akureyringurinn nær ekki miklum krafti í skotið en boltinn lekur næstum því inn!
Markvörðurinn virðist bjarga sér en íslensku leikmennirnir kalla samt eftir marki. Dómarinn metur svo að boltinn hafi ekki farið inn.
Markvörðurinn virðist bjarga sér en íslensku leikmennirnir kalla samt eftir marki. Dómarinn metur svo að boltinn hafi ekki farið inn.
13. mín
Það er bara djók hvað serbneska liðið er lélegt að spila úr vörninni. Missa boltann hér aftur í öftustu línu en Ísland nær ekki að refsa fyrir það í þetta skiptið.
12. mín
Dauðafæri!
Sveindís Jane í dauðafæri á fjærstönginni en setur boltann fram hjá markinu. Þarna átti hún að gera betur. Ef við værum í leik á EM, þá væri ég brjálaður.
11. mín
Besta sóknarlínan?
Sandra María er að spila upp á topp. Það virkaði vel gegn Noregi. Hlín er úti hægra megin og Sveindís vinstra megin. Það er gott að það við séum með möguleika í þessu en ég held að þetta sé okkar besta sóknarlína, eins og henni er stillt upp núna.
Uuuuu. Hvað er að gerast! 0-2! LET'S GOOOOO #SERÍSL
— Hörður ? (@horduragustsson) June 27, 2025
9. mín
Karólína Lea með sitt fimmtánda landsliðsmark
Karólína Lea búin að gera 15 mörk fyrir Ísland núna.

Karólína Lea búin að gera 15 mörk fyrir Ísland núna.
8. mín
Fyrsta mark Söndru Maríu síðan 2016
Hennar sjöunda landsliðsmark og fyrsta landsliðsmarkið síðan hún skoraði í 4-1 sigri á Danmörku árið 2016.

Hennar sjöunda landsliðsmark og fyrsta landsliðsmarkið síðan hún skoraði í 4-1 sigri á Danmörku árið 2016.
7. mín
Bæði mörkin komið eftir að serbnesku varnarmennirnir misstu boltann. Vel gert hjá íslenska liðinu að nýta sér það.
6. mín
Það heyrast andköf í stúkunni þegar Sveindís Jane á skot í hliðarnetið. Serbía á bara ekki möguleika núna. Mikil stemning í íslenska liðinu.
5. mín
MARK!

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Ísland)
Stoðsending: Sveindís Jane Jónsdóttir
Stoðsending: Sveindís Jane Jónsdóttir
ANNAÐ MARKIÐ!!!
Það stefnir bara í veislu!
Aftur vinnur Ísland boltann hátt á vellinum, Sveindís sér Karólínu við hliðina á sér og sendir á hana. Karólína Lea kemur á ferðinni og tekur skotið í fyrsta.
Markvörður Serbíu er í boltanum en nær ekki að verja.
Aftur vinnur Ísland boltann hátt á vellinum, Sveindís sér Karólínu við hliðina á sér og sendir á hana. Karólína Lea kemur á ferðinni og tekur skotið í fyrsta.
Markvörður Serbíu er í boltanum en nær ekki að verja.
3. mín
MARK!

Sandra María Jessen (Ísland)
Stoðsending: Alexandra Jóhannsdóttir
Stoðsending: Alexandra Jóhannsdóttir
MARK!!!!!
Fyrsta markið er komið!
Við vinnum boltann hátt á vellinum. Alexandra með boltann og horfir fram fyrir sig. Hún sér Söndru Maríu með mikið pláss fyrir framan sig og finnur hana. Rangstöðuflaggið er niðri og Sandra María klárar frábærlega.
Við vinnum boltann hátt á vellinum. Alexandra með boltann og horfir fram fyrir sig. Hún sér Söndru Maríu með mikið pláss fyrir framan sig og finnur hana. Rangstöðuflaggið er niðri og Sandra María klárar frábærlega.
2. mín
Maður heyrir gjörsamlega allt sem er sagt inn á vellinum. Cecilía mjög hágvær í byrjun leiks.
2. mín
Báðir markverðir í stuttermabol
Það er svo mikill hiti að það er ekki annað hægt.
Fyrir leik
Fámennt í stúkunni
Það er ekkert rosalegur áhugi á kvennaboltanum hér í Serbíu. Ég tel í mesta lagi 30 manns í stúkunni. Serbía er ekki að fara á EM og því kannski ekki mikil stemning fyrir liðinu þessa stundina.
Fyrir leik
Það kemur smá svona vindgustur í andlitið á manni núna. Fáránlega þægilegt. Kollegi minn frá Serbíu talar um að hitinn sé bærilegur núna miðað við síðustu daga. Það var ólíft í gær en ég veit ekki alveg hvort ég sé sammála honum.
Fyrir leik
Arnar Laufdal að störfum
Mikill liðsstyrkur fyrir KSÍ að fá Arnar Laufdal í teymið á bak við tjöldin. Sér um samfélagsmiðlamálin á meðan EM stendur, og vonandi bara lengur en það! Búinn að lyfta upp öllum samfélagsmiðlamálum hjá Breiðabliki síðustu árin. Frábær í því sem hann er að gera.

Mikill liðsstyrkur fyrir KSÍ að fá Arnar Laufdal í teymið á bak við tjöldin. Sér um samfélagsmiðlamálin á meðan EM stendur, og vonandi bara lengur en það! Búinn að lyfta upp öllum samfélagsmiðlamálum hjá Breiðabliki síðustu árin. Frábær í því sem hann er að gera.
Fyrir leik
Vá hvað það er heitt!
Það stendur að það séu 29 gráður úti, en ég veit ekki alveg hvort ég trúi því. Það er ógeðslega heitt og verður örugglega erfitt fyrir leikmennina að spila leikinn. Það vonandi kólnar aðeins með kvöldinu en klukkan er orðin 18:22 hérna í Serbíu.
Fyrir leik
Vantar stærstu stjörnuna í lið Serbíu
Jovana Damnjanovic, liðsfélagi Glódísar Perlu, hjá Bayern München er fjarri góðu gamni í dag. Hún er víst bara í fríi. Það vantar líka nokkra aðra leikmenn í serbneska liðið.

Jovana Damnjanovic, liðsfélagi Glódísar Perlu, hjá Bayern München er fjarri góðu gamni í dag. Hún er víst bara í fríi. Það vantar líka nokkra aðra leikmenn í serbneska liðið.
Fyrir leik
Leikir Íslands á EM
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Takið þessa daga frá!
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Takið þessa daga frá!
Fyrir leik
Þjálfari Serbíu með mikla Íslandstengingu
Það vekur athygli að þjálfari Serbíu er Íslandsvinur mikill; Lidija Stojkanovic er tekin við liðinu.
Hún tók við serbenska landsliðinu undir lok síðasta árs eftir að hafa verið að þjálfa U19 landsliðið. Hún varð fyrir nokkru síðan fyrsta serbneska konan til að fá UEFA Pro þjálfararéttindi.
Lidija spilaði á Íslandi frá 2005 til 2011 með HK/Víkingi og Fylki. Þá lék hún einnig hér sumarið 2014 með HK/Víkingi. Hún hóf þjálfaraferil sinn á Íslandi í yngri flokkum Víkings árið 2006. Hún varð síðar meir aðstoðarþjálfari HK/Víkings og þjálfari HK.

Það vekur athygli að þjálfari Serbíu er Íslandsvinur mikill; Lidija Stojkanovic er tekin við liðinu.
Hún tók við serbenska landsliðinu undir lok síðasta árs eftir að hafa verið að þjálfa U19 landsliðið. Hún varð fyrir nokkru síðan fyrsta serbneska konan til að fá UEFA Pro þjálfararéttindi.
Lidija spilaði á Íslandi frá 2005 til 2011 með HK/Víkingi og Fylki. Þá lék hún einnig hér sumarið 2014 með HK/Víkingi. Hún hóf þjálfaraferil sinn á Íslandi í yngri flokkum Víkings árið 2006. Hún varð síðar meir aðstoðarþjálfari HK/Víkings og þjálfari HK.
Fyrir leik
Hefur verið rosalega heitt
Það er búið að vera alveg gífurlega heitt í Stara Pazova síðustu daga. Hitinn náði 40 gráðum í gær og það var rauð viðvörun; fólki var bara ráðlagt að vera inni við loftræstinguna. Ég tók göngutúrinn á hótel landsliðsins til að taka þar viðtöl og það var líklega erfiðasti göngutúr lífs míns, svo heitt var úti.
Fyrir leik
Nokkrar myndir frá Stara Pazova
Ég kom hérna líka í fyrra, þegar liðin mættust þá. Í þessum tveimur heimsóknum hef ég tekið nokkrar myndir sem má sjá hér fyrir neðan. Þetta er harður bær.










Fyrir leik
Þessi lið mættust líka í fyrra
Þessi tvö lið mættust líka í fyrra í umspili um sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar. Þau gerðu þá 1-1 jafntefli hérna í Serbíu þar sem Alexandra Jóhannsdóttir gerði mark Íslands. Niðurstaðan í seinni leiknum á Kópavogsvelli var 2-1 sigur Íslands þar sem Sveindís Jane Jónsdóttir og Bryndís Arna Níelsdóttir gerðu mörkin.

Fyrir leik
Hlustaðu á þetta
Á meðan ég hef verið í Serbíu, þá hef ég tekið upp tvö áhugaverð hlaðvörp sem ég hvet ykkur öll til að hlusta á.
Fyrir leik
Viðtöl síðustu daga
Fyrir leik
Þetta er skrautlegur bær
Það er óhætt að segja að leikurinn fari fram í frekar skrautlegum bæ, en hér er samt sem áður frábær aðstaða til fótboltaiðkunnar. Stelpurnar hafa verið í ákveðinni búbblu þar sem hótelið, æfingavöllurinn og keppnisvöllurinn er allt á sama stað. Þær hafa náð fullum fókus á verkefnið sem er framundan.
Fyrir leik
Til hamingju með daginn Glódís!
Ég ætla að byrja þessa textalýsingu á að óska landsliðsfyrirliðanum Glódísi Perlu Viggósdóttur til hamingju með daginn. Hún á stórafmæli, er þrítug.

Fyrir leik
Velkomin til Stara Pazova
Hér verður bein textalýsing frá leik Serbíu og Íslands. Þetta er vináttuleikur en um er að ræða síðasta leik okkar Íslendinga fyrir EM. Við mætum Finnlandi í fyrsta leik á EM næsta miðvikudag.
Fréttamaður Fótbolta.net er auðvitað á staðnum í Serbíu og hefur flutt fréttir af liðinu síðustu daga. Svo er ferðalag til Sviss í fyrramálið, en fyrsti er það þessi leikur.
Fréttamaður Fótbolta.net er auðvitað á staðnum í Serbíu og hefur flutt fréttir af liðinu síðustu daga. Svo er ferðalag til Sviss í fyrramálið, en fyrsti er það þessi leikur.

Byrjunarlið:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen
('45)


4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)

6. Ingibjörg Sigurðardóttir
7. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
('74)


8. Alexandra Jóhannsdóttir
('74)

14. Hlín Eiríksdóttir
('60)

16. Hildur Antonsdóttir
('60)

18. Guðrún Arnardóttir
20. Guðný Árnadóttir
('45)

23. Sveindís Jane Jónsdóttir
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
13. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
2. Berglind Rós Ágústsdóttir
('74)

5. Sædís Rún Heiðarsdóttir
('45)

9. Diljá Ýr Zomers
('60)


10. Dagný Brynjarsdóttir
('60)

11. Natasha Anasi
15. Katla Tryggvadóttir
17. Agla María Albertsdóttir
('45)

19. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
21. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
22. Amanda Andradóttir
('74)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Þorsteinn Halldórsson (Þ)
Gul spjöld:
Glódís Perla Viggósdóttir ('26)
Diljá Ýr Zomers ('87)
Rauð spjöld: