Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
ÍR
ÍR
Lengjudeild karla
AutoCenter-völlurinn
6 - 1
Grindavík
Grindavík
Bergvin Fannar Helgason 11'1 - 0Emil Nói Sigurhjartarson 55'2 - 0Víðir Freyr Ívarsson 66'3 - 0Bergvin Fannar Helgason 68'4 - 0Víðir Freyr Ívarsson 71'5 - 05 - 180' Adam Árni RóbertssonBergvin Fannar Helgason (víti) 85'6 - 1
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: "Leiðinlegasta" lið Lengudeildarinnar með sýningu

Hvað réði úrslitum?

ÍRingar voru gestunum frá Grindavík fremri á öllum sviðum knattspyrnu í kvöld. Við vorum kannski ekki að horfa á neinn samba fótbolta en heimamenn voru klinískir í sínum færum og hreinlega keyrðu yfir andlausa Grindvíkinga

Bestu leikmenn

1. Bergvin Fannar Helgason

Þrenna í húsi og tvær stoðsendingar að auki. Hvað er hægt að biðja um meira frá fremsta manni?

2. Víðir Freyr Ívarsson

Kemur inn af bekknum undir lok fyrri hálfleiks og kom inn af fítonskrafti. Setti sín fyrstu mörk í Lengjudeildinni og átti skínandi leik.

Atvikið

Þessi fimm mínútna kafli frá 66.mínútu til þeirra 71. þegar ÍR gekk frá leiknum og fór úr 2-0 stöðu í 5-0. Fyrir það var veik von fyrir gestina sem bara hreinlega hættu eftir þriðja markið.

Hvað þýða úrslitin?

Þau þýða það að ÍR fer á toppinn og hefur stórbætt markatölu sína sem var þó með miklum ágætum fyrir. 22 stig í pokann góða og liðið sem hefur lítið verið í því að skora meira en eitt mark í leik er svo sannarlega á flugi. Grindvíkingar á sama tíma í brasi með 11 stig en halda þó 8.sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Það eru margir fyrirkallaðir eftir svona frammistöðu líkt og Grindavík sýndi í kvöld. Andleysið var algjört þegar mótvindurinn byrjaði fyrir alvöru og ansi margt sem Haraldur Hróðmarsson þjálfari Grindavíkur þarf að fara yfir á næstu dögum fyrir næsta leik Grindvíkinga.

Dómarinn - 8

Ekkert upp á Helga MIkael að klaga í kvöld. Solid frammistaða hjá teyminu sem skilaði góðu dagsverki.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.