Fotbolti.net
Kristján Sigurkarlsson
ÍA
ÍA
Lengjudeild kvenna
Akraneshöllin
Topp aðstæður
3 - 4
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/​Njarðvík
Elizabeth Bueckers 7'1 - 0Sigrún Eva Sigurðardóttir 10'2 - 02 - 122' Júlía Rán BjarnadóttirElizabeth Bueckers 40'3 - 13 - 253' Danai Kaldaridou (víti)3 - 372' Emma Nicole Phillips3 - 474' Tinna Hrönn Einarsdóttir
Dómari: Sindri Snær A van Kasteren
Myndir: KSÍ

SKÝRSLAN: Karakter SIGUR hjá Grindavík/Njarðvík

Hvað réði úrslitum?

Hálfleiks breytingin hjá Gylfa Tryggvasyni að setja Emmu Nicole Phillips uppá topp. ÍA leiddi 3-1 í hálfleik og gerðu mjög vel í fyrri hálfleik að loka á Grindavík/Njarðvík en í seinni hálfleik þá bætti Grindavík/Njarðvík í sóknina og settu Emmu uppá topp og það var þá hausverkur fyrir ÍA að þurfa að sjá um Emmu í sókninni

Bestu leikmenn

1. Emma Nicole Phillips

Hún byrjaði sem hafsent í fyrri hálfleik og var bara fín en kom svo rosalega sterk inn í seinni hálfleik sem sóknarmaður og skorar jöfnunarmarkið fyrir Grindavík/Njarðvík

2. Júlía Rán Bjarnadóttir

Hún var allt í öllu í sókninni fyrir Grindavík/Njarðvík og var frábær í dag. Grindavík/Njarðvík leitaði mikið á vinstri væng þar sem hún var og skoraði fyrsta markið fyrir Grindavík/Njarðvík

Atvikið

Fyndið atvik í leiknum þar sem leikmaður í Grindavík/Njarðvík leggst niður og Grindavík/Njarðvík sparka boltanum útaf en þær gulu sögðu bara áfram og engan aumingja skap hér og náðu boltanum en ekkert varð úr því en það heldur betur kom hiti þá í leikinn. Annað stórt atvik var vítaspyrnu dómurinn þar sem AD2 dæmir víti á ÍA sem kemur Grindavík/Njarðvík inn í leikinn

Hvað þýða úrslitin?

Þetta er heldur betur frábær úrslit fyrir Grindavík/Njarðvík þar sem þær eru núna komnar í 23 stig og halda áfram að berjast um 2 sætið í deildinni Úrslitin fyrir ÍA eru ekki góð þar sem þetta var tímapunkturinn til þess að bæta sig inn í hópinn til þess að berjast um þetta 2 sæti en með hagstæðum úrslitum og sigur í næstu leikjum þá eiga þær ennþá eitthvern möguleika á 2 sætinu en það þarf allt að ganga upp með þeim

Vondur dagur

Bara allt ÍA liðið þær voru 3-1 yfir og voru að loka vel á Grindavík/Njarðvík í fyrri hálfleik en missa svo stöðuna niður í 3-4 í seinni hálfleik

Dómarinn - 4

Fannst dómgæslan ekki vera fín í dag þar sem dómarateymið var ekki með tök á leiknum og annað dæmi var þegar Sindri Snær ætlar ekki að dæma vítaspyrnu og er í mjög góðu sjónarhorni til þess að sjá þetta en fær svo í eyrað frá Tijönu Krstic að þetta sé víti. Finnst að AD2 eigi ekki að vera taka svona stórar ákvarðanir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.