SKÝRSLAN: Sterkur Stóla sigur í Norðurlandsslagnum
Hvað réði úrslitum?
Orkumunurinn í fyrri hálfleik skilaði klárlega Stólunum þessum sigri, við öll mistök frá gestunum voru þær klárar í hraðarupphlaup og gerðu vel í að skapa hættu í flest skipti sem að það gerðist.
Bestu leikmenn
1. Birgitta Rún Finnbogadóttir
Birgitta var frábær í dag, sérstaklega í fyrrihálfleik, gott mark og frábær stoðsending, einnig var hún góð í varnarvinnuni.
2. Genevieve Jae Crenshaw
Var kannski ekki mikið af hættulegum færum sem að hún þurfti að bjarga en gerði allt mjög vel, mjög ákveðinn í fyrrigjöfum og flottur leikur frá henni
Atvikið
Ekkert atvik átti sér stað í dag sem að muna lengi í minni, kannski hægt að seigja að þessi stoðsending frá Birgittu verðskuldi það, frábær bolti í gegn á Makla Woods
Hvað þýða úrslitin?
Stólarnir fara upp í 6 sæti en samt búnar að spila einum fleiri leik en Valur sem er í 7 sæti, Þór/KA sitja en fastar í fjórða sæti.
Vondur dagur
Varnarlínan hjá Þór/KA var ekki upp á sitt besta í dag, fyrsta markið er bara slök sending frá þeim, þær voru bara of mikið að bjóða Stólunum að hlaupa á þær og þær klárlega voru ekki klárar í það
Dómarinn - 4
Oft spes lína hjá honum og spjaldið á Birgittu var algjör óþarfi hjá þeim að mínu mati



