SKÝRSLAN: Afar sannfærandi sigur ÍBV
Hvað réði úrslitum?
Eyjakonur eru einfaldlega með besta liðiðí þessari deild og þær sýndu það í þessum leik. Hefðu getað skorað fleiri mörk á meðan Haukar fengu varla neitt alvöru færi til að skora.
Bestu leikmenn
1. Allison Patricia Clark
Allison var lang besti leikmaður vallarins í kvöld. Skoraði stórglæsilegt mark, hljóp út um allan völl og var með góðar sendingar á samherja sína.
2. Allison Grace Lowrey
Er alltaf hættuleg, gerði tvö góð mörk og hefði getað skorað fleiri. Sívinnandi fyrir liðið sitt og kemur sér alltaf í ótal færi og góðar stöður.
Atvikið
Haukar hefðu átt að fá víti í stöðunni 1-0 fyrir ÍBV þegar boltinn fór í hendina á varnarmanni ÍBV inn í teig. Í staðinn fyrir að dæma víti dæmir dómarinn hendi á leikmann Hauka og Eyjakonur fengu aukaspyrnu.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV styrkir stöðu sína enn frekar á toppnum og eru komnar í 31 stig. Haukar eru áfram í áttunda sætinu með 13 stig.
Vondur dagur
Sóknarleikur Hauka var ekki upp á marga fiska og þær hefðu getað spilað fram að Þjóðhátíð án þess að skora.
Dómarinn - 7
Í raun ágætlega dæmdur leikur fyrir utan atvikið sem við nefndum hér áður.


