Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Valur
Valur
Besta-deild kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
2 - 1
FHL
FHL
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir 1'1 - 01 - 124' Taylor Marie HamlettFanndís Friðriksdóttir 63'2 - 1
Dómari: Bríet Bragadóttir

SKÝRSLAN: Reynslan réði úrslitum á Hlíðarenda

Hvað réði úrslitum?

Reynslan í Valsliðinu var það sem réði úrslitum í kvöld! Fanndís kom Val aftur yfir í seinni hálfleik og sprækt lið FHL náði ekki að nýta sín færi til að jafna

Bestu leikmenn

1. Fanndís Friðriksdóttir

Set þetta á Fanndísi í liði Vals. Reynslumikil og var góð í kvöld. Koma Val aftur yfir eftir að hafa leikið listir sínar inn í teig og sett svo boltan framhjá Terrell í marki FHL. Átti síðan hættulegar spyrnur og fyrirgjafir

2. Björg Gunnlaugsdóttir

Hjá FHL var Björg mjög spræk, átti marga flotta spretti og var gaman að fylgjast með. Er eldsnögg og náði oft að koma sér í góðar stöður

Atvikið

Fyrsta mark Vals kom strax á upphafsmínútu leiksins þegar Jordyn Rhodes átti frábæra fyrirgjöf á Ragnheiði sem stangaði boltann inn. Svakaleg byrjun og maður hélt að það yrðu stórtölur í lok leiks, það gerðist þó ekki en skemmtilegur leikur engu að síður

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða einfaldlega að Valur tekur stigin þrjú og hoppa upp í 5. sætið eins og staðan er núna en Fram á þó leik til góða í 6. sætinu. FHL hins vegar eru enn án stiga á botninum

Vondur dagur

Vondur dagur hjá Natöshu sem þurfti að fara af velli vegna meiðsla á 33 mínútu, vonandi er þetta ekkert alvarlegt!

Dómarinn - 6

Ágætur leikur hjá Bríeti og co. Engar erfiðar ákvarðanir þannig, mikið dæmt og slatti af spjöldum en leikurinn var bara þannig í kvöld
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.