SKÝRSLAN: Grindavík/Njarðvík spilar í Bestu deild kvenna 2026
Hvað réði úrslitum?
Grindavík/Njarðvík mættu af miklum krafti í dag og í raun varð aldrei spurning hvernig þessi leikur væri að fara enda. HK minnkar muninn korter fyrir hálfleik og smá mómentum en í síðari hálfleik gekk Grindavík/Njarðvík bara frá þessu og tryggði sér upp í Bestu deild kvenna 2026!
Bestu leikmenn
1. Sophia Faith Romine
Var frábær í liði Grindavík/Njarðvík í dag. Skoraði tvö frábær mörk í fyrri hálfleik sem róaði taugar heimakvenna
2. Ása Björg Einarsdóttir
Þetta var erfitt val en gef Ásu Björg þetta. Var eins og rennilás upp og niður vænginn og skoraði svo markið sem endanlega gulltryggði þetta.
Atvikið
Um leið og flautað var til leiksloka var kveikt í tertu fyrir aftan varamannaskýlin og fagnað sætinu í Bestu deild kvenna. Úr leiknum sjálfum var það líklega markið hjá Ásu Björg í lokinn. Þetta síðasta smiðshögg.
Hvað þýða úrslitin?
Grindavík/Njarðvík spilar í Bestu deild kvenna 2026 á meðan HK sitja eftir með sárt ennið í Lengjudeildinni.
Vondur dagur
Ég ætla að skila auðu hérna.
Dómarinn - 8
Þokkalega dæmdur leikur. Hefði mátt flauta af bara eftir fjórða markið en annars er ekkert út á frammistöðu teymisins að setja í dag.



