Fotbolti.net
Besta deildin
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild kvenna
Kópavogsvöllur
2 - 1
FH
FH
0 - 110' Berglind Freyja HlynsdóttirBirta Georgsdóttir 90'1 - 1Birta Georgsdóttir 93'2 - 1
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Birta tryggði Blikum sigur með tveimur mörkum í uppbótartíma

Hvað réði úrslitum?

Blikar lágu á FHingum eftir að FH komst yfir snemma í leiknum. Maður var alltaf að bíða eftir jöfnunar marki frá Blikum en í staðinn fékk maður tvö mörk á uppbótar tíma leiksins.

Bestu leikmenn

1. Birta Georgsdóttir

Algjört frábært skipting hjá Nik og Birta kom með alvöru hraða og sköpunar gæði inn í leikinn. Blikarnir spiluðu allt öðruvísi eftir hún kom inn á og var Birta með fleiri færi fyrir mörkin sem voru nálægt því að fara inn.

2. Macy Elizabeth Enneking

Ég sagði fyrir mörkin tvö í fjölmiðla stúkunni að það tæki tvö mörk svo ég myndi ekki setja Macy sem besti maður leiksins. Ég stend við það og vel hana sem næst best maður leiksins í staðinn. Þrátt fyrir þessi tvö mörk þá var hún algjörlega frábær í þessum leik og á þetta vel skilið.

Atvikið

Loka mínútur leiksins voru alveg svakalegar. Frá því að vera einu marki undir í að sigra leikinn aðeins á uppbótar tímanum. Blikar voru búnar að sækja allan leikinn en maður var samt farinn að halda að FH væri með þetta.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar stækki en forskotið sitt í efsta sætið og eru núna 8 stigum frá FH sem liggja enn í annað sæti.

Vondur dagur

Bæði liðin spiluðu vel í þessum leik. Blikar sóttu mikið og FHingar lágu mikið að teignum, en það er samt ekki hægt að segja að spilamennska FH var eitthvað léleg vegna þess.

Dómarinn - 8

Vilhjálmur og teymið hans dæmdu vel hér í dag. Það ver lítið af erfiðum ákvörðunum og ég get lítið sagt um frammistöðuna þeirra, annað en að þeir stóðu sig vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.